Margrét Jóna Ísólfsdóttir fjármálastjóri Rangárþings eystra fer yfir fjárhagsáætlun Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir árið 2020. Fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða.
2.Nýbygging slökkvistöðvar á Hellu
1911021
Bygging nýrrar slökkvistöðvar gengur vel. Vinna við útboðsgögn stendur yfir og stefnt er að því að bjóða út seinnihluta framkvæmda um miðjan desember.
3.Gamla slökkvistöðin á Hellu; Matsgerð
1911022
Stjórn samþykkir að bjóða Rangárþingi ytra fasteignina til kaups á matsverði. Samþykkt samhljóða.
4.61. stjórnar Brunavarna; Önnur mál
1911023
Leifur Bjarki fer yfir stöðu mála varðandi gerð brunavarnaráætlunar. Vinna er langt komin og stefnt er að því að hún verði tilbúin til staðfestingar um áramót.
Fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða.