256. fundur 31. október 2019 kl. 08:30 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Elín Fríða Sigurðardóttir aðalmaður
  • Guðmundur Jón Viðarsson aðalmaður
  • Benedikt Benediktsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Christiane L. Bahner aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Oddviti óskar eftir leyfi fundar til að bæta máli á dagsskrá, nr. 1 Fundargerð Byggðarráðs 186.
Samþykkt samhljóða.

1.Byggðarráð - 186

1910004F

Fundargerð samþykkt.

2.Fjárhagsáætlun Rangárþings eystra 2020-2023

1910094

Sveitarstjórn vísar afgreiðslu fjárhagsáætlunar til 2. umræðu.
Samþykkt samhljóða.

3.Mýrdalshreppur; Ósk um viðræður vegna sameiningar sveitarfélaga

1910101

Tillaga Mýrdalshrepps:
Lagt er til að hefja viðræður um kosti og galla sameiningar sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps.
Sé vilji fyrir hendi hjá öðrum sveitarfélögum samþykkir sveitarstjórn að skipaður verði verkefnishópur með þremur fulltrúum frá hverju sveitarfélagi. Sótt verði um framlag úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að standa straum af kostnaði við matsgerðina og tryggt verði að hún verði unnin faglega.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir fyrir sitt leyti tillögu Mýrdalshrepps, um greiningu á kostum og göllum á sameiningu sveitarfélaganna. Sæti í verkefnishópnum taki fyrir hönd Rangárþings eystra sveitarstjóri, oddviti og Christiane L Bahner.
Samþykkt samhljóða.

4.Tónsmiðja Suðurlands; Ósk um greiðslu á kennslugjöldum

1910011

Málinu var frestað á síðasta fundi sveitarstjórnar, þar sem að fullnægjandi gögn höfðu ekki borist. Fullnægjandi gögn liggja nú fyrir og samþykkir sveitarstjórn því umbeðna styrkbeiðni.
Samþykkt samhljóða.

5.Stígamót; ósk um styrk fyrir árið 2019

1910096

Sveitarstjórn hafnar erindinu.
samþykkt samhljóða.

6.Ungmennafélagið Hekla; ósk um styrk

1910095

Sveitarstjórn hafnar beiðni um styrk.
samþykkt samhljóða.

7.Umsögn; Eystra-Seljalandi F1 gistileyfi

1910025

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar aðrir umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt umsögn.
Christiane L Bahner víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

8.Umsögn; Vestri-Garðsauki gistileyfi

1910081

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar aðrir umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt umsögn.
Fylgiskjöl:
Christiane L Bahner tekur aftur sæti á fundi.

9.Umsögn; Gimbratún 3 gistileyfi

1910080

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar aðrir umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt umsögn.
Fylgiskjöl:

10.37. fundur; Heilsu-, íþrótta og æskulýðsnefndar; 26. sept 2019

1910045

Fundargðerð staðfest.
Samþykkt samhljóða.

11.Skipulagsnefnd - 76

1910002F

Fundargerð skipulagsnefndar staðfest.
  • Skipulagsnefnd - 76 Niðurstöður kynntar fyrir skipulagsnefnd. Samtals eru skipulagðar 657 frístundahúsalóðir í sveitarfélaginu öllu. Einnig eru gistirými fyrir 2093 manns á 83 skilgreindum gististöðum. Bókun fundar Lagt fram til kynningar. Berglindi Eggertsdóttur eru færðar þakkir fyrir vel unnin störf.
  • Skipulagsnefnd - 76 Afgreiðslu málsins er frestað. Byggingarfulltrúa falið að leita álits vegna umsóknarinnar hjá opinberum aðilum, þar á meðal Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Vinnueftirliti ríkisins, Isavia, Samgöngustofu og Skipulagsstofnun. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.
  • Skipulagsnefnd - 76 Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að gerð verði breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2024 og að breyting að deiliskipulagi verði heimiluð. Bókun fundar Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir að gerð verði breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2024 og að breyting á deiliskipulagi verði heimiluð á Grenstanga.
  • Skipulagsnefnd - 76 Skipulagsnefnd samþykkir framkomna lýsingu aðalskipulagsbreytingar og mælist til þess að lýsingin verði send til umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila ásamt þvi að kynna hana fyrir almenningi skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir framkomna lýsingu aðalskipulagsbreytingar og lýsingu deiliskipulagsbreytingar og að skipulagslýsingin verði send til umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila, ásamt því að kynna hana fyrir almenningi skv. 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulagsnefnd - 76 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og nöfnin á hinum nýju spildum. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir landskiptin og heitin á nýju spildunum.
  • Skipulagsnefnd - 76 Skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til sex mánaða. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir veitingu stöðuleyfis til sex mánaða.
  • Skipulagsnefnd - 76 Skipulagsnefnd samþykkir framkomna breytingu á deiliskipulagi við Ormsvöll. Skipulagsnefnd leggur til að breytingin verði afgreidd skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi við Ormsvöll og að breytingin verði afgreidd skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulagsnefnd - 76 Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi fyrir áframhaldandi stígagerð á Skógaheiði verði samþykkt. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir áframhaldandi stígagerð á Skógaheiði.
  • Skipulagsnefnd - 76 Skipulagsnefnd samþykkir veitingu byggingarleyfis að undangenginni grenndarkynningu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir veitingu byggingarleyfis að undangenginni grenndarkynningu.
  • Skipulagsnefnd - 76 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og nafnið á hinni nýju spildu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir landskiptin og heitið á nýju spildunni.

12.Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44

1910003F

Sveitarstjórn fagnar sérstaklega háu hlutfalli menntaðs starfsfólks í skólum sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
  • Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44 Fræðslunefnd þakkar fyrir góða yfirferð um læsistefnu og hlutverk fræðslunefndar. Teymið hefur þegar átt fund með fulltrúum grunn- og leikskóla og formanni fræðslunefndar þar sem farið var yfir drög að læsisstefnu Rangárþings eystra, Leikskólans Arkar og Hvolsslóla. Drögin koma aftur til yfirferðar fræðslunefndar í desember 2019.

  • Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44 Fræðslunefnd staðfestir skólanámsskrá Hvolsskóla 2019-2020, það með talið starfsmannahandbók, starfsáætlun og námsvísa allra stiga.
  • Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44 Fræðslunefnd samþykkir uppbrots- og skerta daga fyrir skólaárið 2019-2020.
  • Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44 Skólastjóri fer yfir almenn málefni Hvolsskóla.
    Hvolsskóli mun hljóta grænfánann í sjötta sinn, sem er afar ánæjulegt.
    Hlutfall kennara með kennsluréttindi er mjög hátt í Hvolsskóla eða 94% auk menntaðra sérkennarar og þroskaþjálfa.
    Framundan er dagur íslenskrar tungu sem haldinn verður hátíðlegur þann 12. nóvember með upplestri 10. bekkinga á Njálu ásamt fleiri uppákomum. Auk fleiri fastra viðburða í skólastarfinu.
  • Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44 Frá apríl 2020 verða 94 börn á leikskólanum, öll börn í Rangárþingi eystra komast inn frá eins árs aldri og eins og staðan er í dag er enginn biðlisti.
    Leikskólastjóri fór yfir starfsemi leikskólans fyrir komandi vetur. Hlutfall leikskólakennara hefur vaxið ört unandfarið, enda margir starfsmenn hafa sótt nám í leikskólakennarafræðum á undanförnum árum.
  • Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44 Lagt fram til kynningar
  • Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44 Lagt fram til kynningar.
  • Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 44 Lagt fram til kynningar.

13.41. fundur stjórnar félags- og skólaþjónustu

1910097

Fundargerð samþykkt.
Fylgiskjöl:

14.Fjallskilanefnd Fljótshlíðar; 47. fundur; 13.10.2019

1910060

Fundargerð samþykkt.

15.Katla Jarðvangur; 47. fundur stjórnar; 20.08.2019

1910071

Fundargerð staðfest.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

16.Katla Jarðvangur; 48. fundur stjórnar; 16.10.2019

1910072

Fundargerð staðfest.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

17.Héraðsnefnd Rangæinga og V-Skaftfellinga; fundargerð; 17.10.2019

1910073

Varðandi lið 3 í fundargerð nefndarinnar, ræddi sveitarstjórn framtíðarmöguleika um nýtingu Skógaskóla. Ljóst er að húsnæði skólans er komið á verulega þörf fyrir viðhald. Sveitarstjórn samþykkir að formönnum Héraðsnefnda og formanni stjórnar Skógasafns verði falið að gagna til viðræðna við eiganda um framtíðarnotkun húsnæðis.
Að öðru leyti er fundargerð staðfest.
Samþykkt samhljóða.

18.Bergrisinn; 9. fundur stjórnar; 7.10.2019

1910068

Lagt fram til kynningar.

19.549. fundur stjórnar SASS; 27.09.2019

1910069

Lagt fram til kynningar.

20.Samband íslenskra svetiarfélaga; 874. fundur stjórnar

1910066

Lagt fram til kynningar.

21.Framlög til stjórnmálasamtaka á árinu 2018

1910067

Fjármálastjóra falið að taka saman umbeðin gögn og senda til Ríkisendurskoðunar.
Samþykkt samhljóða.

22.Lánasjóður sveitarfélaga; Áreiðanleikakönnun viðskiptamanna

1910099

Sveitarstjóra falið að taka saman umbeðin gögn og senda til Lánasjóðs sveitarfélaga.
Samþykkt samhljóða.

23.Capacent; Boð á þjónustu; Sameiningar sveitarfélaga

1910100

Lagt fram til kynningar.

24.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2019

1902326

Lagt fram til kynningar.

25.Skólaþing sveitarfélaga 2019

1910074

Lagt fram til kynningar.

26.Umboðsmaður barna; boð á barnaþing 21. og 22.11

1910092

Lagt fram til kynningar.

27.Skipulagsdagurinn 2019

1910093

Lagt fram til kynningar.

28.Ársskýrsla loftgæða til ársins 2017

1910070

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.