337. fundur 25. apríl 2025 kl. 12:45 - 13:17 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Árný Hrund Svavarsdóttir aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Stefán Friðrik Friðriksson yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Tómas Birgir Magnússon oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð. Oddviti óskar eftir að bæta einu máli á dagsskrá, mál númer 1 fundargerð 277. fundar byggðarráðs, aðrir liðir færast eftir því. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Í fundarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson, Árný Hrund Svavarsdóttir, Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Lilja Einarsdóttir, Rafn Bergsson, Bjarki Oddsson, oddviti Tómas Birgir Magnússon sem stjórnar fundi.
Margrét Jóna Ísólfsdóttir sem ritar fundargerð og Stefán Friðrik Friðriksson sem sér um tækni- og útsendingarmál.

1.Byggðarráð - 277

2504006F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 277. fundar Byggðarrás.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

2.Ársreikningur Rangárþings eystra 2024; Fyrri umræða

2504066

Byggðarráð hefur vísað ársreikningi Rangárþings eystra, til fyrri umræði í sveitarstjórn.

Á fundi byggðarráðs fyrr í dag, fengu allir fulltrúar sveitarstjórnar kynningu á ársreikning sveitarfélagsins, þar sem farið var yfir niðurstöður hans.
Til máls tólk: AKH.
Lagt til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

3.Fyrirspurnir fulltrúa B-lista varðandi félagsheimili

2504065

Lögð fram fyrirspurn fulltrúa B-lista.



Fyrirspurn fulltrúa B- lista um núverandi stöðu, notkun og áform varðandi félagsheimili í Rangárþingi eystra.

Undanfari misseri hefur verið töluvert rætt um félagsheimilin í sveitarfélaginu. Ástand þeirra, rekstur, notkun og framtíðarmöguleika. Haldnir voru íbúafundir í öllum félagsheimilunum í mars árið 2023. Fundirnir voru vel sóttir og ýmsar hugmyndir og skoðanir ræddar um framtíðarmöguleika félagsheimilanna.

Í júní 2024 voru haldnir fundir sveitarstjórnar með fulltrúum félaganna sem eiga hlut í félagsheimilunum með sveitarfélaginu.

Okkur er kunnugt um að samtal hafi farið af stað um að meðeigendur sveitarfélagsins að Fossbúð yfirtækju reksturinn á húsinu til reynslu.

Hver er staðan á þeim hugmyndum?

Hver er staðan á notkun annara félagsheimila?

Hver er staða á leigusamningum langtíma eða skammtíma sem gerðir hafa verið um önnur félagsheimili?

Hafa komið fram einhverjar frekari hugmyndir varðandi önnur félagsheimili?

Bjarki Oddson

Lilja Einarsdóttir

Rafn Bergsson

Til máls tóku: RB, AKH, LE, TBM.


Svar við fyrirspurn B-lista um núverandi stöðu, notkun og áform er varðar félagsheimili í Rangárþingi eystra.

Rangárþing eystra á og rekur sex félagsheimili, eitt í öllum gömlu hreppunum sem árið 2002 mynduðu Rangárþing eystra. Best er að taka hvert og eitt félagsheimili og fara yfir stöðuna.

Fossbúð: Fossbúð var í langtímaleigu til nokkurra aðila frá árinu 2007 fram til ársins 2023, þegar tekin var ákvörðun þess efnis að taka það úr langtímaleigu. Síðan þá hefur verið farið í vinnu við lagfæringar á húsinu og eru uppi hugmyndir um að gerður verði samningur við aðra eigendur hússins um rekstur þess. Vinna við þann samning hefur verið í höndum húsnefndar Fossbúðar. Húsið hefur ekki verið í opinni leigu frá því að síðasta langtímaleigusamningi lauk. Hins vegar hafa sveitungar fengið að nota húsið til ferminga, jarðarfara og annara viðburða er nýtast nærsamfélaginu.

Njálsbúð: Gamla skólahúsið í Njálsbúð hefur verið í langtímaleigu frá árinu 2017, sá leigusamningur gildir til 31.05.2025. Notkun á Njálsbúð hefur ekki verið mikil síðustu ár. Miðað er við tölur frá árinu 2021 þegar bókanir á félagsheimili urðu rafrænar. Að meðaltali eru bókanir um 7-20 á ári. Hins vegar er raunnotkun eitthvað meiri þar sem t.d. Kvenfélag notar húsið mikið fyrir sína starfsemi og fundarhöld, er sveitarfélagið í virku samtali við þau félagasamtök sem nýta húsið um að skrá betur notkun hússins sem gefur þá betri mynd af raunnotkuninni. Einnig eru upp áform um endurbætur á eldhúsinu í Njálsbúð.

Hvoll: Hvolinn er það félagsheimili sem er í mestri notkun allra félagsheimilanna í sveitarfélaginu. Nýtingartölur eru allt frá 248-253 skiptum á árunum 2021/2022 upp í 498-542 skiptum á árunum 2023/2024. Rekja má þennan mun á bókunum eftir 2023 til þess að þá fór sveitarfélagið aftur að leigja út Litla salinn og Pálsstofu eftir að þar hafði verið rekin leikskóladeild árin á undan.

Heimaland: Heimaland er mikið leigt út fyrir ættarmót á sumrin og hefur myndast rík hefð fyrir því. Nær allar helgar yfir sumartímann eru bókaðar fyrir ættarmót og komast færri að en vilja. Mikil ánægja ríkir með þær aðstæður sem í boði eru að Heimalandi. Aðrar bókanir eru góðar. Ungmennafélag og Kvenfélag eru dugleg að nota húsið fyrir sína starfsemi og eru bókanir um 150 á ári ef undan eru skilin COVID-ár.

Goðaland: Goðaland hefur verið í skammtímaútleigu yfir sumartímann árin 2023 og 2024. Af þeim sökum fækkaði bókunum á þeim árum þar sem Goðaland var mikið í leigu yfir sumartímann. Á árunum 2021/2022 voru bókanir í kringum 70-80 á ári, en árin 2023/2024 voru þær í kringum 26-30.

Gunnarshólmi: Gunnarshólmi var að hluta í langtímaleigu fram að vormánuðum 2024. Bókunum hefur fækkað lítillega síðustu ár. Á árunum 2021/2022 voru þær 18-27 en árin 2023/2024 voru þær 13-9. Sveitarfélagið er í virku samtali við þau félagasamtök sem nýta húsið um að skrá betur notkun hússins sem gefur þá betri mynd af raunnotkuninni.

Heilt yfir þá er það ánægjulegt að félagsheimilin, notkun þeirra og hlutverk sé komið í umræðuna. Það hafa ýmsar hugmyndir verið ræddar varðandi aðkomu meðeiganda okkar að rekstrinum, langtímaleiga eða jafnvel sala einhverra eigna. Engar endanlegar ákvarðanir hafa verið teknar í þeim efnum. Ljóst er að hlutverk félagsheimila hefur breyst á undanförnum árum og áratugum. Því er það nauðsynlegt að við skoðum málin varðandi hvert og eitt félagsheimili í góðri samvinnu við meðeigendur okkar og nærsamfélagið.

Fundi slitið - kl. 13:17.