2404212
Með aðalskipulagsbreytingunni er verið að taka um 150 ha úr landbúnaðarlandi (L1 og L2) í skógræktarsvæði (SL). Aðalskipulagsbreytingin var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 14. desember 2024 til og með 29. janúar 2025. Umsagnir bárust frá Veðurstofunni, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Landi og Skógum sem gera ekki athugasemdir. Óskað var eftir umsögn RML sem telur æskilegt að gerð verði úttekt og að skógræktarsvæðið verði staðsett þar utan landbúnaðarlands í flokki L1 og að breytingar muni mögulega hafa áhrif á framtíðarnýtingu landbúnaðarlands. Náttúruverndarstofnun bendir á að svæðið tilheyrir náttúruminjaskrá sem nefnist Tjarnir og Tjarnarnes 719 sem aðrar náttúruminjar og að svæðið sé á náttúruminjaskrá vegna gróðurfars, dýralífs og fuglavarps og bendir á 2. gr., 6. gr. og 17. gr. laga um náttúruvernd. Stofnunin bendir einnig á að svæðið skuli falla vel að landslaginu, huga að sjónrænum áhrifum og gróðursetja innlendar trjátegundir. Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum með því að bæta við upplýsingum um náttúruminjaskrá og skerpt á umfjöllun um dýralíf og vistgerðir. Nefndin bendir á að með auknum skógi komi annars konar vistgerðir og fuglalíf sem eykur fjölbreytni. Framkvæmdin er háð framkvæmdarleyfi og gera skuli grein fyrir uppgræðslu svæðisins varðandi tegundaval og áfangaskiptingu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að við næstu endurskoðun aðalskipulags verði sett skýrari stefna varðandi fuglalíf og vistgerðar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með fjórum atkvæðum, TBM, EE, BÓ og GÓ. Þrír sitja hjá, BO, GHÓ og SÞÞ.
Oddviti setu fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð. Oddviti óskar eftir að bæta einu máli á dagskrá. Mál nr. 2 2502027 Gatnagerð - Stóragerði. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum. Aðrir liðir færast eftir því.