Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.

 

Heylækur – nýtt deiliskipulag

Deiliskipulagstillagan tekur til tveggja lóða við Heylæk 8, L234629. Á hvorum byggingarreit verður heimilt að byggja 250 m² íbúðarhús, 50 m² gestahús og 300 m² skemmu.

 

Ofangreindar tillögu er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa á viðtalstíma. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar og er athugasemdarfrestur veittur frá 4.júlí til og með 15. ágúst 2025. Athugasemdum skal skila í gegnum Skipulagsgáttina eða skriflega í Skipulagsgáttina eða til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.

 

F.h. Rangárþings eystra

Þóra Björg Ragnarsdóttir

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra