344. fundur 08. janúar 2026 kl. 12:00 - 12:37 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Árný Hrund Svavarsdóttir aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
    Aðalmaður: Lilja Einarsdóttir
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Sigurmundur Páll Jónsson yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð. Oddviti óskar eftir því að fá að bæta einu máli á dagskrá fundarins, mál númer 4, 2410099 - Umhverfismat - Ferðaþjónustu við Holtsós undir Eyjafjöllum. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Í fundarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri,Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Árný Hrund Svavarsdóttir, Guri Hilstad Ólason í fjarveru Lilju Einarsdóttur, Rafn Bergsson, Bjarki Oddsson, og oddviti Tómas Birgir Magnússon. Margrét Jóna Ísólfsdóttir skrifstofu- og fjármálastjóri sem ritar fundargerð og Sigurmundur Jónsson sem sér um upptöku og útsendingarmál.

1.Minnisblað sveitarstjóra; 8. janúar 2026

2601001

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um helstu verkefni liðinna vikna.
Til mál tók:AKH
Lagt fram til kynningar.

2.Seljalandsfoss - Hamragarðar; Ósk um viðræður v. framtíðarfyrirkomulags

2601008

Hluti landeigenda við Seljalandsfoss sem saman fara með um það bil 60% eignarhlutdeild lands við Seljalandsfoss óska eftir viðræðum við Rangárþing eystra um framtíðarfyrirkomulag þjónustu við ferðamenn á svæðinu. Landeigendur sem standa að þessari ósk telja samkomulag milli landeigenda og sveitarfélagsins frá árinu 2018 vera grundvöll viðræðna. Vilji meirihluta landeigenda stendur til þess að vinna áfram með sveitarfélaginu á þeim grunni.
Til máls tóku: BO, TBM og AKH.
Sveitarstjórn hefur nú þegar, í ný samþykktri fjárhagsáætlun, ákveðið að hefja framkvæmdir á árinu 2026 við gerð nýs bílastæðis og göngustíga í landi Hamragarða í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Byggðarráð Rangárþings eystra samþykkti þann 26. ágúst 2025 að skipa þrjá fulltrúa í vinnuhóp sem hefði það hlutverk að vinna að nýju samkomulagi á milli aðila. Sú vinna hófst og var fundað í nokkur skipti, en skilaði engum árangri. Það er og hefur ávallt verið vilji sveitarfélagsins að vinna að málefnum og uppbygging Hamragarða/Seljalandsfoss í góðri samvinnu við aðra landeigendur. Sveitarstjórn samþykkir að þeir fulltrúar sem skipaðir voru af byggðarráði þann 26. ágúst 2025, fundi með þeim aðilum sem standa að erindi þessu og komist að niðurstöðu um hvort grundvöllur sé til frekara samstarfs. Sveitarstjóra falið að boða til fundar með aðilum.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

3.Njálurefill; Ósk um vilyrði fyrir sýningarrými

2511003

Stjórn Njálurefils ses. hefur óskað eftir því að fá vilyrði fyrir sýningarrými að Austurvegi 4, Hvolsvelli þegar húsnæði Krónunnar kemur til með að losna. Sveitarstjórn tók erindið fyrir á fundi sínum þann 13. desember 2025, þar sem því var frestað og óskað eftir nánari upplýsingum. Nú liggja þær upplýsingar fyrir og einnig fundaði sveitarstjórn með stjórn Njálurefils varðandi málið þann 5. janúar 2026.
TIl máls tóku: GHÓ og TBM.
Sveitarstjórn þakkar stjórn Njálurefils fyrir vel unnið erindi og skýra framsetningu. Umrætt húsnæði að Austurvegi 4 er í útleigu til þeirra aðila sem reka þar Krónuverslun a.m.k. til vorsins 2028. Sá tími er háður því hvort tímasetningar standast við byggingu nýrrar Krónuverslunar sunnan þjóðvegar. Eins og við þekkjum breytast hlutirnir fljótt vegna hinna ýmsu utanaðkomandi þátta. Þar sem að Krónan mun alltaf hafa forgang á leigu húsnæðisins er mjög óábyrgt að gefa út tímasetningar um hvenær annar aðili gæti leigt húsnæðið. Varðandi nýtingu húsnæðisins eftir að Krónan flyst þar út hefur lítið verð rætt um möguleika, enda um að ræða ráðstöðun talsvert fram í tímann. Ljóst er að húsnæðið sem er á besta stað við Þjóðveg nr. 1 á Hvolsvelli verður eftirsótt til margra hluta ef og þegar það losnar. Einn af möguleikunum væri að sjálfsögðu sú hugmynd sem hér er sett fram um m.a. sýningu Njálurefils. Sveitarstjórn lýsir sig reiðubúna að vinna áfram í góðu samráði við stjórn Njálurefils um framtíðar sýningaráform refilsins og þau tækifæri sem þar blasa við. Á grundvelli þess sem m.a. hér að framan greinir tekur sveitastjórn jákvætt í veitingu vilyrðis þegar nánari útfærslur liggja fyrir.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

4.Umhverfismat - Ferðaþjónusta við Holtsós undir Eyjafjöllum

2410099

Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna kynningar á umhverfismatsskýrslu við Holtsós undir Eyjafjöllum. Lögð fram til staðfestingar umsögn sveitarstjórnar Rangárþings eystra vegna umhverfisskýrslu vegna ferðaþjónustuuppbyggingar við Holtsós undir Eyjafjöllum.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða umsögn vegna umhverfismatsskýrslu við Holtsós undir Eyjafjöllum. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

5.Umsagnarbeiðni - Þorrablót Goðalandi 07.02.2026 - Búnaðarfélag Fljótshlíðarhrepps - kt. 650593-2199

2601007

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Búnaðarfélags Fljótshlíðarhrepps um tækifærisleyfi fyrir þorrablóti að Goðalandi.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

6.Umsagnarbeiðni - Þorrablót Gunnarshólma 24.01.2026 - Ungmennafélagið Dagsbrún - kt. 590974-0219

2601002

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Ungmennafélagsins Dagsbrúnar um tækifærisleyfi fyrir þorrablóti í Gunnarshólma.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

7.Skipulags- og umhverfisnefnd - 78

2512008F

Fundargerð 78. fundar skipulags- og umhverfisnefndar Rangárþings eystra lögð fram til staðfestingar.
Sveitarstjórn staðfestir fundargerð 78. fundar skipulags- og umhverfisnefndar Rangárþings eystra í heild sinni.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

8.Byggðarráð - 295

2512007F

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 295. fundar byggðarráðs Rangárþings eystra.
Sveitarstórn staðfestir fundargerð 295. fundar byggðarráðs Rangárþings eystra í heild sinni.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

9.Fjölskyldunefnd - 28

2512006F

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 28. fundar fjölskyldunefndar Rangárþings eystra.
Sveitarstjórn staðfestir fundargerð 28. fundar fjölskyldunefndar Rangárþings eystra í heild sinni.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
  • Fjölskyldunefnd - 28 Fjölskyldunefnd samþykkir sameiginlegt tímabil fyrir innritun og umsóknir í grunnskóla í samræmi við það sem fram kemur í erindi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
    Samþykkt samhljóða.
  • Fjölskyldunefnd - 28 Fjölskyldunefnd felur formanni nefndar að eiga samráð við ADHD samtökin og stofnanir á vegum sveitarfélagsins og kanna með hvort grundvöllur sé fyrir því að vinna fræðsluáætlun fyrir Rangárþing eystra.
    Samþykkt samhljóða.
  • Fjölskyldunefnd - 28 Fjölskyldunefnd þakkar fyrir greinargóða ársskýrslu og góða kynningu leikskólastjóra á henni. Fjölskyldunefnd lýsir yfir ánægju með hversu vel starfið gengur á leikskólanum Öldunni.

10.Bergrisinn; 90. fundur stjórnar - 01.12.2025 - Reglur Bergrisans um NPA

2512051

Fundargerð 90. fundar stjórnar Bergrisans bs. ásamt reglum Bergrisans um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk lögð fram til kynningar.
Fundargerð ásamt reglum um NPA lögð fram til kynningar.

11.Samband íslenskra sveitarfélaga; 991 fundur stjórnar - 12.12.2025

2512048

Fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

12.340. fundur Sorpstöðvar Suðurlands - 02.12.2025

2512045

Fundargerð 340. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

13.341. fundur Sorpstöðvar Suðurlands - 10.12.2025

2512046

Fundargerð 341. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlans lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

14.Staða gjaldtöku við Seljalandsfoss

2512034

Lagt fram til kynningar erindi Skúla Gunnars Sigfússonar fulltrúa 40% lands við Seljalandsfoss varðandi stöðu á gjaldtöku við Seljalandsfoss.
Til máls tóku: BO og AKH.
Erindi lagt fram til kynningar.

15.SASS; Fundaáætlun 2026

2512053

Lögð fram til kynningar fundaáætlun SASS fyrir árið 2026.
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjórn fagnar því að haustþing SASS verði haldið á Hvolsvelli í október 2026 og býður alla þinggesti velkomna í Rangárþing eystra.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 12:37.