333. fundur 09. janúar 2025 kl. 12:00 - 14:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Árný Hrund Svavarsdóttir aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
    Aðalmaður: Lilja Einarsdóttir
Starfsmenn
  • Sigurmundur Páll Jónsson yfirmaður tæknideildar
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Þóra Björg Ragnarsdóttir skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá
Oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.
Í fundarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri,Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Árný Hrund Svavarsdóttir, Guri Hilstad Ólason í fjarveru Lilju Einarsdóttur, Rafn Bergsson, Bjarki Oddsson, og oddviti Tómas Birgir Magnússon. Þóra Björg Ragnarsdótttir skipulags- og byggingarfulltrúi sem ritar fundargerð og Sigurmundur Páll Jónsson sem sér um upptöku og útsendingarmál.

Oddviti óskar eftir því að fella mál númer 10 af dagskrá fundarins, þar sem það hefur nú þegar fengið afgreiðslu. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

1.Minnisblað sveitarstjóra; 9. janúar 2025

2501015

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um helstu verkefni liðinna vikna.
Til máls tóku: AKH.
Lagt fram til kynningar.

2.Staða mála í Rangárþingi vegna heilsugæslu HSU og læknaskorts

2501012

Til máls tóku: BO, AKH og SKV.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur verulegar áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin varðandi mönnun lækna í héraðinu. Sveitarstjórn hefur ítrekað lýst yfir áhyggjum sínum á stöðunni og var meðal annars óskað eftir fundi með forstjóra HSU sem haldinn var í nóvember sl. Sveitarstjórn áréttar að hún hefur ávallt lagt sitt af mörkum til að liðka fyrir mönnun m.a. með því að bjóða upp á húsnæði og leikskólapláss.
Fundur var haldinn mánudaginn 6. janúar 2025 með fulltrúum sveitarfélaga í Rangárvallasýslu og forsvarsmönnum HSU. Á þeim fundi kom m.a. fram að búið væri að tryggja mönnun lækna í héraðinu að minnsta kosti næstu tvo mánuði. Betur má ef duga skal og ítrekar sveitarstjórn Rangárþings eystra mikilvægi þess að tryggð verði mönnun lækna í Rangárþingi til framtíðar. Núverandi staða og óvissa varðandi mönnun er óboðleg íbúum og gestum í Rangárþingi.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að óska eftir fundi með heilbrigðisráðherra sem allra fyrst og vinna sameiginlega ályktun sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu til heilbrigðisráðuneytisins.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

3.HÍÆ önnur mál

2112016

Á 69. fundi Heilsu-, íþrótta og æskulýsnefndar óskaði nefndin eftir svörum frá sveitarstjórn á stöðu fyrirhugaðra íþróttamannvirkja í sveitarfélagnu.

1) Í sumar var íbúakosnig varðandi körfuboltavöll, hver er staðan á þeim velli.

2) Mikið hefur verið rætt um fyrirhugaðan gervigrasvöll. Rætt hefur verið um heilan eða hálfan völl. Hvað er að frétta af gervigrasvelli?

3) Strandblakvöllur, er hann væntanlegur og hvar þá?







Til máls tóku: AKH, BO, TBM og GHO.

Svör sveitarstjóra við fyrirspurn HÍÆ
1. Staðan á körfuboltavellinum er sú að staðsetning var ákveðin eftir íbúakosningu við hlið núverandi sparkvallar. Efni sem til þarf var að hluta til keypt síðasta sumar og stendur til að framkvæmdir við völlinn hefjist í vor.
2. Fyrir liggur tilboð frá einni verkfræðistofu í hönnun og verkeftirlit fyrir annars vegar heilan og hálfan völl. Einnig liggur fyrir kostnaðaráætlun fyrir báða kosti. Óskað hefur verið eftir álíka tilboði frá annarri verkfræðistofu til að bera saman. Þegar það liggur fyrir verður málið kynnt fyrir HÍÆ. Sveitarstjórn gerði ráð fyrir kostnaði við hönnun gervigrasvallar í fjárhagsáætlun sinni fyrir árið 2025.
3. Sl. sumar komu upp hugmyndir um uppsetningu á strandblakvelli á Gamla róló. Eftir að hugmyndin var grenndarkynnt var fallið frá þeim áformum og vellinum fundinn ný staðsetning innan skólalóðar í nágrenni við íþróttahús. Vonast er til þess að völlurinn komi til framkvæmda nú í sumar.

4.Fyrirspurn fulltrúa B-lista varðandi rekstur sveitarfélagsins Rangárþings eystra.

2501016

Lögð fram fyrirspurn fulltrúa B-lista varðandi rekstur sveitarfélagsins Rangárþings eystra.

Á vinnufundi við gerð fjárhagsáætlunar fyrir fjárhagsárið 2024 var óformlega samþykkt að strax í janúar 2024 yrði hafin vinna við að rýna rekstur sveitarfélagsins Rangárþings eystra í samvinnu við forstöðumenn allra deilda. Ekki hefur farið fram nein kynning á þeirri vinnu fyrir fulltrúa byggðarráðs eða sveitarstjórnar svo spurt er, fór sú vinna af stað og þá hver er staðn á þeirri vinnu.

Ljóst er þó að afkoma sveitarfélgsins sé góð þá er mikilvægt að fylgjast vel með rekstrinum og að hann bólngi ekki óþarflega út þegar vel árar eins og fulltrúar B-lista vöktu máls á við afreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2025.

Hafi sú vinna ekki þegar verið hafin leggjum við til að sú vinna hefjist nú strax í janúar núlíðandi árs, 2025.

Bjarki Oddsson

Lilja Einarsdóttir

Rafn Bersson

Til máls tóku: GHO, AKH, BO, GHO, ÁHS, RB, SKV og TBM.
Tillagan borin undir atkvæði, BO, GHO og RB samþykkja en á móti eru AKH, AHS, SKV, TBM og tillagan því felld.

Bókun D og N-lista: Sú nýbreytni var höfð á við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 að allir forstöðumenn stofnanna sveitarfélagsins komu til fundar með byggðarráði þar sem rekstur og áætlaðar framkvæmdir stofnana voru rýndar. Sú vinna gekk virkilega vel og skilaði sér í mun vandaðri fjárhagsáæltun heldur en oft áður. Að mati D- og N-lista hefur rekstur sveitarfélagsins síður en svo bólgnað út á kjörtímabilinu. Sveitarstjórn og forstöðumenn stofnana hafa lagt sig alla fram við að vanda til rekstrar sveitarfélagsins. Stærsti kostnaðarliður sveitarfélagsins sem hefur vaxið undanfarin ár er launakostnaður, sem fylgt hefur kjarasamningsbundnum hækkunum. Fulltrúar D- og N-lista telja það vera á höndum byggðarráðs ef grunur er um óþarfa þenslu á einstaka liðum að rýna og óska eftir upplýsingum og geta þá brugðist við. Fulltrúar D- og N- lista telja ekki þörf á rýna rekstur sveitarfélagsins í heild að svo stöddu, enda stendur sveitarfélagið vel og líkt og ný samþykkt fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir má glögglega sjá að rekstur sveitarfélagsins er í góðum höndum.

Bókun B-lista: Fulltrúar B-lista telja stöðuga rýni á rekstri sveitarfélagsins vera ábyrga fjármálastjórn, ekki síst á þennslutímum líkt og við erum að upplifa nú. Fulltrúar B-lista harma því afgreiðslu meirihlutans á tillögunni.

5.Gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa 2025

2412012

Lögð fram gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra 2025.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa 2025.

6.Deiliskipulag - Eystra-Seljaland F5

2410033

Landeigandi óskar eftir breytingu á deiliskipulagi, í gildandi tillögu er heimilt að byggja 6.000 m² hótel á einni til tveimur hæðum en með breytingunni verður heimilt að hafa hótelið á tveimur til þremur hæðum. Hámarkshæð er óbreytt eað 11 metrar miðað við gólfkóta. Kvöð um aðkomu hefur einnig verið bætt í greinargerð.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð tillaga verði samþykkt sem textabreyting með vísan í kafla 5.9.3 um hagsmunaaðila og falla frá grenndarkynningu. Skipulags- og umhverfisnefnd metur svo að breytingin hafi ekki áhrif á aðra hagsmunaaðila, hámarkshæð er óbreytt sem og fjöldi gesta helst óbreytt. Kvöð um aðkomu hefur þegar verið þinglýst en nú er henni bætt við í greinargerð skipulagsins.

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

7.Deiliskipulag - Þórólfsfell

2309024

Deiliskipulagstillagan tekur til 10 ha svæðis að Felli, L188953. Heimilt verður að viðhalda núverandi skála eða endurbyggja, hámarksstærð verður allt að 120 m², 45 m² skálavarðarhúsi með geymslu auk þess að heimilt verður að byggja umhverfis rafstöð. Mænishæð verður allt að 6 m. miðað við gólfkóta.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.

8.Deiliskipulag - Bólstaður

2309030

Deiliskipulagstillagan tekur til 3,5 ha svæðis við Bólstað sem tilheyrir þjóðlendunni að Fljótshlóðarafrétt, L233962. Heimilt verður að viðhalda núverandi skála eða endurbyggja, hámarksstærð verður allt að 120 m², 45 m² skálavarðarhúsi með geymslu auk þess að heimilt verður að byggja umhverfis rafstöð. Mænishæð og þakform er frjálst.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.

9.Deiliskipulag - Emstrur, Mosar

2309028

Deiliskipulagstillagan tekur til 3 ha svæðis við Emstrur, Mosa sem tilheyrir þjóðlendunni að Emstrur, L233955. Heimilt verður að viðhalda núverandi skála eða endurbyggja, hámarksstærð verður allt að 100 m², 45 m² skálavarðarhúsi með geymslu auk þess að heimilt verður að byggja allt að 30 m² við núverandi hesthús. Gæta skal samræmis í útliti allra bygginga á staðnum. Mannvirki skulu felld að landi eftir því sem hægt er.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.

10.Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi þorrablót Hvolsvelli 01.02.2025

2501010

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Þorrablótsnefndar Hvolhrepps, um tækifærisleyfi vegna þorrablóts í íþróttahúsinu Hvolsvelli sem haldið verðu 1. febrúar 2025.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

11.Byggðarráð - 270

2412006F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 270. fundar byggðarráðs.
Til máls tóku:
Fundargerð staðfest í heild sinni.

12.Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 86

2412007F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 86. fundar stjórnar Brunarvarna Rangárvallasýslu.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 86 Lagður fram viðauki 1 við samstarfssamning milli Brunavarna Rangárvallasýslu og Landsvirkjunnar. Samningurinn tekur m.a. til búnaðarkaupa, æfinga og fræðslu til starfsmanna virkjannasvæða á framkvæmdatíma til næstu sex ára. Stjórn fagnar því að samningur sé kominn á, en hann mun styrkja starfsemi Brunavarna Rangárvallasýslu til framtíðar.
    Stjórn samþykkir viðaukan fyrir sitt leiti og felur formanni stjórnar og slökkviliðsstjóra að undirrita viðauka við samninginn.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 86 Lögð fram tillaga að greiðslufyrirkomulagi til Fastus vegna smíði á nýjum slökkviliðsbíl fyrir Brunavarnir Rangárvallasýslu. Greiðslufyrirkomulag verður með eftirfarandi hætti: janúar 2025 10%, maí 2025 30%, við afhendingu sem áætluð er í október 2025 50%, eftir þjálfun starfsmanna á bílinn 10%.
    Áætlað kaupverð skv. tilboði Fastus eru tæpar 125.000.000 kr. Brunavarnir Rangárvallasýslu munu fjármagna bílakaupin með eigin fé og lántöku.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

13.Fjölmiðlaskýrsla 2024

2501013

Lögð fram til kynningar fjölmiðlasýrsla Rangárþings eystra 2024.
Lagt fram til kynningar.

14.Veiðifélag Eystri-Rangár; 16.01.25

2501014

Laft fram til kynningar fundarboð aðalafundar Veiðifélags Eystri Rangár sem haldinn verður 16. janúar nk.
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjóra falið að sækja fundinn f.h. Rangárþings eystra.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 14:00.