Leifur Bjarki, slökkviliðsstjóri og Birgir Óskarsson, slökkviliðsmaður Brunavarna Rangárvallasýslu
Leifur Bjarki, slökkviliðsstjóri og Birgir Óskarsson, slökkviliðsmaður Brunavarna Rangárvallasýslu

Þann 20. júlí héldu Brunavarnir Rangárvallasýslu sína árlegu skötuveislu fyrir starfsmenn og fjölskyldur þeirra.

Í veislunni færði Leifur Bjarki slökkviliðsstjóri, Birgi Óskarssyni þakklætisvott fyrir 50 ára starf í þágu Brunavarna Rangárvallasýslu. Birgir hóf stöf hjá Brunavörnum 1973 og hefur staðið vaktina síðan. Það er ekki sjálfgefið að veita starfskrafta sína á þessum vetvangi í svona langan tíma. Slökkviliðsstjóri tók það skýrt fram að ekki væri um kveðjugjöf að ræða, því Brunavarnir vilja að sjálfsögðu njóta starfskrafta Birgis eins lengi og hægt er.

Rangárþing eystra þakkar Birgi fyrir sín óeigingjörnu störf í þágu samfélagsins hingað til og sem endra nær.