Áramótabrenna og flugeldasýning árið 2021 á sóttvarnartímum

Áramótabrenna með breyttu fyrirkomulagi hefst klukkan 17:00 á Gamlársdag og verða ströngustu sóttvarnarreglur í gildi eftir að tímabundið leyfi til brennuhalds fékkst frá yfirvöldum.

Brennan verður haldin á sama stað og venjulega, á túninu norðan við Króktún, en verður eins konar „bílabrenna“ þar sem íbúar eru beðnir að halda kyrru fyrir í bílum sínum og njóta brennunnar með sinni áramótakúlu.

Bílum verður beint á bílastæði í kringum brennuna og er fólk hvatt til að virða þau tilmæli sem sett eru og fara ekki úr bílum sínum meðan á brennunni stendur.

Flugeldasýning

Flugeldasýningin verður svo klukkan 18:00 og verður skotið af Hvolsfjalli eins og í fyrra þannig að hægt verður að njóta sýningarinnar heiman frá sér og ætti að vera nægur tími til að yfirgefa brennusvæði áður en flugeldasýning hefst.

Rangárþing eystra setur þó þann fyrirvara að ef einhverjar breytingar verða á fjölda smita eða sóttvarnarreglum verður brennunni aflýst með stuttum fyrirvara.

Sýnum saman ábyrgð í verki og njótum þessa árlega viðburðar með breyttu fyrirkomulagi, komum þannig í veg fyrir hópamyndun og fylgjum sóttvarnarreglum í hvívetna því smitum fjölgar jú í okkar samfélagi eins og öðrum og viljum við gera okkar allra besta til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu.