224. fundur
05. janúar 2023 kl. 08:15 - 09:47 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
Árný Hrund Svavarsdóttirformaður
Tómas Birgir Magnússonaðalmaður
Bjarki Oddssonvaramaður
Aðalmaður: Rafn Bergsson
Starfsmenn
Anton Kári Halldórssonsveitarstjóri
Margrét Jóna Ísólfsdóttirritari
Fundargerð ritaði:Margrét Jóna ÍsólfsdóttirSkrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdu við fundarboð, svo er ekki.
Formaður byggðarráðs óskar eftir að bæta þremur málum á dagskrá fundarins. Um er að ræða mál nr. 4 2111071 Skólaakstur; verktakasamningur og erindsbréf, mál nr 12 2301010 Katla jarðvangur; 65. fundur stjórnar og mál nr 13 2301011 Katla jarðvangur; 66. fundur stjórnar aðrir liðir færast eftir því. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðu.
1.Samtaka um hringrásarhagkerfi
2212059
Lögð fram til kynningar greinagerð í tengslum við átakið Samtaka um hringrásarhagkerfi. Greinagerðin varðar svæðisáætlanir sveitarfélaga skv. 6. gr. ákvæði laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Lagt fram til kynningar.
2.Sigurhæðir; Umsókn um styrk fyrir árið 2023
2210081
Erindinu var frestað á 304. fundi sveitarstjórnar og er nú komið aftur á dagskkrá. Lagt fram til umræðu erindi Sigurhæða þar sem óskað er eftir styrks til rekstar Sigurhæða, úrræðis við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi.
Byggðarráð samþykkir styrkveitingu að upphæð 669.000 króna til Sigurhæða, er upphæðin í samræmi við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
3.Seljalandsskóli; Ósk um lengingu leigusamnings
2212080
Lagt fram erindi Paradísarhellis ehf það sem óskað er eftir að leigusamningur vegna Seljalandsskóla verði lengdur úr 5 árum í 10 ár.
Sveitarstjóra falið að vinna drög að viðauka við leigusamning við Paradísarhellir. Sveitarstjóra er einnig falið að kanna möguleika á sölu á húsnæðinu. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
4.Skólaakstur; verktakasamningur og erindisbréf 2021
2111071
Lagt fram erindi Ásbjörns Óskarssonar ehf er varðar skólaakstur í sveitarfélaginu.
Samkvæmt gildandi verktakasamningi um skólaakstur er gagnkvæmur uppsagnarfrestur 3 mánuðir. Einnig bendir byggðarráð á að samkvæmt reglum um starfslok hjá Rangárþingi eystra getur starfsmaður unnið út 70 ára aldursárið. Reglurnar gilda einnig fyrir skólabifreiðastjóra. Því ber verktaka að uppfylla skilyrði samnings og reglna sveitarfélagsins. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samráði við verktaka, í samræmi við gildandi samning og reglur. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
5.Umsögn vegna tækifærisleyfi - Ungmennafélagið Dagsbrún
2212060
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna umsóknar Ungmennafélagsins Dagsbrúnar fyrir tækifærisleyfi þann 21. janúar 2023 í félagsheimilinu Gunnarshólma í tilefni af þorrablóti ungmennafélagsins.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
6.SASS; 588. fundur stjórnar; 26.10.2022
2212070
Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 588. fundar stjórnar Samtaka sunnslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram.
7.SASS; 590. fundur stjórnar
2212063
Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 590. fundar stjórnar Samtaka sunnslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram.
8.SASS; fundargerð aðalfundar 27.-28.október 2022
2212069
Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð aðalfundar Samtaka sunnslenskra sveitarfélaga.
Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 66. fundar stjórnar Kötlu Jarðvangs.
Lagt fram til kynningar.
14.Ársskýrsla Orkídeu 2021
2212089
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Orkídeu 2021.
Lagt fram til kynningar.
15.Jafnlaunavottun; staðfesting á vottun 2022
2301002
Vinnu við jafnlaunavottun sveitarfélagsins lauk í byrjun september sl. og í kjölfarið gerði vottunaraðilinn iCert úttekt á jafnlaunakerfi sveitarfélagsins. Nú liggur niðurstaða vottunar fyrir og hefur sveitarfélagið hlotið jafnlaunavottun.
Formaður byggðarráðs óskar eftir að bæta þremur málum á dagskrá fundarins. Um er að ræða mál nr. 4 2111071 Skólaakstur; verktakasamningur og erindsbréf, mál nr 12 2301010 Katla jarðvangur; 65. fundur stjórnar og mál nr 13 2301011 Katla jarðvangur; 66. fundur stjórnar aðrir liðir færast eftir því. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðu.