62. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings eystra haldinn þriðjudaginn. 2. október, kl. 15:30 á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, Hvolsvelli. 

Mættir nefndarmenn: Anton Kári Halldórsson, Esther Sigurpálsdóttir, Víðir Jóhannsson, Lilja Einarsdóttir og Anna Runólfsdóttir og Guðmundur Úlfar Gíslason skipulags- og byggingarfulltrúi.

Anton Kári Halldórsson ritaði fundargerð. 
 
Efnisyfirlit:

SKIPULAGSMÁL:

1.1809050Hellishólar – Deiliskipulag - Breyting
2.1809055Moldnúpur 2 – Umsókn um skráningu nýrrar landeignar
3.1809056Miðkriki – Umsókn um skráningu nýrrar landeignar
4.1809057Hellishólar – Framlenging á stöðuleyfi
5.1809058Steinmóðarbær- Uppbygging ferðaþjónustu
6.1809059Miðtún 2 – Umsókn um skráningu nýrrar landeignar
7.1809060Hvolsvöllur – Umsókn um stöðuleyfi fyrir veitingavagn
8.1809061Gunnarsgerði – Umsókn um lóð
9.1511092Hvolsvöllur, miðbær – Deiliskipulag
10.1810002Skóla- og íþróttasvæði – Deiliskipulag
11.1710059Hvolsvöllur – Deiliskipulag nýrra íbúðasvæða
12.1806024Húsnæðisáætlun Rangárþings eystra
13.1810003Aðalskipulag Rangárþings eystra 2012-2024 - Endurskoðun

SKIPULAGSMÁL:

1.1809050Hellishólar – Deiliskipulag - Breyting
Hellishólar ehf. Og aðrir lóðarhafar sækja um heimild til að vinna breytingu á deiliskipulagi fyrir Hellishóla. Breytingin felst í að 10 lóðum við Réttarmóa og 3 lóðum við Gimbratún er breytt úr frístundalóðum í íbúðarlóðir. Unnin er samhliða breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra.
Víðir Jóhannsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins. Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  

2.1809055Moldnúpur 2 – Umsókn um skráningu nýrrar landeignar
Óskað er eftir skráningu á lóð út úr Moldnúpi 2 skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Verkfræðistofunni EFLU. Nýja lóðin fær heitið Moldnúpur 2a.
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við landskiptin og heitið á lóðinni.

  

3.1809056Miðkriki – Umsókn um skráningu nýrrar landeignar
Þorvaldur Ágústsson óskar eftir skráningu á lóð út úr Miðkrika skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Verkfræðistofunni EFLU. Nýja lóðin fær heitið Miðkriki 2.
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við landskiptin og heitið á lóðinni.
 

4.1809057Hellishólar – Framlenging á stöðuleyfi
Kjartan Kópsson óskar eftir því að stöðuleyfi, sem veitt var til eins árs í des 2017, verði framlengt um eitt ár frá og með sept 2018 til sept 2019.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til 12 mánaða með því skilyrði að teikningar og umsókn um byggingarleyfi fyrir fyrirhuguðu sumarhúsi verði lagðar inn til byggingarfulltrúa innan 12 mánaða frá veitingu stöðuleyfis.

5.1809058Steinmóðarbær- Uppbygging ferðaþjónustu
Sævar Þór Hallgrímsson óskar eftr áliti Skipulagsnefndar varðandi mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í landi Steinmóðarbæjar (15 ha landspilda fyrir sunnan þjóðveg).
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið. Til þess að hægt sé að taka formlega afstöðu til fyrispurnarinnar þarf að vinna nánari tillögu að skipulagningu svæðisins. 

6.1809059Miðtún 2 – Umsókn um skráningu nýrrar landeignar
Faco ehf / Eysteinn Arason óska eftir skráningu á lóð út úr Miðtúni 2 skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landnot ehf. Nýja lóðin fær heitið Miðtún 2a. Einnig er óskað eftir staðfestingu á leiðréttum landamerkjum. 
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við landskiptin, heitið á lóðinni og leiðrétt landamerki.

7.1809060Hvolsvöllur – Umsókn um stöðuleyfi fyrir veitingavagn
Hallgrímur Rögnvaldsson óskar eftir því að fá stöðuleyfi fyrri veitingavagn í miðbæ Hvolsvallar, n.t.t. þar sem A-bústaður er staðsettur (við hliðina á pósthúsi).
Skipulagsnefnd hafnar veitingu stöðuleyfis.

8.1809061Gunnarsgerði – Umsókn um lóð
Hildur Þóra Þorvaldsdóttir og Geir Sigurðsson Waage óska eftir að fá úthlutað lóðinni Gunnarsgerði 8 undir einbýlishús.
Skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar.

9.1511092Hvolsvöllur, miðbær – Deiliskipulag
Rangárþing eystra hefur á undanförnum misserum verið að vinna að endurskoðun miðbæjarskipulagsins á Hvolsvelli. Meginmarkmið við endurskoðun deiliskipulagsins er að skilgreina lóðir og byggingarmöguleika fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og íbúðir í miðbæ sem gegna munu mikilvægu hlutverki í þéttbýlinu á Hvolsvelli og sveitarfélaginu öllu. Endurgerð og breytingar á vegyfirborði þjóðvegar nr. 1 þar sem hann fer um þéttbýli Hovlsvallar er hluti deiliskipulagsáætlunarinnar. Gert er ráð fyrir breytingum á yfirborði vegarins og öðrum aðgerðum til að auka umferðaröryggi, draga úr umferðarhraða og gera veginn að bæjargötu. Hugað verður að bættum göngutengingum frá miðbæjarsvæðinu að öðrum hlutum þéttbýlisins. 
Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með 4 atkvæðum AKH, ES, VJ, LE. 
AR situr hjá við afgreiðsluna og óskar eftir að bóka eftirfarandi. 
AR Leggur til að farið verði yfir tæknilega útfærslu á hönnun hringvegarins áður en tillagan er auglýst. 
10.1810002Skóla- og íþróttasvæði – Deiliskipulag
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að hafin verði undirbúningur á vinnu við gerð deiliskipulags fyrir skóla- og íþróttasvæði. 

11.1710059Hvolsvöllur – Deiliskipulag nýrra íbúðasvæða
Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að hefja vinnu við hönnun og útfærslu á nýjum íbúðasvæðum á Hvolsvelli skv. gildandi aðalskipulagi. 

12.1806024Húsnæðisáætlun Rangárþngs eystra
Drög að húsnæðisáætlun Rangárþings eystra, lögð fyrir nefndina til kynningar. 
Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa og sveitarstjóra að vinna áfram að gerð húsnæðisáætlunar. 
 
13.1810003Aðalskipulag Rangárþings eystra 2012-2024 – Endurskoðun
Farið yfir gildandi aðalskipulag Rangárþings eystra. Í byrjun hvers kjörtímabils þarf sveitarstjórn að meta hvort ráðast skuli í endurskoðun aðalskipulags í heild eða að hluta. Mat nefndarinnar er að aðalskipulag Rangárþings eystra þarfnist endurskoðunar og beinir því til sveitarstjórnar að hefja undirbúning að þeirri vinnu. 

Fundi slitið 16:58

Anton Kári Halldórsson
Lilja Einarsdóttir
Esther Sigurpálsdóttir
Víðir Jóhannsson
Anna Runólfsdóttir