Þriðjudaginn 2. september fór 6. bekkur að Bleiksá við Berjanes og mældi árangurinn af gróðursetningunni sem gerð var í vor í tilraunareitum. Með í för voru Guðmundur Ingi og Ragnheiður frá Landvernd sem stjórna verkefninu. Mælingar á gróðurþekju reitanna var gerð af vísindalegri nákvæmni og verða niðurstöðurnar notaðar til frekari úrvinnslu í skólanum, bæði í stærðfræði og náttúrufræði. Þessir nemendur munu svo áfram fylgjast með framvindu góðurs í reitunum hvert haust næstu árin, en reitirnir eru alls fimmtíu talsins. Næsta vor fer svo 5. bekkur og leggur út sína reiti og svo koll af kolli.

Myndina tók Jón Stefánsson, umsjónamaður Grænfánaverkefnisins

Það er við hæfi að birta þessa frétt í dag á degi íslenskrar náttúru. Nemendur og kennarar í Hvolsskóla eiga hrós skilið fyrir vinnu sína í þágu náttúrunnar.