Á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) sem haldinn var miðvikudaginn 13. nóvember, var Noelinie Namayanja sem stundaði nám hjá Fræðslunetinu valin fyrirmynd í námi fullorðinna ásamt Sigurði K. Guðmundssyni sem stundaði nám hjá Mími. Viðurkenningin er veitt árlega þeim einstaklingum sem hafa breytt stöðu sinni eftir þátttöku í úrræðum FA, sýnt framúrskarandi árangur, frumkvæði, kjark og náð að yfirstíga ýmiss konar hindranir.
Rafmagnslaust verður í Austur Landeyjum Rangárþing eystra þann 18.11.2024 frá kl 13:00 til kl 16:00 vegna vinnu við dreifikerfið. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 5289000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Óskað er eftir tilboðum/verðkönnun í snjómokstur á tengivegum í Rangárþingi eystra 2024-2027. Verkkaupi er Rangárþing eystra og Vegagerðin. Umsjónaraðili verkkaupa verður Ólafur Rúnarsson Umsjónamaður fasteigna Rangárþings eystra, olirunars@hvolsvollur.is.
Verkföll standa ennþá yfir í einhverjum leik-, grunn-, og framhaldsskólum. Fsu er einn þeirra skóla sem er lokaður vegna verkfalls kennara. Fjölmörg ungmenni búsett í Rangárþingi eystra eru í Fsu og viljum í Rangárþingi eystra taka utan um ungmennin og viljum því bjóða þeim frítt í íþróttamiðstöðina og eins hefur verið opnað ungmennahús.
Laugardaginn 30. nóvember 2024, verður sem hér segir: Í Félagsheimilinu Hvoli „litla sal“ kjósa íbúar vestan Markarfljóts og Félagsheimilinu Heimalandi kjósa íbúar austan Markarfljóts Kjörstaðir verða opnir frá klukkan: 9:00 – 22:00 í Félagsheimilinu Hvoli 9:00 – 18:00 í Félagsheimilinu Heimalandi Kjósendur eru beðnir að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Austurvegi 4, Hvolsvelli á skrifstofutíma fram að kjördegi