Líkt og vegfarendur um miðbæ Hvolsvallar hafa vafalaust tekið eftir hafa framkvæmdir við uppsetningu Afrekshugar staðið yfir þar sem af er sumri. Nú loksins er verkið að taka á sig mynd en styttan sjálf var hífð á stall sinn í gær, 2. ágúst. Verkinu er þó ekki lokið þó að styttan sé kominn á sinn stað og stendur nú frágangur yfir þar sem meðal annars er hellulagður stígur að styttunni frá bílastæðunum á milli Landsbankans og Hvolsins.

Formleg vígsla fer fram á fæðingardegi Nínu Sæmundsson, höfundar verksins, þann 22. ágúst nk. en þá eru liðin 131 ár frá fæðingu hennar í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð.