Þjóðskrá vekur athygli á því að tilkynningar um breytingar á lögheimili þurfa að berast til þeirra eigi síðar en föstudaginn 6. desember svo unnt sé að tryggja að einstaklingar séu rétt skráðir í íbúaskrá miðað við 1. desember þessa árs. Sérstök athygli er vakin á því að einstaklingar geta tilkynnt flutning í gegnum vefform á vef Þjóðskrár Íslands, skra.is.  Ef breyting á lögheimilisskráningu er tilkynnt rafrænt þá er hún skráð eigi síðar en næsta virkan dag.