339. fundur 12. júní 2025 kl. 12:00 - 13:22 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Elvar Eyvindsson varamaður
    Aðalmaður: Anton Kári Halldórsson
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Sandra Sif Úlfarsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Árný Hrund Svavarsdóttir
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
    Aðalmaður: Bjarki Oddsson
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Sigurmundur Páll Jónsson yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Tómas Birgir Magnússon oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.
Oddviti óskar eftir leyfi fundar til að bæta tveimur málum á dagsskrá. Mál nr. 17, 279. fundur byggðarrás og mál nr 18, 280. fundur byggðarráðs.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Í fundarsalnum sitja Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Elvar Eyvindsson í fjarveru Antons Kára Halldórssonar, Sandra Sif Úlvarsdóttir í fjarveru Árnýar Hrundar Svavarsdóttur,Lilja Einarsdóttir, Rafn Bergsson, Guri Hilstad Ólason í fjarveru Bjarka Oddssonar og oddviti Tómas Birgir Magnússon.
Sigurmundur Jónsson markaðs- og kynningarfulltrúi sem sér um útsendinguna og Margrét Jóna Ísólfsdóttir skrifstofu- og fjármálastjóri sem ritar fundargerð en hún situr einnig fundinn sem staðgengill sveitarstjóra í fjarveru Antons Kára.

1.Kosning oddvita og varaoddvita

2205115

Í samræmi við 7.gr samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra skulu oddviti og varaoddvi kosnir til eins árs í senn.
Tillaga er um að Tómas Birgir Magnússon verði kjörin oddviti og Sigríður Karólína Viðarsdóttir varaoddviti.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

2.Kosning í byggðarráð

2406028

Tillaga um skipan í Byggðarráð, sbr 1. mgr 49. gr samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra 810/2022.
Byggðarráð, kosið til eins árs í senn, 3 aðalmenn. Aðalmenn: Árný Hrund Svavarsdóttir, Bjarki Oddsson og Tómas Birgir Magnússon. Varamenn taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir í sveitarstjórn þegar aðalmenn forfallast sbr 27. grein samþykkt um stjórn Rangárþings eystra.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

3.Sumarleyfi sveitarstjórnar 2025

2506030

Sveitarstjórn Rangárþings eystra gerir tillögu að sumarleyfi sveitarstjórnar skv. 8. gr. 3 kafla um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra. Í sumarleyfi sveitarstjórnar fer byggðarráð með störf og ákvarðanir sem sveitarstjórn hefur ella skv. 32. gr. 5. kafla um stjórn Rangárþings eystra. Sumarleyfi er frá 10. júlí til 11. september 2025 og falla því sveitarstjórnarfundir í júlí og ágúst niður. Þess má geta að byggðarráð fundar að jafnaði fyrsta og þriðja fimmtudag í mánuði.
Sumarleyfi sveitarstjórnar samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

4.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2025

2506010

Fyrir fundi liggur Viðauki 1 sem samþykktur var á 280. fundi byggðarráðs.

Viðaukinn hljóðar upp á hækkun launa í Hvolsskóla að upphæð 59.622.162 kr til að mæta nýjum kjarasamningum og 39.535.298 hækkun launa í Leikskólanum Öldunni til að mæta nýjum kjarasamningum og aukningu í stöðugildum.

Hækkun kostnaðar vegna HSL að upphæð 400.000 kr.

Hækkun tekna vegna fasteignaskatts og lóðaleigu að upphæð 14.000.000 kr.

Samtals hækkun er 85.557.461 kr og lækkar handbært fé sem því nemur.

Eftirfarandi bókun var samþykkt:

Byggðarráð samþykkir viðauka 1 og leggur til við sveitarstjórn að hann verði samþykktur.
Sveitarstjórn samþykkir með sjö samhljóða atkvæðum viðauka 1 við fjárhagsáætlun.

5.Leikskólinn Aldan; skóladagatal 2025-2026

2505030

Lagt fram skóladagatal 2025-2026. Málið var tekið fyrir á 25. fundi Fjölskyldunefndar og eftirfarandi bókun samþykkt:

Fjölskyldunefnd samþykkir framlagt skóladagatal, drög 1, fyrir leikskólann Ölduna skólaárið 2025-2026 og leggur til við sveitarstjórn að það verði samþykkt.
Sveitarstjórn samþykkir með sjö samhljóða atkvæðum leikskóladagatal 2025-2026.

6.Skóladagatal Hvolsskóla 2025-2026

2505028

Lagt fram skóladagatal Hvolsskóla 2025-2026. Málið var tekið fyrir á 25. fundi Fjölskyldunefndar og eftirfarandi bókun samþykkt:

Skóladagatal Hvolsskóla 2025-2026 samþykkt samhljóða og nefndin leggur til við sveitarstjórn að það verði samþykkt.
Sveitarstjórn samþykkir með sjö samhljóða atkvæðum skóladagatal Hvolsskóla 2025-2026.
Hlé gert á fundi kl 12.15.

Fundur hefst aftur 12:41.

Hlé gert á fundi 12:48.

Fundur hefst aftur 12:52.

7.Ungmennaþing 2025

2411011

Lagðar fram til umfjöllunar niðurstöður ungmennaþings.

Sveitarstjórn fundaði með Ungmennaráði 25. maí sl og fékk á þeim fundi kynningu á niðurstöðunum.
Til máls tólku: LE, GHÓ, SKV, TBM.

Bókun og tillaga fulltrúa B lista:
Fulltrúar B-lista þakka ungmennaráði fyrir metnaðarfullt ungmennaþing og góðan fund með sveitarstjórn þann 25. maí sl.
Það er mikilvægt fyrir sveitarstjórn að heyra áhersluatriði unga fólksins við uppbyggingu samfélagsins og sveitarfélagsins.
Margt af því sem þar kemur fram er þegar í vinnslu og er það ánægjulegt svo sem körfuboltavöllur og undirbúningur gervigrasvallar. Hins vegar er vinnu við hjólreiðastíga og lýsing við göngustíga ábótavant og því leggjum við til að farið verði í það af fullum krafti að undirbúa lagningu hjólreiðastígs út að Eystri Rangá með áður fengnum styrk vegagerðarinnar. Ef undirbúningsvinna fer strax af stað má gera ráð fyrir framkvæmdinni sjálfri við fjárhagsáætlunargerð og fjárfestingaráætlun fyrir árið 2026.

Guri Hilstad Olason
Lilja Einarsdóttir
Rafn Bergsson

Tillagan borin upp til atkvæða.
Með þjú atkvæði fulltrúa B lista á móti fjögur atkvæði fulltrúar N og D lista.
Tillan telst því felld.

Bókun frá D og N lista:
D og N listi taka undir þau sjónarmið að tillögur ungmennaráðs verði teknar til skoðunar við fjárhagsáætlunargerð næsta haust.
Varðandi hjólastígagerð, þá verður það sömuleiðis tekið fyrir við fjárhagsáætlunargerð 2026.
Mikilvægt er að halda áfram þeirri vinnu, sem nú þegar er í gangi, við að bæta lýsingu við göngustíga í sveitarfélaginu.

Tómas Birgir Magnússon
Sigríður Karólína Viðarsdóttir
Elvar Eyvindsson
Sandra Sif Úlfarsdóttir

8.Endurskoðun - úthlutunarreglna Rangárþings eystra

2410062

Á 279. fundi byggðarráðs voru endurskoðaðar úthlutunarreglum teknar fyrir en málið var áður á dagskrá byggðarráðs á fundum 272. og 278.

Eftirfarandi bókun var samþykkt:

Byggðarráð samþykkir með þremur samhljóða atkvæðum framlagðar úthlutunarreglur og vísar þeim til samþykktar í sveitarstjórn.
Til máls tóku: GHÓ, TBM og MJÍ.
Sveitarstjórn samþykkir með sjö samhljóða atkvæðum framlagðar úthlutunarreglur lóða í Rangárþingi eystra.

9.Endurskoðun - gatnagerðargjöld

2410061

Á 279. fundi byggðarráðs voru endurskoðuð samþykkt um gatnagerðargjöld tekin fyrir en málið var áður á dagskrá byggðarráðs á fundum 272. og 278.

Eftirfarandi bókun var samþykkt:

Byggðarráð samþykkir með þremur samhljóða atkvæðum samþykkt um gatnagerðargjöld í Rangárþingi eystra og vísar þeim til samþykktar í sveitarstjórn.
Til máls tóku: GHÓ, MJÍ, LE.
Sveitarstjórn samþykkir, með sjö samhljóða atkvæðum, samþykkt um gatnagerðargjöld í Rangárþingi eystra.

10.Gatnagerð - Dufþaksbraut

2502045

Í maí mánuði voru útboðsgögn send á verktaka á svæðinu fyrir verkið "Dufþaksbraut". Eitt tilboð barst og þann 28. maí voru tilboðin opnuð á skrifstofu Rangárþings eystra að Austurvegi 4 að viðstöddum bjóðendum. Niðurstaða tilboðs er eftirfarandi: Gröfuþjónustan á Hvolsvelli, 59.874.113 kr. Kostnaðaráætlun verkkaupa hljóðaði upp á 68.987.000 kr.
Yfirferð verðtilboða og yfirferð á hæfisskilyrðum útboðs- og samningsskilmála hefur verið unnin af Verkfræðistofunni Eflu, f.h. Rangárþins eystra. Ekki voru gerðar neinar athugasemdir við hæfisskilyrði útboðs- og samningsskilmála. Sveitarstjóra er falið að ganga til samninga við Gröfuþjónustuna á Hvolsvelli ehf.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl:

11.Merkjalýsing - Syðsta-Mörk

2505052

Landeigandi óskar eftir stofnun lóða samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Tillaga að staðföngum á svæðinu er Norðurmörk, Vesturmörk og Austurmörk. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðföngin verði samþykkt.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir einnig staðföng fyrir nýtt hverfi úr landi Syðstu-Markar.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

12.Ósk um vilyrði fyrir lóðum; Vistarvegur 2, 4, 6, 8

2505036

Byggðarráð Rangárþings eystra veitti Fjallafje ehf. vilyrði fyrir lóðum að Vistarvegi 2, 4, 6 og 8. Samhliða var óskað eftir heimild til breytinga á deiliskipulagi þar sem heimilað verður að breyta parhúsi í raðhús á tveimur hæðum. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsgerð verði heimiluð.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og heimilar breytingu á gildandi deiliskipulagi. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

13.Aðalskipulag - Vindás og Litli-Moshvoll

2412067

Skipulagslýsingin gerir ráð fyrir að 12 ha svæði verði skilgreint sem frístundarbyggð, gert ráð fyrir níu lóðum. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland (L1) og nær til Vindásar, Sunnutúns og Litla-Moshvols Hólar. Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við að lóðafjöldi fari úr sjö yfir í níu en stærð skipulagssvæðisins er óbreyttur eða 12 ha. Litli-Moshvoll Hólar, L164261 og Sunnutún, L164262 eru hluti af svæðinu.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

14.Deiliskipulag - Heylækur

2409019

Deiliskipulagstillagan tekur til tveggja lóða við Heylæk 8, L234629. Á hvorum byggingarreit verður heimilt að byggja 250 m² íbúðarhús, 50 m² gestahús og 300 m² skemmu.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð tillaga verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 23/2010.

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með samhljóða atkvæðum.

15.Deiliskipulag - Stóra-Mörk 3d og 3b

2503047

Deiliskipulagstillagan tekur til lóðanna við Stóru-Mörk 3D, L236887 og Stóru-Mörk 3B, L224421 í landi Stóru-Markar og er 3,8 ha svæði. Gert er ráð fyrir tveimur byggingarreitum. á B1 eru tvö gistihús sem eru hvort um sig 176,2 m² en innan reitsins er gert ráð fyrir allt að tíu 45 m² gestahúsum til útleigu. Á byggingarreit B2 er 361,8 m² íbúðarhús en með tillögunni verður heimilt að stækka húsið upp í 450 m² og 150 m² skemmu.

Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 15. apríl til og með 30. apríl 2025. Náttúruverndarstofnun og Brunavörnum Rangárvallasýslu sem gera ekki athugasemdir. Vegagerðin gerir athugasemd við vegtengingu sem brugðist hefur verið við. Fjallað hefur verið nánar um vatnsból og fráveitu með vísan í umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórnar að tillagan verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

16.Deiliskipulag - Eystri Sámsstaðir

2406051

Deiliskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir nýrri lóð sem gerir ráð fyrir fjórum gestahúsum fyrir ferðamenn. Hvert hús um sig verður að hámarki 60 m² að stærð. Deiliskipulagið var auglýst og sent til umsagnaraðila frá 6. ágúst 2024 með athugasemdafrest til og með 27. september 2024. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, sem bendir á að notast skuli við sameiginlegt hreinsivirki fyrir gestahúsin. Nú þegar hafa verið byggð tvö gestahús skv. gildandi skipulagi en með breytingunni er farið fram á að samnýta rotþró fyrir komandi uppbyggingu. Vegagerðin benti á að núverandi vegtenging sé ekki samþykkt og staðsetningin sé óheppileg. Skipulags- og byggingarfulltrúa var falið að vinna málið áfram og í samráði við landeigenda og Vegagerðina. Með uppfærðri tillögu hefur vegtengin verið færð vestar til að bæta sýn ökumanna.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Hlé gert á fundi 13:10.

Fundur hefst aftur: 13:20

17.Byggðarráð - 279

2505007F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 279. fundar byggðarráðs.
Til máls tóku undir lið 2:
LE og MJÍ.
Bókun fulltrúa B-lista vegna 2. dagskrárliðar 279. fundar Byggðarráðs Rangárþings eystra
Útleigs Glamping ehf, Goðaland, fyrirspurn um leigu sumarið 2025
Þar sem ekki liggja fyrir svör við munlegri fyrir spurn á fundinum hvort notkun er hafin á umræddu leiguhúsnæði né heldur hvort samkomulag sem sveitarstjóra var falið að ganga frá hafi verið unnið, óskum við fulltrúar B- lista eftir skriflegum upplýsingum svo fljótt sem auðið er varðandi stöðu málsins.
Umrætt samkomulag hefur amk ekki verið lagt fyrir byggðarráð eins og bókun byggðarráðs kveður á um gerum við fulltruar B-lista athugasemd við þau vinnubrögð.
Guri Hilstad Olason
Lilja Einarsdóttir
Rafn Bergsson

Fundargerð staðfest í heild.

18.Byggðarráð - 280

2505012F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 280. fundar byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild.

Fundi slitið - kl. 13:22.