Árið 2013 heimsóttu um 36 þúsund gestir sundlaugina á Hvolsvelli. Flestir gestir komu við í júlí eða um 6.300 manns.

Síðustu 4 ár hafa gestir verið um 33.600 að meðaltali og þarf af mikill meirihluti yfir sumartímann sem kemur lítið á óvart.

Aðstaðan í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli, bæði í sundlaug, líkamsrækt og íþróttasal er algjörlega til fyrirmyndar og það er vert að hvetja heimafólk að nýta sér þessa aðstöðu sem mest.