Fréttir og tilkynningar

17.júní hátíðardagskrá á Hvolsvelli

Við fögnum þjóðhátíðardeginum saman á Hvolsvelli miðvikudaginn 17. júní. Meistaraflokkur kvenna í KFR sér um og skipuleggur hátíðardagskrána í ár fyrir sveitarfélagið og er dagskráin hin glæsilegasta. Tilvonandi 10. bekkingar Hvolsskóla sjá um morgunmat í Hvolnum og eru allir velkomnir.

Fundarboð - 350. fundur sveitarstjórnar

350. fundur sveitarstjórnar verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, fimmtudaginn 11. júní 2026 og hefst kl. 12:00

Laufey Bistro opnar við Landeyjarhafnarveg.

Í dag hóf nýr veitingastaður, Laufey Bistro, starfsemi sína. Þetta er góð viðbót við þá þjónustu sem stendur íbúum og ferðafólki til boða hér á svæðinu.

Framtíðarskipulag SS-vallarins rætt á skrifstofu sveitarstjóra

Það var líflegt á skrifstofu sveitarstjóra á dögunum þegar Kristján Darri Antonsson bókaði viðtalstíma til að kynna hugmyndir sínar og teikningar að framtíðarskipulagi SS-vallarins á Hvolsvelli.

Laust til umsóknar - Kennsluráðgjafi

Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 100% starf á grunnskólastigi. Ráðið er tímabundið til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Laust til umsóknar starf yfirmanns í eldhúsi Kirkjuhvols

Kirkjuhvoll leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að taka að sér starf yfirmanns í eldhúsi. Um er að ræða 100% starf með ábyrgð á daglegum rekstri eldhúss, skipulagningu vinnu og leiðsögn starfsfólks.
  • Velkomin heim

    Sjáðu viðtöl við íbúa sveitarfélagsins

Samstarfsaðilar