Ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegum stendur til boða garðsláttur sem geta ekki hjálparlaust hirt lóðir sínar. Markmið með þjónustunni er að aðstoða ellilífeyris- og örorkulífeyrisþega sem eru með 75% örorku.

Rétt til nýtingar þjónustunnar eiga ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegar með lögheimili í Rangárþingi eystra, sem hafa fasta búsetu og lögheimili í íbúðarhúsnæðinu þar sem þjónustunnar er óskað. Þjónustan er eingöngu veitt þar sem allir heimilismenn eru ellilífeyris- eða örorkulífeyrisþegar. Fari fram rekstur eða ef húsnæði sem ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegar eru með lögheimili á er í útleigu í styttri eða lengri tíma fellur réttur til garðsláttar niður.

Þjónusta er veitt allt að þrisvar sinnum á tímabilinu 1. júní til 20. ágúst ár hvert. Þjónustan felst í því að grasflatir innan skilgreindra lóðarmarka (þó að hámarki 1000 m2) eru slegnar og garðaúrgangur sem fellur til við slátt er hirtur. Ekki er boðið upp á önnur garðyrkjustörf. Garðflatir skulu vera aðgengilegar fyrir slátt. Ef um fjöleignarhús er að ræða er garðurinn sleginn í hlutfalli við eignarhlut viðkomandi, þ.e. ef eignarhluturinn er 1/3 af húsinu þá á viðkomandi rétt á garðslætti einu sinni á fyrrgreindu tímabili. Möguleiki er á röskun á slætti vegna veðurs og verður honum þá sinnt við fyrsta tækifæri.

Beiðni um slátt skal berast skrifstofu Rangárþings eystra s: 488-4200 eða á netfangið hvolsvollur@hvolsvollur.is. Áhaldahús ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd þjónustunnar.