343. fundur 11. desember 2025 kl. 12:00 - 13:05 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Árný Hrund Svavarsdóttir aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
    Aðalmaður: Bjarki Oddsson
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Sigurmundur Páll Jónsson yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð. Oddviti óskar eftir að fella eitt mál af dagsskrá, þar sem máið er tvítekið mál nr 11 2511072 Gjaldskrá og reglur fyrir skólaskjól Hvolsskóla 2026.
Samþykkt með sjö samhjóða atkvæðum.
Í fundarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri,Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Árný Hrund Svavarsdóttir, Lilja Einarsdóttir, Rafn Bergsson, Guri Hilstad Ólason í fjarveru Bjarka Oddssonar, og oddviti Tómas Birgir Magnússon. Margrét Jóna Ísólfsdóttir skrifstofu- og fjármálastjóri sem ritar fundargerð og Sigurmundur Jónsson sem sér um upptöku og útsendingarmál.

1.Minnisblað sveitarstjóra; 11. desember 2025

2512018

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um helstu verkefni liðinna vikna.
Til máls tóku: AKH, GHÓ.
Lagt fram til kynningar.
Bókun b-lista:
Að mati fulltrúa B-listans er ansi djúpt í árinni tekið hjá sveitarstjóra í minnisblaðinu sínu þegar hann fullyrðir eftirfarandi: "Það er sorglegt að horfa upp á það bakslag sem
hefur átt sér stað í okkar samfélagi varðandi stöðu og réttindi hinsegin fólks." Það má túlka orð hans eins og einhver breyting hafi átt sér stað varðandi réttindi hinsegin fólks í okkar sveitarfélagi. Réttindi hinsegin fólks á Íslandi eru lögfest og einnig er mannréttindasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna í gildi hér á landi. Hins vegar hefur átt sér stað bakslag í orðræðu hér á Íslandi, eins og annar staðar í heiminum og er sennilega viðtal við þingmann Miðflokksins í Kastljósi á RÚV ennþá ferskt í minni flestra.
Mikilvægt er að vanda orðræðu og umræðu varðandi hinsegin fólk og er gaman að segja frá því að þegar Samtökin ´78 koma með sína árlegu fræðslu í Hvolsskóla fær skólinn alltaf hrós fyrir t.a.m hversu sýnilegt fræðsluefni um hinseginleikann er í skólanum og einnig hvernig staðið er að hinsegin fræðslu í skólanum. Jafnréttisvika er ný afstaðin í skólanum og komu m.a.s tveir kennarar með kynningu fyrir jafnréttisráð Rangárþings eystra og kynntu kynjafræðikennslu í skólanum. Það er ábyrgð okkar allra að vanda orðbragð og umræðu og við þurfum að passa hvernig tekið er til orða.
Lilja Einarsdóttir,
Rafn Bergsson,
Guri Hilstad Ólason

2.Fjárhagsáætlun 2026-2029; seinni umræða

2512019

Fjárhagsáætlun 2026-2029 lögð fram til seinni umræðu. Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri fer yfir helstu niðurstöður áætlunarinnar og kynnir útdrátt úr greinargerð með fjárhagsáætlun.
Til máls tóku: AKH og LE.
Áætlun 2026 gerir ráð fyrir fjárfestingum að heildarupphæð 781 milljónum kr með fjárfestingum byggðarsamlaga að upphæð 35 milljónum.
Áætlaðar heildartekjur Rangárþings eystra 2026 (aðalsjóðs, A- og B hluta) nema alls 4,2 milljörðum króna. Heildarútgjöld án fjármagnsliða eru áætluð 3,85 milljarðar króna. Reiknaðar afskriftir 205 milljónir kr. Veltufé frá rekstri 415 milljónir.
Niðurstaða ársins 2026 án fjármagnsliða er áætluð 219 milljónir. Rekstrarniðurstaða 2026 jákvæð um 107,5 milljónir.
Í eignfærða fjárfestingu er varið...... 701 mkr.
Afborgun lána.......................... 161 mkr.
Tekin ný langtímalán................... 100 mkr.
Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 2.735 mkr.
Eigið fé er áætlað í árslok............ 4.159 mkr.

Sveitarstjórn lýsir yfir ánægju sinni með fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2026-2029. Ljóst er samkvæmt áætluninni að rekstur sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi til næstu ára. Áætlun næsta árs gerir ráð fyrir jákvæðri rekstarniðurstöðu A hluta um 107 milljónir, jákvæð niðurstaða A hluta er grunnur að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga. Áætlunin gerir ráð fyrir að samstæðan það er bæði A og B hluti skili 107,5 milljónum í rekstarafgang. Áætlun 2026 gerir ráð fyrir að skuldahlutfall haldi áfram að lækka og verði á næsta ári 63,9% og skuldaviðmið 46,7%.
Sveitarstjórn vill koma á framfæri þakklæti til fjármálastjóra, forstöðumanna stofnana sveitarfélagsins auk annarra starfsmanna sem komu að gerð áætlunarinnar.

Fjárhagsáætlun 2026-2029 samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.


Bókun fulltrúa B lista:
Fulltrúar B-lista vilja þakka fjármálastjóra, forstöðumönnum og sveitarstjórn allri fyrir ágæta samvinnu við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2026.
Gert er ráð fyrir góðri rekstrarafkomu sveitarfélagsins árið 2026 og útkomuspá ársins 2025 lítur vel út. Og fyrir slíkt ber að þakka.
Fyrst og fremst er það vegna hækkunar ákveðinna tekjustofna sveitarfélagsins.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis í Rangárþingi hækkar verulega á milli ára og því skapast þar svigrúm til lækkunar álagningarprósentu á íbúðarhúsnæði, en þannig komum við í veg fyrir verulegar hækkanir á fasteignagjöldum einstaklinga í sveitarfélaginu.
Eins og fram kemur munu greiðslur úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga hins vegar lækka umtalsvert, en það er einn af helstu tekjustofnum Rangárþings eystra.
Við viljum hins vegar vekja athygli á því að það er einmitt mikilvægast á tímum þar sem vel gengur að rýna reksturinn og gæta þess að hann þenjist ekki óhóflega út, enda getur orðið erfitt ef samdráttur verður í rekstrarumhverfi sveitarfélaga og þarf að draga úr þjónustu, það er ábyrgðarhluti sveitarstjórnar.
Við vinnu fjárhagsáætlunar ársins 2025 var einmitt samþykkt óformlega í sveitarstjórn að hefja formlega rekstarrýni sveitarfélagsins. Strax í janúar núlíðandi árs lögðu því fulltrúar B-lista fram formlega tillögu þess efnis að hefja formlega rekstarrýni á rekstri sveitarfélagsins í samstarfi við forstöðumenn deilda, enda teljum við, fulltrúar B-lista stöðuga rýni á rekstri sveitarfélagsins vera ábyrga fjármálastjórn, ekki síst á þenslutímum. Því miður felldi meirihlutinn þá tillögu.
Það er áhugavert að sú tillaga hafi var felld og hver stefna meirihlutans er í þeim málum.
Fjárfestingar:
Fjárfestingaráætlun næstu ára er metnaðarfull og margt þar sem við fulltrúar B-lista höfum lagt áherslu á, svo sem umferðaröryggismál, áætlun um endurnýjun gatna og lagna í eldri hverfum, metnaðarfullar aðgerðir í uppbyggingu íþróttamannvirkja og áhersla á íþrótta- og æskulýðsmál.

Við fulltrúar B-lista viljum því ávarpa það hér og brýna meirihlutann að það er ekki nægilegt að koma fram með metnaðarfullar fjárfestingaráætlanir ? það þarf að koma þeim í framkvæmd. Undanfarin ár hefur langt í frá gengið vel að koma öllum fjárfestingaliðum í framkvæmd og hafa þeir ýmist verið felldir niður, eða teknir upp aftur ár eftir ár í fjárfestingaráætlun. Slík vinnubrögð valda bæði óvissu í rekstri og skekkir forgangsröðun.
Það þarf skýrari verkefnastýringu, raunhæfari tímalínur og betri eftirfylgni. Við fulltrúar B-lista teljum mikilvægt að við tökum þetta alvarlega og finnum leið til að tryggja að fjárfestingaráætlun sé ekki bara listi á blaði heldur raunveruleg áætlun sem fylgt er eftir.

Lýðheilsa:
Við fulltrúar B-lista fögnum því að horft sé til þess að bæta aðgengi barna, ungmenna og íbúa okkar allra að íþróttastarfi og mannvirkjum á því sviði.
Við viljum hins vegar vekja athygli á því hve lítil hreyfing hefur verið í málaflokkum sem snúa að Heilsueflandi samfélagi og Barnvænu sveitarfélagi á árinu 2025. Við erum með samþykktar stefnur í þessum málum, en fundir eru fáir, fundargerðir þunnar og engin raunveruleg eftirfylgni sést í skjölum.
Það vantar skýra ábyrgð, tímalínur og framvinduskýrslur. Við leggjum því til að við setjum fram ársáætlun í samvinnu við ábyrgðaraðila verkefnanna og fáum reglulegar stöðuskýrslur. Þetta eru mál sem snúa að heilsu og velferð barna og fjölskyldna í sveitarfélaginu og á skilið af fá meiri athygli og eftirfylgd.

Guri Hilstad Ólason
Lilja Einarsdóttir
Rafn Bergsson

3.Húsnæðisáætlun Rangárþings eystra 2026

2511038

Lögð fram til staðfestingar endurskoðuð Húsnæðisáætlun Rangárþings eystra 2026.
Sveitarstjórn samþykkir framkomna húsnæðisáætlun fyrir árið 2026. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

4.Eyjagöng; Stofnframlag Rangárþings eystra

2512023

Óskað hefur verið eftir aðkomu Rangárþings eystra að félagi sem stofnað hefur verið í þeim tilgangi að fjármagna rannsóknir á jarðlögum milli lands og Vestmannaeyja. Að rannsóknum loknum og gefi þær góða niðurstöðu skal félagið meðal annars undirbúa, fjármagna, framkvæma og sjá um rekstur vegtengingar milli lands og Eyja. Forsvarsmenn félagsins hafa nú þegar kynnt áformin fyrir sveitarstjórn Rangárþings eystra.
Til máls tóku: AKH, RB, TBM.
Sveitarstjórn samþykkir að taka þátt í verkefninu, eins og það hefur verið kynnt, sem er framhald af vinnu starfshóps innviðaráðherra um fýsileika jarðganga með stofnframlagi að upphæð 15 m.kr. Stofnframlag verði fjármagnað með fjárfestingarviðauka sem lagður verður fyrir næsta fund sveitarstjórnar.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

5.Álagning fasteignagjalda 2026

2511065

Lögð fram til samþykktar tillaga að álagningu fasteignaskatta 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að álagningu fasteignaskatta 2026.

6.Reglur um afsláttt af fasteignaskatti 2026

2511078

Lögð fram tillaga að reglum um tekjutengdan afslátt eldri borgara og öryrkja af fasteignaskatti 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða reglur um tekjutengdan afslátt eldri borgara og öryrkja af fasteignaskatti 2026.

7.Gjaldskrá vatnsveitu 2026

2511076

Lögð fram gjaldskrá vatnsveitu Rangárþings eystra 2026. Tillaga er um að vatnsgjald lækki úr 0,16% af í 0,15% af fasteignamati húsa sem tengst geta vatnsveitu. Tillaga er um að aðrir liðir í gjaldskrá hækki um 3,5%.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá vatnsveitu 2026.

8.Gjaldskrá fráveita 2026

2511075

Lögð fram gjaldskrá fráveitu Rangárþings eystra 2026. Tillaga er um að vatnsgjald lækki úr 0,18% af í 0,17% af fasteignamati húsa, sem tengjast fráveitu í þéttbýli. Tillaga er um að aðrir liðir í gjaldskrá hækki um 3,5%.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fráveitu 2026.

9.Gjaldskrá Skógarveita 2026

2511074

Lögð fram gjaldskrá Skógarveitu 2026. Tillaga er um 3,5% hækkun á gjaldskrá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá Skógaveitu 2026.

10.Gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa 2026

2511073

Lögð fram gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa 2026.

11.Gjaldskrá skólaskjól Hvolsskóla 2026

2511077

Lögð fram gjaldskrá og reglur fyrir skólaskjól Hvolsskóla 2026. Tillaga er um 3,5% hækkun á gjaldskrá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða reglur og gjaldskrá fyrir skólaskjól Hvolsskóla 2026.

12.Gjaldskrá leikskóla 2026

2511071

Lögð fram gjaldskrá fyrir leikskólann Ölduna 2026. Tillaga er um 3,5% hækkun á gjaldskrá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá leikskólans Öldunnar 2026.

13.Gjaldskrá Íþróttamiðstöð 2026

2511070

Lögð fram gjaldskrá fyrir Íþróttamiðstöðina 2026. Tillaga er um 3,5% hækkun á gjaldskrá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá Íþróttamiðstöðvarinnar 2026.

14.Gjaldskrá fyrir hundahald 2026

2511069

Lögð fram gjaldskrá fyrir hundahald 2026. Tillaga er um 3,5% hækkun á gjaldskrá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fyrir hundahald 2026.

15.Gjaldskrá fyrir kattahald 2026

2511068

Lögð fram gjaldskrá fyrir kattahald 2026. Tillaga er um 3,5% hækkun á gjaldskrá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fyrir kattahald 2026.

16.Gjaldskrá fjallaskála 2026

2511067

Lögð fram gjaldskrá fyrir fjallaskála 2025. Tillaga er um 3,5% hækkun á gjaldskrá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fyrir fjallaskála 2026.

17.Gjaldskrá félagsheimila 2026

2511066

Lögð fram gjaldskrá fyrir félagsheimili 2026. Tillaga er um 3,5% hækkun á gjaldskrá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fyrir félagsheimili 2026.

18.Hvolsskóli; Skólanámsskrá 2025-2026

2511036

Lögð fram skólanámskrá Hvolsskóla 2025-2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða skólanámskrá Hvolsskóla 2025-2026.

19.Hvolsskóli; Starfsáætlun 2025-2026

2511035

Lögð fram starfsáætlun Hvolsskóla 2025-2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða starfsáætlun Hvolsskóla 2025-2026.

20.Deiliskipulag - Bergþórugerði, fjölgun parhúsa

2508036

Með deiliskipulagsbreytingunni er verið að fjölga par- og raðhúsum í Bergþórugerði, ÍB9. Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 13. september til og með 27. október 2025. Umsagnaraðilar gera engar athugasemdir við framlagða tillögu.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

21.Deiliskipulag - Bólstaður

2309030

Deiliskipulagstillagan tekur til 3,5 ha svæðis við Bólstað sem tilheyrir þjóðlendunni að Fljótshlíðarafrétt, L233962. Heimilt verður að viðhalda núverandi skála eða endurbyggja, hámarksstærð verður allt að 120 m² með geymslu auk þess að heimilt verður að byggja umhverfis rafstöð. Mænishæð og þakform er frjálst.

Við yfirferð Skipulagsstofnunar voru gerðar athugasemdir vegna ósamræmis um fjölda gistiplássa. Brugðist hefur verið við athugasemdum t.d. með því að umorða setningar til að koma í veg fyrir misskilning og nánari umfjöllun í greinargerð. Að mati skipulags- og umhverfisnefndar skal ekki afmarka bílstæði en bílum skal lagt innan byggingarreits til að halda viðkæmu umhverfi sem mestu óbreyttu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd og auglýst í B-deild stjórnartíðinda skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

22.Deiliskipulag - Rauðsbakki

2511090

Deiliskipulagstillagan tekur til 0,5 ha svæðis í landi Rauðsbakka, L163709. Gert er ráð fyrir 16, 20-30 m² húsum fyrir starfsfólk. Hámarksbyggingarmagn innan svæðisins er 530 m² og hámarkshæð húsa er 4 m frá gólfkóta. Lögð er áhersla á litla sjónmengun og náttúrulegt efni.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst og send til lögbundinna umsagnaraðila skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

23.Deiliskipulag - Ytra-Seljaland, heiði

2406007

Deiliskipulagstillagan tekur til níu frístundalóða úr landi Ytra-Seljalands, L163773, eða á 10 ha svæði. Heimilt verður að byggja sumarhús með geymslu eða allt að 230 m².



Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 22. ágúst til og með 3. október 2025. Veðurstofa Íslands telur ekki þörf á að fara í staðbundið hættumat og Brunavarnir Rangárvallasýslu fjalla um burðargetu vegarins og aðkomu slökkvibíla. Heilbrigðiseftirlitið bendir á að huga skuli að sameiginlegri fráveitu fyrir svæðið. Vegagerðin bendir á að ekki er hægt að halda vegtengingu óbreyttri þar sem hönnunin stenst ekki veghönnunarreglur og að tengingar á svæðinu séu of margar. Minjastofnun Íslands telur að búið sé að klæðskera lóðir frá minjum skv. heimildum en svæðið hefur verið fornminjaskráð. Stofnunin biðlar til landeiganda að vera meðvitaður um mögulegar minjar innan svæðisins og minnir á friðhelgunarsvæði fornminja. Umsögn Náttúruverndarstofnunar barst eftir að auglýsingartíma lauk en stofnunin bendir á að svæðið er í næsta nágrenni við náttúruminjasvæðið Seljalandsfoss og Gljúfrabúa sem nýtur sérstakrar verndar. Stofnunin leggur áherslu á að óvissa ríki um hversu sýnileg áhrif frístundabyggðin kunni að hafa áhrif á verndarsvæðið og að nauðsynlegt sé að framkvæma frekari sjónræna greiningu. Náttúruverndarstofnun bendir einnig á að forðast skuli röskun þeirra náttúrufyrirbæra sem falla undir náttúruvernd nema brýna nauðsyn beri til og ljóst er að aðrir kostir séu ekki fyrir hendi.



Fimm athugasemdir bárust frá einstaklingum sem skora á sveitarfélagið að hafna tillögunni. Í athugasemdunum kemur m.a. fram að áformin muni hafa áhrif á Seljalandsfoss vegna sjón- og ljósmengunar og að Seljalandsfoss sé ein af náttúruperlum Suðurlands og að það skuli vernda nærumhverfi fossins. Einnig er fjallað um möguleika á aukinni slysahættu. Gerð er krafa um grenndarkynningu vegna tillögunnar en skipulags- og umhverfisnefnd vísar í skipulagslög nr. 123/2010 en veruleg áform sem þessu eru auglýst en ekki grenndarkynnt.



Í ljósi athugasemda og umsagna leggur skipulags- og umhverfisnefnd til við sveitarstjórn að hafna framlagðri tillögu. Nefndin tekur undir með Náttúruverndarstofnun að Seljalandsfoss sé ein af helstu náttúruperlum Suðurlands og að það sé eitt af hlutverkum sveitarfélagsins að tryggja verndun fossins og umhverfis hans.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og hafnar framlagðri tillögu.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

24.Deiliskipulag - Kirkjuhvollsreitur, sértækt íbúðarhúsnæði

2505070

Með breytingunni er gert ráð fyrir sértæku íbúðarhúsnæði við Öldubakka og Dalsbakka. Gert er ráð fyrir sex íbúðum og starfsmannaaðstöðu, eða allt að 600 m² á einni hæð. Hámarksmænishæð er 6,5 m. Viðbyggingarmöguleikar við Heilsugæsluna minnka um 100 m² og hjúkrunarheimilis minnka um 750 m² á byggingarreit B1. Byggingarreitir B2 og B3 haldast óbreyttir.

Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 13. október til og með 24. nóvember 2025. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Vegagerðin og Eldvarnareftirlit Rangárvallasýslu gera ekki athugasemdir. Míla, Veitur og Rarik hafa kynnt sér tillöguna og óska eftir samráði á framkvæmdartíma. Hjúkrunarheimilið Kirkjuhvoll hefur kynnt sér tillöguna og gerir ekki athugasemd en Heilbrigðisstofnun Suðurlands gerði athugasemd fyrst um sinn en eftir samráðsfund með forstöðumönnum hefur athugasemdin verið dregin til baka.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: LE, GHÓ, AKH
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með 5 atkvæðum, AKH, ÁHS, SKV, TBM, RB, einn situr hjá GHÓ, einn á móti LE.

Bókun LE vegna atkvæðagreiðslu:
Ég vil byrja á því að fagna því að búsetuúrræði fyrir fatlað fólk rísi nú í Rangárþingi eystra enda búið að vera lengi í undirbúningi og mikilvægt úrræði sem við viljum svo sannarlega byggja upp.
Atkvæði mitt beinist einungis gegn þeirri deiliskipulagsbreytingu sem fyrirhuguð er á Kirkjuhvolsreit þar sem gert er ráð fyrir að umrætt húsnæði rísi.
Mín skoðun er sú að velja hefði átt aðra staðsetningu fyrir húsnæðið í samræmi við rök umsækjenda lóðarinnar, enda stóðu fleiri lóðir til boða.
Því hef ég ítrekað komið á framfæri án árangurs svo ég sé mér því ekki annað fært en að greiða atkvæði gegn tillögunni og standa þannig með skoðun minni og einlægri sannfæringu.
Mikilvægt er að mínu mati að verja það svæði sem þegar hefur verið deiliskipulagt á Kirkjuhvolsreit, með framtíðarstækkunarmöguleika fyrir öldrunar- og heilbrigðisþjónustu að leiðarljósi. Rök hafa verið færð fyrir því ítrekað að það sé nóg byggingarrými samt, en við metnaðarfulla deiliskipulagsgerð á sínum tíma þótti ástæða til að varðveita þetta svæði til framtíðar og er það enn mín skoðun.
Lilja Einarsdóttir
Fulltrúi B-lista


25.Deiliskipulag - Ytri-Skógar, breytingar á byggingarlóð við Skógasafn

2511053

Deiliskipulagsbreytingin tekur til svæðis innan lóðar Byggðasafnsins á Skógum. Bætt er við byggingarreit fyrir nýtt hús í minningu Þórðar Tómassonar og núverandi byggingarreitur við samgöngusafnið er fært til norðurs frá húsinu.

Skipulags- og umhverfisnefnd telur deiliskipulagsbreytinguna óverulega og leggur til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu. Nefndin leggur til að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

26.Umhverfismat - Ferðaþjónusta við Holtsós undir Eyjafjöllum

2410099

Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna kynningar á umhverfismatsskýrslu við Holtsós undir Eyjafjöllum.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur fram drög að umsögn vegna umhverfisskýrslu við Holtsós undir Eyjafjöllum.
Til máls tók: AKH.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu erindisins.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

27.Merkjalýsing - Eyvindarmúli

2511022

Merkjalýsingin tekur til jarðarinnar Eyvindarmúli vestri, L224447 en verið er að stofna þrjár nýjar landeignir.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landskiptin og hið nýja staðfang.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar ásamt hinu nýja staðfangi.

28.Byggðarráð - 293

2511007F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 293. fundar byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

29.Byggðarráð - 294

2512002F

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 294. fundar byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

30.SASS; 631. fundur stjórnar - 05.12.2025 - ýmis fylgigögn

2512021

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 631. fundar stjórnar SASS.
Til máls tók: AKH.
Tekinn er sérstaklega fyrir liður 4 í fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) frá 5. desember 2025 vegna breytinga á umgjörð og rekstri SOS sem þarfnast aðkomu SASS.
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leiti aðkomu SASS að verkefninu í samræmi við fyrirliggjandi ályktanir aðalfundar SOS og fyrirliggjandi samningsdrög.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Fundargerð að öðru leiti lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:05.