Það var stór dagur í dag í sögu Afrekshuga þegar formaður félagsins, Friðrik Erlingsson, gekk til fundar við fullskapaða afsteypu af þessu fræga og fagra verki Nínu Sæmundsson, á verkstæði Skulpturstöberiet í Svendborg á Fjóni. Þau eru sannkallaðir listamenn, handverksfólkið hans Jörn Svendsen á Skulpturstöberiet, enda er bronsafsteypugerð flókið og margþætt verk og vandað verklag ekki á hvers manns færi.

Að styttan hafi verið steypt í Svendborg er merkileg tilviljun því í bókinni um Nínu, eftir Hrafnhildi Schram, segir að Nína hafi verið hjá vinkonu sinni í Svendborg og gert þar fyrsta skúlptúrverk sitt, sem var brjóstmynd af litlu barni. Fyrir tilstilli þessa verks komst hún inn í undirbúningsnám fyrir Listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Afsteypa Afrekshuga hér í Svendborg nú lokar því fagurlega hringnum í sögu Nínu.

Nú tekur við undirbúningur að gerð stöpuls og stéttar á miðbæjartúninu. Þegar stöpullinn er tilbúin kemur styttan loks heim. Og þá verður áreiðanlega óhætt að halda svolitla hátíð.

Tveir af “feðrum” Afrekshuga, Jörn Svendsen, eigandi Skulpturstöberiet, og Nils Jörgen Hansen, starfsmaður

Brjóstmynd af barni, fyrsti skúlptúr Nínu Sæmundsson, gerður í Svendborg 1915.