2408065
Deiliskipulagstillagan tekur til sjö lóða á 5,3 ha spildu. Heimilt verður að byggja allt að 400 m² íbúðarhús og bílskúr á B1, á B2-B4 verður heimilt að reisa þrjú 50 m² gestahús, á B5 verður heimilt að byggja 400 m² áhaldageymslu, á B6 verður heimilt að reisa 1.000 m² reiðskemmu og á B7 verður undir allt að 200 m² gróðurhús. Hámarkshæð húsa er 8,5 m frá jörðu. Þakgerð er frjáls en mannvirki skulu falla sem best að umhverfinu. Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst, frá 14. september til og með 31. október 2024. Umhverfisstofnun hefur kynnt sér tillöguna og veitir ekki umsögn, Vegagerðin gerir ekki athugasemd en Heilbrigðiseftirlit Suðurlands leggur bendir á að samnýta skuli hreinsivirki og bendir á ósamræmi í texta. Brugðist hefur verið við athugasemdum Heilbrigðiseftirlitsins með því að samnýta hreinsivirki og skerpt hefur verið á texta.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í fundarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri, Árný Hrund Svavarsdóttir, Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Lilja Einarsdóttir. Bjarki Oddsson, Guri Hilstad Ólason í fjarveru Rafns Bergssonar ogoddviti Tómas Birgir Magnússon. Margrét Jóna Ísólfsdóttir skrifstofu- og fjármálastjóri sem ritar fundargerð og Sigurmundur Jónsson sem sér um upptöku og útsendingarmál.