Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.

 

Langanes – breyting á deiliskipulagi

Deiliskipulagsbreytingin tekur til 40 lóða við Langanesbyggð, F1. Heimilt verður að reisa alltað 4 hús, eitt frístundarhús, gestahús, geymslu og gróðurhús. Mænisstefna og húsgerðir eru frjálsar en hámarkshæð byggingar er 5 m. Hámarksbyggingarmagn er allt að 300 m² á hverri lóð. Með deiliskipulagsbreytingunni falla gildandi deiliskipulög úr gildi.

 

Kirkjulækjarkot, Bakki – nýtt deiliskipulag

Deiliskipulagstillagan tekur til 2 ha lóðar í landi Kirkjulækjarkots, Bakki 1. Heimilt verður að byggja fimm byggingar á lóðinni, s.s. íbúðarhús, gestahús, skemmu, gróðurhús eða gripahús, hámarksbyggingarmagn er allt að 1000 m² og hámarkshæð húsa er 6,5 m miðað við gólfkóta.

 

Ofangreindar tillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 19. maí 2025. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar og er athugasemdarfrestur veittur til og með 30.júní 2025. Athugasemdum skal skila í gegnum Skipulagsgáttina eða skriflega í Skipulagsgáttina eða til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.

 

F.h. Rangárþings eystra

Þóra Björg Ragnarsdóttir

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra