Umhverfisverðlaun Rangárþings eystra 2015 voru afhent á Kjötsúpuhátíðinni um síðustu helgi. Snyrtilegasta fyrirtækið er Landeyjahöfn og á móti verðlaununum tóku þau 
Sigmar Jónsson og Hólmfríður Kristín Helgadóttir. 
Agnes Hlín Pétursdóttir tók á móti umhverfisverðlaunum fyrir afa og ömmu sína á Ytri – skógum, þau Kristínu Þorsteinsdóttur og Sigurð Sigurjónsson en þau fengu verðlaun fyrir snyrtilegasta garðinn í Rangárþingi eystra
Félagsbúið Stóra Mörk hlaut verðlaun fyrir snyrtilegasta býlið í Rangárþingi eystra. Ásgeri Árnason og Ragna Aðalbjörnsdóttir tóku á móti verðlaununum. Með þeim á myndinni er Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri.