Óskað er eftir tveimur íbúðum til leigu. Leitað er eftir 2ja – 4ra herbergja íbúðarhúsnæði, einkum nýlegu eða viðhaldslitlu húsnæði í góðu ástandi. Til greina koma bæði íbúðir og/eða minni sérbýli. Leigusali mun sjá um viðhald skv. húsaleigulögum.
267. fundur Byggðarráðs verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, fimmtudaginn 14. nóvember 2024 og hefst kl. 11:30
331. fundur sveitarstjórnar verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, fimmtudaginn 14. nóvember 2024 og hefst kl. 12:00
Næringin skapar meistarann; næring fyrir heilbrigða framtíð. Elísa Viðarsdóttir er afrekskona í íþróttum, leikur meðal annars knattspyrnu með íslenska landsliðinu og knattspyrnufélaginu Val. Elísa mun mæta í Hvolsskóla og vera með fyrirlestur fyrir krakkana í 5. - 10. bekk fyrr um daginn en fyrir foreldra og aðra sem áhuga hafa kl. 17:00 í Hvolsskóla. Hún mun meðal annars fjalla um skaðsemi orkudrykkja fyrir ungmenni en einnig margt annað. Tilvalið að mæta í Hvolsskóla, hlusta á Elísu og taka svo spjallið við börnin sín.
Mánudagskvöldið 11. nóvember, klukkan 20:00, heldur Votlendissjóður, í samstarfi við Land og Skóg, Landbúnaðarháskólann og EFLU verkfræðistofu, upplýsingafund um vottaða endurheimt votlendis.