Þar sem vetur er genginn í garð verða breytingar á heilsuræktinni hjá 60+ hópnum. Framvegis verða æfingar á þriðjudögum innanhús í Íþróttahúsinu á Hvolsvelli en þá verður hægt að ganga í salnum og Anna Rún verður með léttar styrktaræfingar. Sundleikfimin verður áfram á fimmtudögum.

Þriðjudagar kl. 10:10 - 10:50 í Íþróttahúsinu

Fimmtudagar kl. 10:00 - 10:45 í sundlauginni

Umsjón með heilsuræktinni hefur Anna Rún Einarsdóttir, íþróttafræðingur.