Krakkarnir af elstu deild leikskólans Arkar á Hvolsvelli komu í heimsókn á skrifstofu sveitarfélagsins á dögunum. Þau aðstoðuðu einnig sveitarstjórann Anton Kára Halldórsson við að kveikja á ærslabelgnum sem hefur legið í dvala yfir vetrartímann.

Að sjálfsögðu ríkti mikil gleði og greinilegt að krakkarnir voru gríðarlega ánægð með að kveikt væri á belgnum eftir langan vetur.

Veðrið hefur leikið við okkur upp á síðkastið og greinilegt að sumarið nálgast.