Dagana 13. og 14. maí unnu nemendur 5. bekkjar við nýtt tilraunaverkefni sem nefnist Vistheimt og er í samvinnu við Landgræðslu ríkisins og Landvernd. Grunnskólinn Hellu og Þjórsárskóli taka einnig þátt í verkefninu, hvor á sínum heimaslóðum. Vistheimt er skilgreint sem það ferli að aðstoða við endurheimt vistkerfis sem hefur hnignað, skemmst eða verið eyðilagt. Verkefnið felst í því að gera tilraunir með mismunandi aðferðir við uppgræðslu örfoka lands sem dæmi mætti nefna sáningu mismunandi frætegunda, heyþakningu og áburðargjöf. Skólinn fékk sandspildu úr landi Berjaness í Landeyjum til þess að gera tilraunirnar á. Gerðir voru 50 tilraunareitir og þeir meðhöndlaðir vísindalega. Í haust munu krakkarnir fara aftur á staðinn og gera mælingar og talningar og vinna úr gögnum og skrá. Síðan munu þeir fara hvert haust það sem eftir er skólagöngu og fylgjast með framvindu gróðurmyndunar á sínum reitum. Næsta vor mun svo næsti 5. bekkur fara og útbúa sína reiti og síðan koll af kolli. Reiknað er með að verkefnið standi í a.m.k. í tíu ár.