342. fundur 13. nóvember 2025 kl. 12:00 - 13:01 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Árný Hrund Svavarsdóttir aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Sigurmundur Páll Jónsson yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Tómas Birgir Magnússon oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.
Oddviti óskar eftir að fá að bæta einu máli á dagskrá fundar, máli númer 1, fundargerð 292. fundar byggðarráðs. Aðrir liðir færast eftir því. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Í fundarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson, Árný Hrund Svavarsdóttir, Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Lilja Einarsdóttir, Rafn Bergsson, Bjarki Oddsson og oddviti Tómas Birgir Magnússon sem stjórnar fundi. Margrét Jóna Ísólfsdóttir sem ritar fundargerð og Sigurmundur Páll Jónsson sem sér um tækni- og útsendingarmál.

1.Byggðarráð - 292

2511004F

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 292. fundar byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

2.Fjárhagsáætlun 2026-2029; fyrri umræða

2511017

Fjárhagsáætlun lögð fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Áætlunin hefur verið unnin af fjármálastjóra og sveitarstjórn á vinnufundum sveitarstjórnar. Á vinnufundina hafa allir fulltrúar sveitarstjórnar verið boðaðir og tekið virkan þátt í vinnunni. Sveitarstjórn hefur fengið ýtarlega kynningu á fjárhagsáætluninni á fundi byggðarráðs fyrr í dag.
Sveitarstjórn vísar afgreiðslu fjárhagsáætlunar til 2. umræðu.
Samþykkt samhljóða.

3.Minnisblað sveitarstjóra; 13. nóvember 2025

2511020

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um helstu verkefni liðinna vikna.
Til máls tók: AKH.
Lagt fram til kynningar.

4.Menningarsjóður Rangárþings eystra; haust úthlutun 2025

2510052

Á 30. fundi Markaðs- og menningarnefndar var tekið fyrir málið Menningarsjóður Rangárþings eystra; haustúthlutun 2025. Eftirfarandi bókun var samþykkt: Alls bárust 12 umsóknir sem allar stóðust úthlutunarreglur sjóðsins. Óskað var eftir 7.755.000,-úr sjóðnum en til úthlutunar var 1.750.000,-

Markaðs- og menningarnefnd leggur til að eftirfarandi verkefni hljóti styrk úr haustúthlutun Menningarsjóðs Rangárþings eystra.



Kór Hvolsskóla - Jólatónleikar Kórs Hvolsskóla - 225.000,-

Sæbjörg Eva Hlynsdóttir - Söngstund - 200.000,-

Sara Mjöll Magnúsdóttir - Tónleikar - 100.000,-

Markús H. Guðmundsson - Jólatónleikar Stofubandsins - 100.000,-

860 Félag áhugaljósmyndara - Sumarsýning 2025 - 200.000,-

Midgard Adventure - Menningarveisla á Midgard - 100.000,-

Anna Sigríður Valdimarsdóttir - Vortónleikar Vox Rangárþing - 100.000,-

Ingibjörg Erlingsdóttir - Konur - 150.000,-

Félags Sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu - Dagur Sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu - 100.000,-

Hringur, kór eldri borgara í Rangárvallasýslu - Hringur 20 ára - 175.000,-

Leikfélag Rangæinga - Klerkar í Klípu - 200.000,-

Rótarýklúbbur Rangæinga - Austurleiðarstofa í Skógasafni. - 100.000,-
Sveitarstjórn samþykkir með sjö samhjóða atkvæðum haustúthlutun Menningarsjóðs Rangárþings eystra.
Hlé gert á fundi kl 12:15.

5.Njálurefill; Ósk um vilyrði fyrir sýningarrými

2511003

Á 291. fundi byggðarráðs var málið tekið fyrir.

Lagt fram erindi stjórnar Njálurefisl ses þar sem óskað er eftir vilirði fyrir sýningarrými undir Njálurefilinn að Austurvegi 4, Hvolsvelli.

Eftirfarandi bókin var samþykkt:

Byggðarráð tekur vel í erindið og vísar því til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Samþykk með þremur samhjóða atkvæðum.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið.
Sveitastjórn óskar eftir nánari upplýsingum frá stjórn Njálurefils t.d. varðandi hversu stórt rými er óskað eftir að leigja, hverjar yrðu áætlaðar leigugreiðslur til sveitarfélagsins, almennt um nánanra rekstrarfyrikomulag sýningarinnar.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu erindisins þar til nánari upplýsingar liggja fyrir.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Fundur hefst aftur 12:37

6.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.; Gjaldskrá 2026

2511018

Lögð fram til samþykktar gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu 2026.
Til máls tóku: RB, BO,TBM, AKH og LE.
Sveitarstjórn samþykkir með sjö samhjóða atkvæðum gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu 2026.

7.Samþykkt um sölu- og matarvagna í Rangárþingi eystra

2510020

Lögð er fram tillaga að samþykkt um sölu- og matarvagna í Rangárþingi eystra.

Skipulags- og umhverfisnefnd og byggðarráð Rangárþings eystra gerir ekki athugasemd við framlagða samþykkt og leggur til við sveitarstjórn að samþykktin verði samþykkt.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir framlagða samþykkt um sölu- og matarvagna í Rangárþingi eystra. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

8.Umsókn um byggingarheimild - Mastur við Rauðsbakka

2509078

Neyðarlínan óskar eftir byggingarheimild fyrir 8 m mastri fyrir síma og netaðgangsþjónustu til að halda lögheimilum og vinnustöðum með heilsárs atvinnustarfsemi. Fyrirhuguð staðsetning er við Rauðsbakka en sú staðsetning er talin henta vel og styrkja fjarsímasamband verulega.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdarleyfi verði veitt án grenndarkynningar þar sem samþykki landeigenda liggur fyrir.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

9.Umsögn um mat á umhverfisáhrifum - Neðansjávarvatnsleiðsla til Vestmannaeyja

2510064

Umsagnarbeiðni barst til Rangárþings eystra vegna neðansjávarvatnsleiðsla til Vestmannaeyja. Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlögð drög að umsögn um mat á umhverfisáhrifum um neðansjávarvatnsleiðslu til Vestmannaeyja.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við umsögnina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að senda hana til Skipulagsstofnunar.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

10.Merkjalýsing - Skyggnir

2407060

Landeigandi óskar eftir að stofna tvær lóðir úr Skyggnir, L233247 skv. meðfylgjandi merkjalýsingu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að landskiptunum verði hafnað. Í aðalskipulagi sveitarfélagsins kemur skýrt fram að halda skuli vegtengingum í lágmarki og hægt er að fara aðrar leiðir.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

11.Aðalskipulag - Móbakki

2510062

Með aðalskipulagslýsingunni er verið að afmarka nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði (SL) með heimild til fastrar búsetu. Auk þess verður skilgreind samfélagsþjónusta fyrir dýraspítala og verslunar- og þjónustusvæði fyrir gistingu.

Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér lýsinguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og kynnt skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunnar til athugaunar fyrir auglýsingu í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

12.Aðalskipulag - Brekkur

2408019

Með aðalskipulagsbreytingunni er gert ráð fyrir 5 ha verslunar- og þjónustusvæðis ásamt 11 landbúnaðarspildum með möguleika á fastri búsetu og minniháttar landbúnaði, á 2-6 ha spildum.

Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér aðalskipulagsbreytinguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst samhliða deiliskipulagstillögu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að aðalskipulagsbreytingin verði auglýst samhliða deiliskipulagstillögu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

13.Deiliskipulag - Brekkur

2305081

Deiliskipulagstillagan tekur til 60 ha svæðis úr jörðinni Brekkur, L164160. Tillagan gerir ráð fyrir 11 landbúnaðarlóðum og tveimur undir verslun- og þjónustu. Á landbúnaðarlóðunum verður heimilt að byggja íbúðarhús, útihús og vera með minniháttar atvinnustarfsemi. Heildarbyggingarmagn er allt að 1.500 m² og hámarkshæð íbúðarhúss er allt að 7, 0 m en annarra bygginga er 0,9 m. Á verslunar- og þjónustulóðunum Brekkutún 1, verður heimilt að byggja 8 gestahús eða 320 m² en á Brekkutúni 2 verður heimilt að byggja 22 gestahús, 40 m² að stærð, ásamt 120 m² þjónustuhúsi. Mænishæð gestahúsa verður allt að 3,5 m að hæð en þjónusthúss verður 5 m.

Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

14.Deiliskipulag - Vistarvegur 2-8, ÍB23

2510007

Með deiliskipulagsbreytingunni er gert ráð fyrir að tveimur parhúsalóðum verði breytt í eina lóð fyrir allt að 16 íbúðir á 1.400 m² lóð, hámarkshæð húsa verður 7,5 m. Samhliða er bílastæðum fjölgað úr 12 í 16.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu og send til lögbundinna umsagnaraðila skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

15.Deiliskipulag - Austurvegur 1-3

2503076

Deiliskipulagstillagan tekur til lóðanna við Austurveg 1-3 en með breytingunni er verið að sameina fjórar lóðir, auka byggingarmagn við Austurveg 1 og gera ráð fyrir hleðslugarði fyrir stærri ökutæki. Samhliða eru gerðar minniháttar breytingar á hótelreit við Lyngmóa 5.

Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 24. júlí til og með 10. september 2025. Náttúruverndarstofnun telur ekki þörf á að veita umsögn á tillöguna, Heilbrigðiseftirlitið og Vegagerðin gera engar athugasemdir en Brunavarnir Rangárvallasýslu leggja til að koma fyrir brunahana við fjölorkustöðina.

Rarik, Veitur og Míla benda á lagnir á svæðinu en hönnun gatnagerðar fyrir Suðurlandsveg í gegnum Hvolsvöll gera ráð fyrir lögnum á svæðinu og er hluti af þeirri hönnunarvinnu sem er nú í vinnslu.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofunnar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

16.Deiliskipulag - Stórólfsvöllur

2510037

Deiliskipulagstillagan tekur til 7,5 ha athafnasvæðis úr Stórólfsvelli. Gert er ráð fyrir 9-13 lóðum fyrir m.a. atvinnustarfsemi, léttan iðnað og vörugeymslu. Nýtingarhlutfall lóðanna er 0,5 og hámarkshæð mænis er 12 m en 10 m á lóðunum meðfram þjóðveginum.

Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

17.Deiliskipulag - Efri-Úlfsstaðir

2510075

Deiliskipulagsbreytingin fyrir Efri-Úlfsstaði, L163853 gerir ráð fyrir breyttri afmörkun byggingarreits B2, miðstöð fyrr ferðaþjónustu. Hámarksbyggingarmagn á B2 verður 1.000 m² og hámarkshæð er allt að 7 m.

Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

18.Deiliskipulag - Ytri-Skógar, Hérðasskólinn

2501070

Deiliskipulagsbreytingin tekur til Skólavegs 1, L163674 þar sem áður var héraðsskóli Skóga. Með breytingunni er gert ráð að hámarks byggingarmagn á lóðinni verði 8.700 m² og allt að þremur hæðum. Gert er ráð fyrir 78 bílastæðum.

Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 22. ágúst til og með 3. október 2025. Vegagerðin og Veðurstofa Íslands gera ekki athugasemd við tillöguna. Brunavarnir Rangárvallasýslu benda á að gera þurfi ráð fyrir brunahana við hótelið. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bendir á að í athugasemdinni kemur fram að neysluvatn komi frá Veitum og að fráveita verði leidd í núverandi hreinsivirki ásamt því að benda á að hreinsivirki fyrir yfir 50 mann eru háð starfsleyfi. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að Rangárþing eystra er með umsjón um fráveitu, hitaveitu og öflun neysluvatns. Minjastofnun mælist til þess að inn í skilmálum deiliskipulagsins verði bætt ákvæði um það að tillöguuppdrættir að fyrirhugaðri stækkun skólahússins komi til umsagnar Minjastofnunar. Náttúruverndarstofnunar bendir á að svæðið er milli tveggja verndarsvæða sem bæði hafa hátt landslags- og ásýndargildi. Stofnun telur mikilvægt að meta byggingarmagn og hæð viðbyggingarinnar upp á heildarmynd svæðisins. Einnig er fjallað um bílastæði og gönguleiðir milli staða. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að verið er að vinna að samfelldri gönguleiðum á milli staða en sú tillaga verði lögð fyrir stofnunina en eigi ekki við umrædda breytingu.

Rangárþing Ytra gerir engar athugasemdir við framlagða tillögu og Skaftárhreppur veitti ekki umsögn. Ásahreppur gerir ekki athugasemd en vísar málinu til landeigenda sem eru upptalin sveitarfélög á samt Rangárþingi eystra. Mýrdalshreppur mælist til þess að tillagan verði rædd á vettvangi landeigenda áður en að málið verði unnið frekar.

Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir umsagnir Minjastofnunnar og Náttúruverndarstofnun, viðbyggingin skuli ekki draga athygli frá gamla Héraðskólanum sem hefur menningar- og sögulegt mikilvægi fyrir Skóga, bæta skuli við í greinargerð að Minjastofnun skuli samþykkja aðaluppdrætti fyrir viðbyggingu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunnar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

19.Deiliskipulag - Háeyri

2307038

Um er að ræða deiliskipulagstillögu fyrir frístundarhúsi að Háeyri, L231231. Heimilt veðrur að byggja eitt frístundarhús og gestahús. Hámarksbyggingarmagn verður 130 m² og hámarkshæð veðrur 5 m frá gólfplötu.

Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 13:01.