Í október sl. kom góður gestur í heimsókn í Refilstofuna en þar var mættur Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra og bóndi í Kirkjubæ á Rangárvöllum. Tilefnið var að komið var að atburðum sem gerðust á Kirkjubæ. Það var því við hæfi að Ágúst tæki þátt í að sauma búrið á Kirkjubæ sem þrællinn Melkólfur brenndi eftir að hafa rænt það að skipan Hallgerðar. Ágúst þótti hinn flinkasti saumamaður og sama má segja um Dag, son hans, sem mætti með pabba sínum.