334. fundur 13. febrúar 2025 kl. 12:00 - 13:21 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
    Aðalmaður: Rafn Bergsson
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Elvar Eyvindsson varamaður
    Aðalmaður: Árný Hrund Svavarsdóttir
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Christiane L. Bahner varamaður
    Aðalmaður: Tómas Birgir Magnússon
  • Lilja Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Sigurmundur Páll Jónsson yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Í fundarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri, Christiane L. Bahner í fjarveru Tómasar Birgis Magnússonar, Elvar Eyvindsson í fjarveru Árnýjar Hrundar Svavarsdóttur, Lilja Einarsdóttir, Guri Hilstad Ólason í fjarveru Rafns Bergssonar, og Sigríðar Karólinu Viðarsdóttur varaoddviti sem stjórnar fundi. Margrét Jóna Ísólfsdóttir sem ritar fundargerð og Stefán Firðik Friðriksson sem sér um tækni- og útsendingarmál.

Oddviti setu fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.

Lilja Einarsdóttir gerir eftirfarandi athugasemdir við fundarboð:
Athugasemd við fundarboð 334. fundar sveitarstjórnar Rangárþings eystra. Gerð er athugsemd við boðun 334. fundar sveitarstjórnar Rangárþings eystra. Fundarboð barst á réttum tíma en boðið innihélt ekki öll fundargögn eins og vera ber þegar það var sent út, en skv. 9gr . samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra segir. 9 .gr. Boðun sveitarstjórnarfunda. Sveitarstjóri boðar fundi. Fundarboð skal berast sveitarstjórnarmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund. Boðun sveitarstjórnarfundar skal fara fram með rafrænni tilkynningu á netfang sveitarstjórnarmanna. Með fundarboðinu skulu fundargögnin fylgja rafrænt.
Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst sveitarstjóra. Fundarboð vegna aukafundar skal berast sveitarstjórnarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund.
Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.
Að þessu sinni vantaði í fundarboðið gögn undir 2 dagskrárliði, annars vegar minnisblað sveitarstjóra sem undantekningarlítið berst afar seint fyrir hvern einasta fund og stundum ekki fyrr en að kvöldi fyrir boðaðan fund eins og staðreyndin var nú.
Einnig vantaði gögn við dagskrárlið 8. Fyrirspurn fulltrúa B-lista.
Þetta er afar bagalegt fyrir okkur sem viljum undirbúa okkur vel fyrir fundinn enda 2 sólarhringar ekki langur tími þegar gögnin eru umfangsmikil.
Sólahring eftir að fundarboð var sent út kom svo ósk um að bæta 2 byggðarráðsfundum á dagskrá fundarins ? sem ég mun ekki gera athugasemd það, enda mikilvægt að taka þá fundi fyrir í sveitarstjórn eins fljótt og kostur er.
Við sveitarstjórnarfulltrúar erum ávallt mjög samstarfsfús þegar kemur að því að bæta við dagskrárliðum eða breyta dagskrá enda sameiginlegur vilji okkar allra að störf sveitarstjórnar gangi vel og ekki verði óþarfa töf á afgreiðslu mála.
Við fulltrúar B-lista höfum ítrekað gert athugasemdir við að gögn vanti þegar fundur er boðaður, bæði formlega og einnig utan dagskrár. Því miður hefur það ekki komið í veg fyrir að ítrekað vanti gögn þrátt fyrir að gögn við viðkomandi dagskrárliði, nú eða dagskrárliðurinn sjálfur sé ekki svo nýr af nálinni að viðbótargögn hafi borist sveitarstjóra eða oddvita eftir að fundur hefur verið boðaður. Til þess ber auðvitað að taka tillit.
Ég óska því góðfúslega eftir því að sveitarstjóri og oddviti rýni dagskrá og gögn vel áður en þau eru send út til að koma megi í veg fyrir ágalla gagna eins og hér er gerð athugasemd við.
Lilja Einarsdóttir


Varaoddviti óskar eftir leyfi fundar til að bæta tveimur málum á dagsskrá fundar. Mál númer 22 fundargerð 271. fundar byggðarráðs og mál nr 23. fundarberð 272. fundar byggðarráðs, aðrir liðir færast eftir því. Samþykkt með sjö samhjóða atkvæðum.

1.Minnisblað sveitarstjóra; 13. febrúar 2025

2502017

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um helstu verkefni liðinna vikna.
Til máls tók: AKH.
Lagt fram til kynningar.

2.Bergrisinn; Breytingar á samþykktum

2412013

Lagðar fram til seinni umræði breytingar á samþykktum Bergrisans bs. í seinni umræðu.
Sveitarstjórn samþykkir með sjö samhljóða atkvæðum breytingar á samþykktum Bergrsins í seinni umræðu.

3.Hvolsskóli; Starfsáætlun 2024-2025

2412041

Lögð fram til staðfestingar Starfsáætlun Hvolsskóla 2024-2025.
Sveitarstjórn staðfestir með sjö samhjóða atkvæðum Starfsáæltun Hvolsskóla 2024-2025.

4.Skólanámsskrá Hvolsskóla 2024-2025

2412040

Lögð fram til kynningar skólanámsskrá Hvolsskóla 2024-2025.
Til máls tóku: LE, SKV og EE.
Lagt fram til kynningar.

5.Tillaga um breytingu á úthlutun úr Menningarsjóði

2501023

Lögð fram til staðfestingar tillaga um breytingu á reglum um úthlutn úr Menningarsjóði Rangárþings eystra. Tillaga er um að úthlutun úr sjóðnum verði í mars og október í stað febrúar og september eins og í fyrri reglum.
Sveitarstjórn staðfestir, með sjö samhljóða atkvæðum, breytingu á reglum um úthlutun úr Menningarsjóð.

6.Beiðni um lausn frá störfum í nefndum Rangárþings eystra

2502018

Lagt fram bréf þar sem Heiðbrá Ólafsdóttir óskar eftir lausn frá störfum sem aðalmaður í Fjölskyldunefnd og varamaður í Skipulags- og umhverfisnefnd.
Sveitarstjórn samþykkir beiðni um lausn frá störfum og þakkar Heiðbrá fyrir vel unnin störf.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

7.FEBRANG; Ályktun um heilbrigðisþjónustu

2502020

Lögð fram ályktun FEBRANG um heilbrigðisþjónustu í Rangárþingi þar sem farið er fram á að snarlega verði bætt úr

læknisþjónustu á svæðinu.
Til máls tóku: AKH, BO og SKV.

Sveitarstjórn tekur heils hugar undir ályktun félagsins.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

8.Fyrirspurnir fulltrúa B-lista- febrúar 2025.

2502021

Lagaðar fram fyrirspurnir fulltrúa B-lista um, fjölda rýma á Kirkjuhvoli, staða mála við Seljalandsfoss, uppbyggingu miðbæjar Hvolsvallar og hönnunarvinnu miðbæjartúns Hvolsvallar.
Til máls tóku: LE og AKH.

Fyrirspurnir fulltrúa B-lista:
1.
Fjöldi rýma á Kirkjuhvoli ? varanleg rekstsarheimild.
Undanfarin ár hefur hjúkrunarheimilið Kirkjuhvoll einungis fengið tímabundna rekstarheimild, til eins árs í senn fyrir nokkrum rýmum, sem er vel enda nauðsynlegt að fullnýta húsnæði sem til staðar er. Mikilvægt er að tryggja stöðugan rekstargrundvöll stofnunarinnar sem og þjónustu fyrir aldraða sem þurfa á innlögn á hjúkrunarheimili að halda. Á stefnuskrá B-lista var að tryggja varanlega rekstarheimild fyrir þeim tímabundnu rýmum sem um ræðir.
Hvernig er staðan í dag, hversu mörg rými eru nú varanleg og hversu mörg eru tímabundin?
2.
Staða mála við Seljalandsfoss.
Eftir fundi með landeigendum sem haldinn var að hausti 2023 hefur lítið heyrst varðandi þróun mála við Seljalandsfoss, en þar hafa mál varðandi uppbyggingu og starfsemi svæðisins verið í járnum um árabil.
Hver er staða málsins í dag og hver eru næstu skref?
3.
Uppbygging miðbæjar Hvolsvallar.
Lítið hefur gerst á miðbæjarreit þéttbýlisins Hvolsvallar hvað varðar uppbyggingu í samræmi þau áform sem uppi voru en byggðarráð auglýsti lóðir þar í einu lagi til úthlutunar í ársbyrjun 2023. Þrír umsækjendur voru um verkefnið en í framhaldinu var ákveðið að semja við VHT ehf. Í Júlí árið 2024 var málið til umfjöllunar aftur og þá samþykkti byggðarráð veðsetningu á lóðinni að upphæð 15.000.000.- en áréttaði að ekki yrðu heimilaðar frekari veðsetningar fyrr en lóðaleigusamningur lægi fyrir. Nú eru liðin tæp tvö ár frá því samið var við umrædda verktaka og ekki virðist lóðarhafi hafa áform um að fara af stað í uppbyggingu á næstunni. Hver er staða mála í dag?
4.
Hönnunarvinna miðbæjartúns Hvolsvallar.
Styttan Afrekshugur var afhjúpuð í ágúst 2023 og er hún orðin aðdráttarafl gesta hérna í þorpinu. Á stefnuskrá B-listans var m.a. að bæta aðgengi og ásýnd ferðamannastaða og sveitarfélagsins í heild og teljum við brýnt að hefja hönnunarvinnu fyrir miðbæjartúnið sem fyrst til þess að það skapist heildarbragur fyrir svæðið sem verður okkur öllum til sóma. Stendur til að fara í hönnunarvinnu á þessu ári?

Bjarki Oddsson
Guri Hilstad Olason
Lilja Einarsdóttir

Eftirfarandi eru svör sveitarstjóra við fyrirspurn B-lista:

1.
Á Kirkjuhvoli eru 26 almenn hjúkrunarrými sem varanleg rekstrarheimild er fyrir. Tímabundin hjúkrunarrými eru 5 og er nýbúið að ganga frá samningum um þau til eins árs. Við höfum verið með þessi 5 rými frá árinu 2018, en aldrei fengið varanlega rekstrarheimild fyrir þeim. Til viðbótar eru 2 tímabundin rými sem skulu nýtt fyrir einstaklinga sem koma frá HSU, samningur um þau rými gildir einnig út árið 2025. Fjöldi dvalarrýma á Kirkjuhvoli er 1. Biðlistar eru langir og því mikilvægt að tryggja nýtingu allra rýma á Kirkjuhvoli til framtíðar með varanlegum rekstrarheimildum. Tíð samtöl við ráðherra, þingmenn og aðra aðila innan sjtórnkerfisins hafa átt sér stað varðandi það að tryggja rýmin fyrir Kirkjuhvol. Verður því samtali haldið áfram við nýja ríkisstjórn og vonandi mun það bera árangur áður en langt um líður.

2.
Lítið hefur þokast í málefnum samstarfs sveitarfélagsins og landeigenda við Seljalandsfoss. Síðast var málið til umfjöllunar hjá byggðarráði Rangárþings eystra þann 16. maí 2024, þar sem lagt var fram minnisblað lögfræðings eiganda jarðanna innan Seljalandstorfu. Sveitarstjórn hefur í hvívetna talað fyrir hagsmunum sveitarfélagsins í þessu máli og mun gera það áfram. Ljóst hefur verið um árabil að sú staða sem uppi er gengur ekki til lengdar. Óformlegar viðræður við landeigendur hafa átt sér stað á undanförnum mánuðum um mögulegar lausnir ágreiningsmála en engin niðurstaða liggur fyrir.

3.
Uppbygging miðbæjarsvæðis á Hvolsvelli hefur ekki gengið eftir skv. samkomulagi sem gert var við VHT ehf í lok árs 2023. Lögfræðingur sveitarfélagsins vinnur nú að málinu f.h. sveitarfélagsins.

4.
Hönnunarvinna á miðbæjartúni Hvolsvallar kom til umræðu í vinnu við fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2025. Það var hins vegar ákveðið í ljósi þess að verið er að vinna að hönnun miðbæjarsvæðis, reit fyrir nýja Krónuverslun og þjóðvegi 1 í gegnum Hvolsvöll að skynsamlegt væri að endanlegar tillögur þeirra verkefna lægju fyrir áður en hönnun miðbæjartúnsins yrði sett af stað. Það er að mörgu að hyggja í hönnun þessara svæða og mikilvægt að ná góðri samræmingu á milli þeirra. Ekki er útilokað að hönnunarvinna á miðbæjartúni geti farið af stað á árinu 2025.


9.Merkjalýsing - Ytra-Seljaland, heiðin

2412039

Landeigandi óskar eftir að stofna landeign úr Ytra-Seljalandi, L163773 umhverfis frístundabyggð F31. Úr hinni nýju landeign verða stofnaðar lóðir skv. gildandi deiliskipulagi. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að landskiptin verði samþykkt.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og gerir ekki athugasemd við landskiptin og hið nýja staðfang. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

10.Merkjalýsing - Gláma, millispilda

2501026

Landeigandi óskar eftir að stofnuð verði millispilda úr Glámu, L234478. skv. meðfylgjandi merkjalýsingu. Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að landskiptin verði samþykkt ásamt hinu nýja staðfangi.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og gerir ekki athugasemd við landskiptin og hið nýja staðfang. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

11.Deiliskipulag - Ytra-Seljaland, Bolavellir

2411078

Deiliskipulagstillagan nær til 5 ha svæðis úr landi Ytra-Seljalands. Gert er ráð fyrir 12 lóðum þar sem heimilt verður að byggja 50 m² gestahús. Hámarkshæð húsa er 6 m frá botnplötu og heimilt verður að vera með gistingu fyrir fjóra í hverju húsi.

Skipulags- og umhverfisnefnd telur að í kafla 2.2.1 um byggingarheimildir án tengsla við búrekstur komi skýrt fram að sérhæfðar byggingar fyrir aðra atvinnustarfsemi en landbúnað, allt að 1.500 m² skuli vera samhliða fastri búsetu og að í framlagðri tillögu komi skýrt fram að áformin snúi aðeins að rekstri sem á heima á verslunar- og þjónustulóð eða svæði.

Skipulags- og umhverfisnefnd ítrekar að vegna fjölda skipulagsmála og breytinga á gildandi skipulagi fer skipulags- og umhverfisnefnd fram á samráð/samstarf landeigenda á svæðinu með það að markmiði að samnýta vegtengingar og sameinast um vatnsból og fráveitu, sem uppfyllir kröfur Heilbrigðiseftirlits. Ekki verða samþykktar frekari verulegar deiliskipulagstillögur fyrr en samræmd áætlun liggur fyrir varðandi vegi og neysluvatn. Að mati nefndarinnar er það hagur allra að samráði verði fylgt eftir til þess að áform allra hagaðila gangi upp.
Til máls tóku: LE og AKH.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar. Samþykkt með sex atkvæðum samhljóða atkvæðum AKH, EE, SKV, CLB, BO og GHÓ, einn situr hjá LE.

12.Deiliskipulag - Seljalandsfoss

2412068

Óskað er eftir heimild til deiliskipulagsgerðar við Seljalandsfoss. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að unnið verði eftir gildandi deiliskipulagi.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

13.Aðalskipulag - Vindás og Litli-Moshvoll

2412067

Skipulagslýsingin gerir ráð fyrir að 12 ha svæði verði skilgreint sem frístundarbyggð, þar er gert ráð fyrir 7 lóðum. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland (L1) og nær til Vindás, Sunnutún og Litla-Moshvoll Hólar. Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði kynnt fyrir almenningi og send til lögbundinnar umsagnaraðila skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir framkomna lýsingu aðalskipulagsbreytingar. Sveitarstjórn samþykkir að lýsingin verði send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun og annarra umsagnaraðila ásamt því að kynna hana fyrir almenningi skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

14.Ný gata, nýtt staðfang

2412031

Verið er að stofna lóðir og yfirfara staðföng við nýja götu vestan við Austurveg, milli Hvolsvegar 1 og Austurvegs 15 ásamt því að lagt er til að fjölga staðföngum í Bergþórugerði.

Skipulags- og umhverfisnefnd þakkar fyrir góðar tillögur að staðföngum við nýjar götur og leggur til við sveitarstjórn að gatan suðvestan við Hvolsvöll fái götuheitið Lyngmói og nyrsta gatan í Bergþórugerði fái götuheitið Flosagerði.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir ný staðföng.

15.Aðalskipulag - breyttir skilmálar í aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032

2405065

Um er að ræða breytingu á skilmálum aðalskipulags Rangárþings eystra um áfangaskiptingu framkvæmda.

Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 14. desember 2024 til og með 29. janúar 2025. Engar athugasemdir voru gerðar á auglýsingartíma en Náttúruverndarstofnun bendir á mikilvægi verndunar votlendis og líffræðilegs fjölbreytileika og að hægt sé að setja fram stefnu og markmið um m.a. rannsóknir, vöktun og vernd viðkvæmra tegunda. Að mati skipulags- og umhverfisnefndar tekur skilmálabreytingin ekki á þeim þáttum sem Náttúruverndarstofnun bendir á.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingin verði send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og afgreidd skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir tillöguna og að hún verði afgreidd í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

16.Deiliskipulag - Móland

2501031

Óskað er eftir breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir frístundasvæði úr Ytra-Seljalandi. Á norðursvæðinu er atvinnustarfsemi óheimil en heimilt verður að vera með rekstur á suðurhluta svæðisins. Samhliða er gert ráð fyrir nýjum staðföngum, Mólandsmörk og Mólandsbraut.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt og afgreidd samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að vikið verði frá grenndarkynningu þar sem notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis er óbreytt.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði afgreidd í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

17.Deiliskipulag - Stekkjargrund

2408065

Deiliskipulagstillagan tekur til sjö byggingarreita á 5,3 ha spildu. Heimilt verður að byggja allt að 400 m² íbúðarhús og bílskúr á B1, á B2-B4 verður heimilt að reisa þrjú 50 m² gestahús, á B5 verður heimilt að byggja 400 m² áhaldageymslu, á B6 verður heimilt að reisa 1.000 m² reiðskemmu og á B7 verður undir allt að 200 m² gróðurhús. Hámarkshæð húsa er 8,5 m frá jörðu. Þakgerð er frjáls en mannvirki skulu falla sem best að umhverfinu.

Við yfirferð Skipulagsstofnunar á deiliskipulagi fyrir Stekkjargrund, dags. 16. desember 2024, er bent á mögulegt misræmi deili- og aðalskipulags sem nú hefur verið leiðrétt en um sjö byggingarreiti á 29 ha jörð. Lagt hefur verið mat á umhverfisáhrif og því bætt við sem fylgiskjal. Lóðir hafa verið hnitsettar og aðkoman kemur fram á uppdrætti og kvöð um aðkomu hefur verið bætt við. Jörðin hefur verið hnitsett en skipulagssvæðið fylgir afmörkun hennar að norðanverðu með vísan í hnitskrá. Ekki er um nýja vegtengingu að ræða en vegurinn frá landinu er frá Hverfisvegi og að jörðinni.



Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við breytta tillögu og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send aftur til yfirferðar Skipulagsstofnunar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverisnefndar og samþykkir að tillagan verði send aftur til yfirferðar Skipulagsstofnunar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samlhljóða atkvæðum.
Stefán Friðrik Friðriksson, tæknimaður fer af fundi og Sigurmundur Páll kemur á fund og tekur við stjón útsendingar.

18.Deiliskipulag - Sýslumannstún

2411075

Lóðarhafi óskar eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Hlíðarveg 17 eða Sýslumannstún. Heimilt verður að byggja við íbúðarhúsið ásamt bæta við aukahúsi á byggingarreit E2. Mænishæð er í samræmi við núverandi hús og heimilt er að gera kjallara. Skipulagssvæðið minnkar meðfram Hlíðar- og Nýbýlavegi.

Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 14. desember 2024 til og með 29. janúar 2025. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Brunavörnum Rangárvallasýslu sem ekki gera athugasemdir við framlagða tillögu. Vegagerðin bendir á að í deiliskipulagstillögu samliggjandi svæðis er gert ráð fyrir hringtorgi en stærð þess er vanáætluð og því hefur skipulagssvæðið verið minnkað enn frekar. Möguleg aðkoma frá Nýbýlavegi hefur verið fjarlægð og verður endurskoðuð við nánari hönnun og útfærslur hringtorgsins. Athugasemd barst frá lóðarhöfum við Nýbýlaveg er varðar mögulega aðkomu sem nú hefur verið fjarlægð úr tillögunni vegna athugasemda og rökstuðnings lóðarhafa. Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við drög að viðbrögðum við athugasemdum.



Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

19.Deiliskipulag - Hvolsvegur og Hlíðarvegur

2211022

Deiliskipulagstillagan tekur til hluta af Hlíðarvegi og Hvolsvegi og gerir ráð fyrir hringtorgi við gatnamótin á svæðinu. Með deiliskipulaginu verður hluti af mannvirkjum víkjandi en gert er ráð fyrir 8-12 íbúðum á tveimur hæðum með risi. Hámarkshæð verður 7,5 og heildarbyggingarmagn verður 1728 m². Á þegar byggðum lóðum er gert ráð fyrir byggingarreitum og nýtingarhlutfalli en einnig verður heimilt að byggja bílskúr eða aukahús allt að 50 m². Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst, kynnt fyrir lóðarhöfum og send til umsagnaraðila skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði auglýst aftur og send til umsagnaraðila svk. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: BO, LE, AKH, EE.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn leggur til að haldinn verði opinn íbúafundur um tillöguna á auglýsingatíma hennar.

Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

20.Deiliskipulag - Ormsvöllur og Dufþaksbraut

2401053

Um er að ræða breytingu á gildandi deiliskipulagi athafnasvæðis við Ormsvöll og Dufþaksbraut. Núverandi hesthúsalóðir eru víkjandi og er áformað að breyta lóðum í atvinnulóðir um leið og lóðum er fækkað og þær stækkaðar. Gert er ráð fyrir hringtorgi á gatnamótum Ormsvalla og Hlíðarvegar og hefur það áhrifá Ormsvöll 27 og Hlíðarveg 16. Hámarkshæð húsa fer úr 6 m í 7 m.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði auglýst aftur og send til umsagnaraðila svk. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.

21.Deiliskipulag - Ytri-Skógar, tjaldsvæði og bílastæði

2411077

Deiliskipulagstillagan nær til afþreyingar- og ferðamannasvæðis (AF53) við Ytri-Skóga. Tillagan tekur til 7,5 ha tjaldsvæðis, þar sem gert er ráð fyrir aðstöðuhúsi, bílastæðum fyrir húsbíla, leiksvæðum og salernisaðstöðu. Breytingin tekur einnig til stækkunar á lóðum við Skógarfossveg 2 til 7 (Fosstún í deiliskipulagstillögunni) auk þess að ferðþjónustulóðir sunnan við félagsheimili Fossbúðar verði felld úr gildi og í staðinn er gert ráð fyrir stækkun á núverandi bílastæði.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði auglýst, kynnt fyrir lóðarhöfum og send til umsagnaraðila svk. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.

22.Byggðarráð - 271

2501007F

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 271. fundar byggðarráðs.
Til máls tóku:
BO og AKH undir lið 22.9.
Sveitarstjóra falið að boða á fund sveitarstjórnar, lögreglustjóra og starfsmann almannavarna.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Hlé gert á fundi: 13:09.

23.Byggðarráð - 272

2502001F

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 272. fundar byggðarráðs.
Til máls tóku:
Undir lið 23.9 GHÓ og LE.
Varðandi lið 23.9 í fundargerð byggðarráðs sem er fundargerð 70. fundar heilsu- íþrótta og æskulýðsnefndar. Fundargerðin fylgir reyndar ekki fundargögnunum hér en hægt er að finna hana í one kerfinu og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins. Þar leggur heilsu- íþrótta og æskulýðsnefnd til eftirfarandi:

„HÍÆ nefnd leggur til að nemendur í 8. bekk að 18 ára aldri megi fara ein og fái frían aðgang í líkamsræktina á Hvolsvelli eftir uppáskrift frá foreldri/forráðamanni.
Einnig leggur nefndin til að boðið verði uppá námskeið og/eða kennslu í líkamsbeitingu fyrir þennan aldurshóp í líkamsrækt.“

Byggðaráðið virðist hafa staðfest fundargerð nefndarinnar án athugasemda og má þá skilja það þannig að byggðaráðið hafi staðfest breytingu á reglum og gjaldskrá íþróttamiðstöðvar. Samkv. 5 lið 5 gr. Samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra er það sveitarstjórn sem getur tekið ákvörðun varðandi gjaldskrár sveitarfélagsins og þarf sveitarstjórn að mínu mati að taka afstöðu til tillögu nefndarinnar.

Ég er mikil talskona líkamsræktar og hreyfingar og tel það jákvætt að börn í 8. b. fái aðgang að líkamsræktinni okkar en ég tel nauðsynlegt að við sem eigendur stöðvarinnar þurfum að vera meðvituð um ábyrgð okkar. Ég tek heilshugar undir tillögu heilsu- íþrótta og æskulýðsnefndar varðandi að bjóða upp á námskeið og/eða kennslu í líkamsbeitingu fyrir þennan aldurshóp og legg ég jafnframt til að slíkt námskeið verði skyldunámskeið til þess að fá aðgang að líkamsræktarstöðinni auk samþykkis forráðamanna.
Guri Hilstad Ólason

Til máls tóku undir lið 23.14, BO og AKH.

Sveitarstjórn vísar lið 23.9 til afgreiðslu á næsta fundi sveitarstjórnar og staðfestir að öðru leit fundargerð byggðarráðs.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Fundur hefst aftur: 13:14.

24.Samband íslenskra sveitarfélaga; 960. fundur stjórnar 13.12.24

2502003

Lögð fram til kynningar fundargerð 960. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

25.Samband íslenskra sveitarfélaga; 961. fundur stjórnar 17.01.25

2502004

Lögð fram til kynningar fundargerð 961. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

26.Samband íslenskra sveitarfélaga; 962. fundur stjórnar 22.01.25

2502005

Lögð fram til kynningar fundargerð 962. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til máls tók: GHÓ.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:21.