Sveitarstjórn Rangárþings eystra

187. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, þriðjudaginn 20. maí 2014  kl. 16:10

Mætt:   Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Lilja Einarsdóttir, Guðlaug Ósk Svansdóttir, Birkir A. Tómasson, varamaður  Kristínar Þórðardóttur, Elvar Eyvindsson, Guðmundur Ólafsson,  Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri  og Haukur G. Kristjánsson, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum. 

Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Engar athugasemdir komu fram.
Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.


Dagskrá:


Erindi til sveitarstjórnar: 

1. Kjörskrá lögð fram og undirrituð.
Sveitarstjórn hefur yfirfarið kjörskrána, staðfest hana og felur sveitarstjóra að undirrita hana.

2. Tillaga um sölu eigna: 
a) Fossbrún
b) Öldubakki 19 
c) Öldubakki 23.

Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa eignirnar til sölu.

3. Kauptilboð í Öldubakka 19.

Samþykkt að taka fyrirliggjandi kauptilboði.

4. Hestamannafélagið Sindri, beiðni um reiðvegafé.

Samþykkt að veita styrk kr. 500.000,- Einn sat hjá BAT.

5. Endurnýjun mynda af býlum og ábúendum í Austur-Landeyjum í samvinnu við Minningarsjóð Guðmundar Jónssonar  frá Hólmi.

Samþykkt að veita styrk úr gjafasjóði systkinanna frá Bakka í Austur-Landeyjum að fjárhæð allt að kr. 300.000,-

6. 860+ Ljósmyndaklúbbur, Rangárþingi eystra, umsókn um styrk.
Samþykkt að veita styrk kr. 200.000,-

7. Skaftárhreppur, bréf dags. 07.05.14, uppgjör á fjármunum vegna fatlaðra vegna áranna 2012 og 2013. Samkvæmt uppgjörinu á Rangárþing eystra ógreiddar                     kr. 1.348.232,-
Sveitarstjórn samþykkir að greiða þá fjárhæð til sjóðsins.

Fundargerðir nefnda Rangárþings eystra:

1. Fundargerð skipulagsnefndar dags. 14.05.14

SKIPULAGSMÁL
1304018 Ytri-Skógar – Deiliskipulagsbreyting
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti á fundi sínum 8. maí 2014 eftirfarandi bókun. „Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir að fela skipulagsnefnd sveitarfélagsins að fá faglegt álit á tillögu að deiliskipulagsbreytingu við Ytri-Skóga. Tillagan ásamt fram komnum athugasemdum við hana verði send Rannsóknarsetri í Skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands sem er óháður aðili, til umfjöllunar og ráðgjafar. Þegar að niðurstöður rannsóknarsetursins liggja fyrir mun sveitarstjórn taka endanlega ákvörðun um framvindu málsins.“
Skipulagsfulltrúa falið að taka saman öll gögn varðandi málið og koma þeim til Rannsóknarseturs í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.
1301004 Aðalskipulag Rangárþings eystra 2012-2024
Aðalskipulagstillaga Rangárþings eystra 2012-2024 kynnt fyrir skipulagsnefnd. Breytingar hafa verið gerðar á tillögunni til að koma á móts við athugasemdir Skipulagsstofnunnar og umsagnir lögbundinna umsagnaraðila. 
Farið yfir helstu breytingar tillögunnar. Skipulagsfulltrúa falið að senda leiðrétta tillögu til Skipulagsstofnunnar. 
1403016 Hvolsvöllur – Lýsing aðalskipulagsbreytingar vegna eldfjallaseturs
Um er að ræða lýsingu aðalskipulagsbreytingar vegna stækkunnar miðsvæðis á Hvolsvelli. Viðfangsefni aðalskipulagsbreytingarinnar er breyting landnotkunar á svæði sem áðru var skilgreint sem íþróttasvæði og landbúnaðarsvæði norður af miðsvæði Hvolsvallar. Miðsvæði (M2) er samkvæmt því stækkað til norðvesturs um 4,5 ha og íþróttasvæðið og landbúnaðarsvæði minnkað að sama skapi. Stækkun miðsvæðis nær inn fyrir veghelgunarsvæði þjóðvegar í samræmi við fyrirhugaðar breytingar í heildarendurskoðun aðalskipulagsins, sem nú stendur yfir. Skilgreindri gönguleið á svæðinu er breytt. Aðrar breytingar verða ekki á landnotkun. 
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki lýsinguna. Lýsingin verði send til umsagna til lögbundinna umsagnaraðila og kynnt fyrir almenningi skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.
1405007 Hlíðarbakki – Óveruleg breyting á deiliskipulagi
Sigurlín Sveinbjarnardóttir kt. 030747-2329, óskar eftir samþykki á óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir jörðina Hlíðarbakka. Um er að ræða breytingu á fjölda lóða innan svæðisins. Lóðum fækkar úr 6 í 3. 
Að mati skipulagsnefndar er um óverulega breytingu á deiliskipulagi að ræða. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagsbreytinguna og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en landeiganda og sveitarfélagsins. 
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.
1405008 Hlíðarbakki – Landskipti
Sigurlín Sveinbjarnardóttir kt. 030747-2329, óskar eftir því að stofnaðar verði tvær lóðir úr jörðinni Hlíðarbakki ln.205651 skv. meðfylgjandi hnitsettum uppdrætti unnum af VSB verkfræðistofu dags. 7. maí 2014. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin.
Sveitarstjórn samþykkir landsskiptin.
1405011 Hellishólar - Landskipti
Víðir Jóhannsson f.h. Hellishóla ehf. kt. 4560105-2690, óskar eftir því að stofnaðar verði 3 lóðir úr jörðinni Hellishólar ln. 164018, skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landform dags. 12. maí 2014. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin. 
Sveitarstjórn samþykkir landsskiptin.


Sveitarstjórn samþykkir fundargerð skipulagsnefndar að öðru leyti.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:17

Haukur G. Kristjánsson              
Ísólfur Gylfi Pálmason
Guðlaug Ósk Svansdóttir    
Elvar Eyvindsson        
Birkir A. Tómasson               
Lilja Einarsdóttir
Guðmundur Ólafsson