Fundargerð
51. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings eystra haldinn þriðjudaginn 20. júní 2017, kl. 16:00 í Litla-sal, Hvoli, Austurvegi 8, Hvolsvelli. 

Mættir nefndarmenn: Guðlaug Ósk Svansdóttir, Lilja Einarsdóttir, Þorsteinn Jónsson, Guðmundur Ólafsson, Víðir Jóhannsson og Anton Kári Halldórsson skipulags- og byggingarfulltrúi. 

Áheyrnarfulltrúar sveitarstjórnar: Ísólfur Gylfi Pálmason og Birkir Arnar Tómasson

Anton Kári Halldórsson ritaði fundargerð. 

Breyting á útsendri dagskrá. Samþykkt skv. ósk umsækjanda að taka eftirfarandi mál af dagskrá:
1706020Hlíðarvegur 15 – Umsókn um stöðuleyfi

Breyting á útsendri dagskrá. Samþykkt að bæta eftirfarandi erindi á dagskrá. 
1706032Skipulagsnefnd – Fjölgun funda



Efnisyfirlit:

SKIPULAGSMÁL:
1.1706031Ormsvöllur 7a - Lóðarumsókn
2.1706030Hvolstún 16 – Lóðarumsókn
3.1706029Hvolstún 25 - Lóðarumsókn
4.1706028Aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035 – Ósk um umsögn
5.1706027Stopiniceland – Umsókn um leyfi fyrir skilti
6.1706026Neðri-Dalur 2 - Landskipti
7.1706025Gimbratún 27 – Umsókn um stöðuleyfi
8.1706024Eystra-Seljaland Ú1 – Umsókn um stöðuleyfi
9.1706023Miðgrund - Landskipti
10.1706022Gunnarsgerði 2a-2h – Lóðarumsókn
11.1706021Básar – Umsókn um stöðuleyfi
12.1706019Stórólfsvöllur – Landskipti
13.1706018Austurvegur 3 – Leyfi fyrir hleðslustöð
14.1704016Eystra-Seljaland – Deiliskipulagsbreyting
15.1610082Miðdalur – Deiliskipulag
16.1610067Skíðbakki, Bryggjur – Deiliskipulag
17.1603062Hamragarðar/Seljalandsfoss – Aðalskipulagsbreyting
18.1502019Básar – Deiliskipulag
19.1502018Langidalur/Slyppugil – Deiliskipulag
20.1502017Húsadalur – Deiliskipulag
21.1309001Hamragarðar/Seljalandsfoss – Deiliskipulag
22.1706032Skipulagsnefnd – Fjölgun funda


SKIPULAGSMÁL:
1.1706031Ormsvöllur 7a - Lóðarumsókn
Guðjón Jónsson kt. 130258-4419, sækir um að fá úthlutað lóðinni Ormsvöllur 7a undir byggingu iðnaðarhúsnæðis. 
Skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar. 

2.1706030Hvolstún 16 – Lóðarumsókn 
Ingólfur Eyberg Kristjánsson kt. 211189-2159, sækir um að fá úthlutað lóðinni Hvolstún 16, undir bygigngu íbúðarhúss. 
Skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar. 

3.1706029Hvolstún 25 – Lóðarumsókn
Kristján Guðmundsson kt. 210548-4409, sækir um að fá úthlutað lóðinni Hvolstún 25, undir byggingu íbúðarhúss. 
Skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar. 

4.1706028Aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035 – Ósk um umsögn
Sigurður Smári Benónýsson f.h. Vestmannaeyjabæjar, óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna tillögu að aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035. 
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdi við tillögu að aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035

5.1706027Stopiniceland – Umsókn um leyfi fyrir skilti
Fjölnir Guðsteinsson kt. 200592-2719, f.h. Stopiniceland sækir um leyfi fyrir upplýsingaskilti í landi Berjanes, skv. meðfylgjandi gögnum. 
Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar í 72. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. 

6.1706026Neðri-Dalur 2 – Landskipti
Steinn Logi Guðmundsson kt. 230561-4359, óskar eftir því að skipta 2ha. lóð úr jörðinni Neðri-Dalur 2 ln. 163785, skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landnot ehf. dags. 12. maí 2017. Óskað er eftir því að hin nýja lóð fái heitið Neðri-Dalur 4.  Lögbýlisréttur mun áframa fylgja Neðra-Dal 2 ln. 163785. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á nýju lóðinni.

7.1706025Gimbratún 27 – Umsókn um stöðuleyfi 
Þórarinn Kópsson kt. 240660-3949 og Kjartan Kópsson kt. 121069-5409, sækja um stöðuleyfi fyrir stöðuhýsi á lóðinni Gimbratún 27, ln. 208121. Áætlað er að nýta hýsið sem aðstöðu á meðan byggingarframkvæmdum við sumarhús stendur. 
Víðir Jóhannsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins. Skipulagsnefnd samþykkir veitingu stöðuleyfis til eins árs. 

8.1706024Eystra-Seljaland Ú1 – Umsókn um stöðuleyfi
Ástvaldur Óskarsson kt. 1706024, sækir um stöðuleyfi fyrir aðstöðuhúsi á lóðinni Eystra-Seljaland Ú1, ln.224156, skv. meðfylgjandi gögnum. 
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu stöðuleyfis til eins árs. 

9.1706023Miðgrund – Landskipti
Bára Guðmundsdóttir kt. 290951-2329, óskar eftir því að skipta 10.952 m² lóð úr jörðinni Miðgrund ln. 163779, skv. Meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landnot ehf. dags. 7. júlí 2016. Óskað er efitr því að hin nýja lóð fái heitið Miðgrund 4. Lögbýlisréttur færist yfir á Miðgrund 4. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á nýju lóðinni. 

10.1706022Gunnarsgerði 2a-2h – Lóðarumsókn
Guðmundur Svavarsson f.h. Sláturfélags Suðurlands kt. 600269-2089, sækir um að fá úthlutað lóðunum Gunnarsgerði 2a-2h, undir byggingu raðhúss. 
Skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðanna. 

11.1706021Básar – Umsókn um stöðuleyfi
Gísli Sigmundsson f.h. Ferðafélagsins Útivist kt. 420475-0129, sækir um stöðuleyfi fyrir þremur samtengdum gámaeiningum í Básum, Goðalandi ln. 173438 skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu stöðuleyfis til eins árs. 

12. 1706019Stórólfsvöllur – Landskipti
Guðmundur Einarsson f.h. Héraðsnefndar Rangæinga kt. 490189-2549, óskar eftir því að skipta 211,9 ha. Spildu úr jörðinni Stórólfsvöllur 164196 skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landnot ehf. dags. 12. júní 2017. Óskað er eftir því að hin nýja spilda fái heitið Stórólfsvöllur vestri. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á nýju spildunni. 

13.1706018Austurvegur 3 – Leyfi fyrir hleðslustöð
Jón Sigurðsson f.h. ON kt. 521213-0190, sækir um leyfi til uppsetningar á hlöðu fyrir rafbíla á lóðinni Austurvegur 3 skv. meðfylgjandi gögnum. 
Skipulagsnenfd heimilar uppsetninguna skv. þeim skilmálum sem koma fram í umsókn ON.

14.1704016Eystra-Seljaland – Deiliskipulagsbreyting
Steinsholt sf. f.h. eigenda jarðarinnar Eystra- Seljalands, óskar eftir því að landnotkun á lóðunum Eystra-Seljaland F1, F2, F3 og Ú1 verði breytt úr landbúnaðarlandi í verslunar- og þjónustusvæði í aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Einnig er óskað eftir heimild til breytingar á deiliskipulagi sem m.a. gerir ráð fyrir byggingu hótels á lóðinni F3. 
Skipulagsnefd leggur til við sveitarstjórn að gerð verði breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 þar sem afmarkað verði verslunar- og þjónustusvæði. Einnig leggur nefndin til að breyting á deiliskipulagi verði heimiluð.  

15.1610082Miðdalur – Deiliskipulag
Lýsing deiliskipulags fyrir Miðdal hefur verið kynnt og send til umsagnar lögbundina umsagnaraðila. Lýsingin tók til tveggja lóða úr landi Miðdals. Markmið skipulagsins er uppbygging íbúðarhúsa og gestahúsa á spildunum. Á báðum lóðunum er áformað að byggja íbúðarhús og gestahús þar sem boðið verður upp á gistingu. Þó nokkur fjöldi athugasemda og umsagna barst á kynningartíma lýsingarinnar. 
Skipulagsnefnd fer yfir innkomnar athugasemdir og umsagnir. Einnig fer nefndin yfir viðbótarupplýsingar frá umsækjanda. Í ljósi fjölda athugasemda og umsagnar Skipulagsstofnunar telur skipulagsnefnd að ekki séu forsendur til að halda áfram vinnslu tillögunnar óbreyttri. Nefndin leggur til að landeigundur sumarhúsalóða innan lands Miðdals marki sameiginlega stefnu með gerð deiliskipulags fyrir svæðið í heild. 

16.1610067Skíðbakki, Bryggjur – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan tekur til um 2,6 ha landspildu úr jörðinni Skíðbakka 1. Gert er ráð fyrir þremur byggingarreitum fyrir byggingu íbúarhúss, viðbyggingu við núverandi gestahús og nýtt gestahús. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 27. mars, með athugasemdafresti til 8. maí 2017. Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum 9. maí 2017, þar til athugað hefði verið með hvort möguleiki væri á annari aðkomu að umræddu landi. 
Skipulagsfulltúi hefur kannað með landeigendum aðra kosti á vegtengingu. Sú vinna hefur ekki borið árangur. Skipulagsnefnd samþykkir því tillögun óbreytta og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

17.1603062Hamragarðar/Seljalandsfoss – Aðalskipulagsbreyting
Lögð fram til kynningar breyting á áður samþykktri tillögu. 
Skipulagsnefnd fer yfir málefni bæði aðal- og deiliskipulags við Hamragarða/Seljalandsfoss. Skipulagsfulltrúi og formaður skipulagsnefndar hafa einnig átt fund með Skipulagsstofnun vegna málanna. Skipulagsfulltrúi hefur óskað eftir því að Skipulagsstofnun fresti afgreiðslu sinni vegna málanna á meðan þau eru enn í vinnslu. Skipulagsnefnd tekur vel í framkomna tillögu að breytingu. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að láta vinna hana áfram og óska eftir áliti landeigenda, hagsmunaaðila og opinbera stofnana sem við eiga.  


18.1502019Básar – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga ásamt stefnumörkun, umhverfisskýrslu og yfirlitsuppdrætti. Deiliskipulagið tekur til um 38 ha. svæðis í Básum, Goðalandi. Svæðið nær yfir núverandi aðstöðu Útivistar, óbyggðs svæðis til austurs frá þeirri aðstöðu og austur að Strákagili. Afmarkaðar eru 6 misstórar þjónustulóðir. Sýndur er byggingarreitur fyrir hverja lóð. Í stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið er gerð grein fyrir svæðinu, þ.e. forsendum skipulagsins og mati á völdum stefnumiðum í umhverfisskýrslu. Deiliskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu var auglýst frá 28. nóvember 2016, með athugasemdafresti til 9. janúar 2017. Einnig var tillagan send til umsagnar lögbundinna umsagnaraðila. 
Engar athugasemdir bárust við tillögun á auglýsingartíma. Talsverður fjöldi umsagna barst og hefur verið brugðist við þeim með óverulegum breytingum á tillögunni. Skipulagsnefnd leggur fram minnisblað yfir innkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim dags. 20. júní 2017. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

19.1502018Langidalur/Slyppugil – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga ásamt stefnumörkun, umhverfisskýrslu og yfirlitsuppdrætti. Deiliskipulagið tekur til um 13 ha. svæðis í Langadal og Slyppugili. Svæðið nær yfir núverandi aðstöðu Ferðafélags Íslands og austur fyrir aðstöðu Farfugla í Slyppugili. Afmarkaðar eru 2 þjónustulóðir fyrir gistiskála og þjónustuhús fyrir ferðamenn, ásamt svæði fyrir tjaldsvæði. Afmörkuð er lóð fyrir núverandi aðstöðu Skógræktarinnar. Byggingarreitir eru sýndir á hverri lóð. Í stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið er gerð grein fyrir svæðinu, þ.e. forsendum skipulagsins og mati á völdum stefnumiðum í umhverfisskýrslu. Deiliskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu var auglýst frá 28. nóvember 2016, með athugasemdafresti til 9. janúar 2017. Einnig var tillagan send til umsagnar lögbundinna umsagnaraðila. 
Engar athugasemdir bárust við tillögun á auglýsingartíma. Talsverður fjöldi umsagna barst og hefur verið brugðist við þeim með óverulegum breytingum á tillögunni. Skipulagsnefnd leggur fram minnisblað yfir innkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim dags. 20. júní 2017. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

20.1502017Húsadalur – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga ásamt stefnumörkun, umhverfisskýrslu og yfirlitsuppdrætti. Deiliskipulagið tekur til um 30 ha. svæðis í Húsadal, auk göngubrúar yfir Markarfljót og aðkomu að henni. Afmarkaðar eru 9 mis stórar lóðir. Sýndur er byggingarreitur fyrir hverja lóð. Á þremur lóðum er gert ráð fyrir plássfrekri starfsemi auk bygginga, s.s. tjaldsvæði, afþreyingarsvæði eða aðstöðu fyrir hestaferðir. Í stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið er gerð grein fyrir svæðinu, þ.e. forsendum skipulagsins og mati á völdum stefnumiðum í umhverfisskýrslu. Deiliskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu var auglýst frá 28. nóvember 2016, með athugasemdafresti til 9. janúar 2017. Einnig var tillagan send til umsagnar lögbundinna umsagnaraðila. 
Engar athugasemdir bárust við tillögun á auglýsingartíma. Talsverður fjöldi umsagna barst og hefur verið brugðist við þeim með óverulegum breytingum á tillögunni. Skipulagsnefnd leggur fram minnisblað yfir innkomnar umsagnir og viðbrögð við þeim dags. 20. júní 2017. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

21.1309001Hamragarðar / Seljalandsfoss – Deiliskipulag
Lögð fram til kynningar breyting á áður samþykktri tillögu. 
Skipulagsnefnd fer yfir málefni bæði aðal- og deiliskipulags við Hamragarða/Seljalandsfoss. Skipulagsfulltrúi og formaður skipulagsnefndar hafa einnig átt fund með Skipulagsstofnun vegna málanna. Skipulagsfulltrúi hefur óskað eftir því að Skipulagsstofnun fresti afgreiðslu sinni vegna málanna á meðan þau eru enn í vinnslu. Skipulagsnefnd tekur vel í framkomna tillögu að breytingu. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að láta vinna hana áfram og óska eftir áliti landeigenda, hagsmunaaðila og opinbera stofnana sem við eiga.  

22. 1706032Skipulagsnefnd – Fjölgun funda
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsnefnd fundi að jafnaði tvisvar í mánuði vegna aukins málafjölda sem berst nefndinni. Gera þarf breytingu í samræmi við það á gr. 6 í erindisbréfi nefndarinnar. 

 
 Fundi slitið 18:19

________________________________________________________
Guðlaug Ósk SvansdóttirÞorsteinn Jónsson

________________________________________________________
Lilja EinarsdóttirGuðmundur Ólafsson

________________________________________________________
Víðir JóhannssonAnton Kári Halldórsson