330. fundur 17. október 2024 kl. 12:00 - 13:18 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Elvar Eyvindsson varamaður
    Aðalmaður: Sigríður Karólína Viðarsdóttir
  • Árný Hrund Svavarsdóttir aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Sigurmundur Páll Jónsson yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Fjármála- og skrifstofustjóri
Dagskrá
Tómas Birgir Magnússon oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð. Engar athugasemdir bornar upp.

Í fudnarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri, Tómas Birgir Magnússon oddviti, Árný Hrund Svavarsdóttir, Elvar Eyvindsson í fjarveru Sigríðar Karólinu Viðarsdóttur, Lilja Einarsdóttir, Rafn Bergsson, Bjarki Oddsson og Margrét Jóna Ísólfsdóttir sem ritar fundargerð og Sigurmundur Páll Jónsson sem sér um tækni- og útsendingarmál.

1.Minnisblað sveitarstjóra; 17. október 2024

2410043

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um helstu verkefni liðinna vikna.
Til máls tóku: AKH og LE.
Lagt fram til kynningar.

2.Breytingar á samþykktum; Skipan í nefndir og ráð

2410045

Nýjar samþykktir um stjórn Rangárþings eystra, hafa verið samþykktar af ráðuneyti og auglýstar í Stjórnartíðindum og í kjölfarið tekið gildi. Lögð fram tillaga samkvæmt breytingum á samþykktunum um skipa í nýtt jafnréttisráð og breytignar vegna fækkunar á fulltrúum í markaðs- og menningarnefnd og heilsu,- íþrótta- og æskulýðsnefnd.
TIl máls tók: LE, AKH.
Sveitarstjórn skipar í eftirfarandi nefndir vegna breytinga á samþykktum Rangárþings eystra:

Jafnréttisráð:
Aðalmenn.
Árný Hrund Svavarsdóttir
Guðni Ragnarsson
Guri Hilstad Ólason
Varamenn.
Sigríður Karólína Viðarsdóttir
Tómas Birgir Magnússon
Oddur Helgi Ólafsson

Markaðs- og menningarnefnd:
Aðalmenn.
Kristín Jóhannsdóttir
Christiane L. Bahner
Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir
Konráð Helgi Haraldsson
Guri Hilstad Ólason
Varamenn.
Sigríður Karólína Viðarsdóttir
Tómas Birgir Magnússon
Guðni Ragnarsson
Ágúst Jensson
Kolbrá Lóa Ágústsdóttir

Heilsu,- íþrótta- og æskulýðsnefnd:
Aðalmenn.
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Sandra Sif Úlfarsdóttir
Bjarni Daníelsson
Kolbrá Lóa Ágústsdóttir
Ástvaldur Helgi Ólafsson
Varamenn.
Ólafur Þórisson
Árný Hrund Svavarsdóttir
Sigurður Orri Baldursson
Lea Birna Lárusdóttir
Oddur Helgi Ólafsson

Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.


Bókun B-lista:
Fulltrúar B-lista vilja vekja athygli á að í tilnefningu fulltrúa meirihluta í Markaðs- og menningarnefnd er ekki tekið tillit til kynjajafnréttis í nefndinni og allir tilnefndir fulltrúar þeirra í nefndina sama kyns, en Rangárþing eystra hefur lagt áherslu á að stuðla að kynjajafnrétti í stjórnsýslunni og rétt að sömu kröfur séu til bæði minni og meirihluta hvað það varðar.
Lilja Einarsdóttir,
Rafn Bergsson,
Bjarki Oddsson.




Fylgiskjöl:

3.Tillaga um útsvarsprósentu 2025

2410010

Á 264. fundi byggðarráðs var tekið fyrir málið: Tillaga um útsvarsprósentu 2025

Eftirfarandi bókun var samþykkt: Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að útsvarsprósenta ársins 2025 verði óbreytt eða 14,97%. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir að útsvarspósenta ársins 2025 verði óbreytt eða 14,97%.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

4.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2024

2409103

Byggðarráð samþykkti á fundi sínum þann 3. október 2024, fyrir sitt leiti viðauka 1 við fjárhagsáætlun Rangárþings eystra með þremur samhljóða atkvæðum. Í viðaukanum er tilfærsla milli liða, gjöld hækka um 39.500.000 og hækka tekjur um 46.500.000. Viðkaukinn gerir því ráð fyrir 7.000.000 kr hækkun á rekstrarafgangi árið 2024.



Til máls tóku: LE og AKH.
Sveitarstjórn samþykkir viðauka 1 við fjárhagsáætlun Rangárþings eystra 2024 með 7 samhljóða atkvæðum.

5.Tillaga B-lista um heilsugæslumál

2410050

Lögð fram tillaga B-lista um stöðu heilsugæslu í Rangárþingi eystra.
Til máls tólku. LE, AKH og TBM.
Sveitarstjórn samþykkir tillögu B- lista og felur sveitarstjóra að óska eftir fundi við forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Hlé gert á fundi 12:38.

6.Tillaga B-lista um aukið fjarmágn í Menningarsjóð

2410051

Lögð fram tillaga B-lista um að auka fjármagn til Menningarsjóðs Rangárþings eystra.
Til máls tóku: BO, AKH og TBM.

Tillaga borin upp til atkvæða. Með þrír fulltrúar B-lista LE, BO og RB á móti fjórir fulltrúar D og N lista, AKH, ÁHS, EE og TBM. Tillagan er því felld.

Bókun D og N lista.
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar hafna fram kominni tillögu að svo stöddu. Tillagan er engu að síður mjög góð en fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar telja eðlilegast að umræða um hana sem og annarra útgjalda sveitarfélagsins fyrir árið 2025, verði tekin fyrir í vinnu sveitarstjórnar við fjárhagsáætlun fyrir árið 2025.
Anton Kári Halldórsson,
Árný Hrund Svaarsdóttir,
Elvar Eyvindsson,
Tómas Birgir Magnússon.
Fundur hefst á ný 12:49.

7.Norðurljósabílastæði

2410039

Á 21. fundi markaðs- og menningarnefndar var tekið fyrir mál þar sem óskað er eftir tillögum að hentugum staðsetningum fyrir norðurljósabílastæði. Bílastæðin myndu tryggja bæði öryggi ferðamanna og íbúa ásamt því að þjóna markaðslegum tilgangi fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu.



Markaðs- og menningarnefnd tekur vel í hugmyndina um bílastæði fyrir norðurljósa skoðun. Markaðs- og menningarnefnd leggur til við sveitarstjórn að hefja vinnu við tillöguna.
Til máls tóku: AKH, BO og TBM.
Sveitarstjórn tekur vel í erindi markaðs- og menningarnefndar og felur markaðs- og kynningarfulltrúa ásamt skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

8.Reglur um stöðureiti og gjaldtöku við Skógafoss

2410044

Lagðar fram drög að reglum um stöðureiti og gjaldtöku við Skógafoss.
Sveitarstjórn samþykkir reglur um stöðureiti og gjaldtöku við Skógafoss og felur sveitarstjóra að birta þær í b-deild stjórnartíðinda.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

9.Landskipti - Efri-Hóll

2409059

Óskað er eftir að stofna spildu úr landi Efri-Hóls, L163755. Lagt er til að hin nýja spilda fái staðfangið Efri-Hóll 2 og verði 10,3 ha að stærð. Samhliða landskiptum er verið að afmarka upprunalandið.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt tillögu að nýju staðfangi.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir landskiptin og hið nýja staðfang. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

10.Landskipti - Dílar, vegsvæði

2409046

Óskað er eftir að stofna spildu úr landi Díla, L226208. Hin nýja spilda fær staðfangið Dílar, vegsvæði og verður 7.410 m² að stærð.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt tillögu að nýju staðfangi.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir landskiptin og hið nýja staðfang. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

11.Landskipti - Steinmóðarbær, land

2409095

Óskað er eftir að stofna spildu úr landi Steinmóðarbæjar, L19197. Verið er að stofna 7.410 m² spildu, lagt er til að spildan fái staðfangið Steinmóðarbær, land vegsvæði.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin en leggur til við sveitarstjórn að spildan fái staðfangið Steinmóðarbær, vegsvæði 2 með vísan í reglugerð 577/2017.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir landskiptin og hið nýja staðfang. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

12.Ósk um breytt staðfang - Ytra-Seljaland, frístundabyggð

2409031

Landeigandi óskar eftir staðfangabreytingu fyrir frístundalóðir úr landi Ytra-Seljalands, tillaga að nýju staðfangi verður Móland.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að nýju staðfangi fyrir frístundarlóðirnar og leggur til við sveitarstjórn að staðfangabreytingin verði samþykkt.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir hið nýja staðfang. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

13.Ósk um breytt staðfang - Voðmúlastaðir, lóð

2409092

Landeigandi óskar eftir staðfangabreytingu á lóðinni Voðmúlastaðir lóð, L176719 verði breytt í Grænaborg.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við staðfangabreytinguna og leggur til við sveitarstjórn að lóðin fái staðfangið Grænaborg.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við staðfangabreytinguna og leggur til við sveitarstjórn að lóðin fái staðfangið Grænaborg.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir hið nýja staðfang. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

14.Aðalskipulag - Miðeyjarhólmur

2404212

Með aðalskipulagsbreytingunni er verið að taka um 150 ha landbúnaðarlandi (L1 og L2) í skógræktarsvæði (SL).

Skipulagslýsingin var kynnt frá 29. maí til 19. júní 2024. Umsagnir bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum. Vegagerðin og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gera engar athugasemdir en Umhverfisstofnun bendir á skráðar vistgerðir sem skuli vernda ásamt ábyrgðarfuglum Íslands sem heldur sig til á svæðinu. Skipulagsstofnun bendir á verndun góðs landbúnaðarlands, fjalla þurfi um verndun fugla á svæðinu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar fyrir auglýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillaga að aðalskipulagsbreytingu verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar fyrir auglýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

15.Deiliskipulag - Ey

2401095

Um ræður breytingu á deiliskipulagi að Ey sem samþykkt var 14.febrúar 2013. Tillagan gerir ráð fyrir einni íbúðarhúsalóð sem er 2 ha. að stærð með heimild fyrir 300 m² íbúðarhúsi. Við yfirferð Skipulagsstofnunar, dags. 2. september 2024 þar sem bent var á að sýna þurfi aðkomu að nýrri lóð og gera þurfi grein fyrir núverandi mannvirkjum, bendir skipulags- og umhverfisnefnd á að engin mannvirki eru á hinni nýju lóð. Svarbréf athugasemda verður sent til landeigenda ásamt því að vera sent í gáttina. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd og auglýst í B-deild stjórnartíðinda skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði afgreidd og auglýst í B-deild stjórnartíðinda skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

16.Deiliskipulag - Strönd 1a

2405075

Deiliskipulagstillagan nær til 6 ha svæðis jarðarinnar Strönd 1a, L220959. Heimilt verður að byggja allt að 500 m² íbúðarhús, 150 m² starfsmannahús, 800 m² hesthús ásamt reiðhöll og 400 m² skemmu. Hámarkshæð íbúðarhúsa er allt að 5 m en landbúnaðarbygginga allt að 7 m. Einnig er gert ráð fyrir skeiðvelli á svæðinu. Deiliskipulagstillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 21. júní til og með 9. ágúst 2024 en rataði því miður ekki í blað á landsvísu og var því auglýst aftur með framlengdum athugasemdafrest til 4. október sl. Engar athugasemdir bárust en Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bendir framkvæmdaraðilum á leiðbeiningar og reglugerðir um fráveitur. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

17.Deiliskipulag - Káragerði

2408018

Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir 2,8 ha lóð úr landi Káragerðis. Heimilt verður að byggja íbúðarhús ásamt þremur aukahúsum, gestahús, gróðurhús og hesthús eða skemmu. Heildarbyggingarmagn verður allt að 800 m², hámarkshæð mænis frá plötu eru 8 m og þakhalli 0-60 gráður.

Deiliskipulagið var auglýst og sent til umsagnaraðila frá 18. ágúst 2024 með athugasemdafrest til og með 29. september 2024. Engar athugasemdir bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

18.Deiliskipulag - Ormsvöllur og Dufþaksbraut

2401053

Um er að ræða breytingu á gildandi deiliskipulagi athafnasvæðis við Ormsvöll og Dufþaksbraut. Núverandi hesthúsalóðir eru víkjandi og er áformað að breyta lóðum í atvinnulóðir um leið og lóðum er fækkað og þær stækkaðar. Gert er ráð fyrir hringtorgi á gatnamótum Ormsvalla og Hlíðarvegar og hefur það áhrif á Ormsvöll 27 og Hlíðarveg 16. Hámarkshæð húsa fer úr 6m í 6,5 m.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: BO, AKH og EE.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

19.Deiliskipulag - Austurvegur á Hvolsvelli

2406012

Deiliskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir breytingum á Austurvegi í gegnum Hvolsvöll, verið er að stækka beygjuvasa, fækka inn- og útkomuleiðum ásamt því að aðkoma við Hlíðarveg og Suðurlandsveg til austurs færist. Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 21. júní til 9. ágúst 2024 en rataði því miður ekki í blað á landsvísu og var því auglýst aftur með framlengdum athugasemdafrest til 4. október sl. Engar athugasemdir bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum varðandi tillöguna en athugasemd barst frá hluta af lóðareigendum að Austurvegi 2, athugasemdirnar snéru að inn- og útkeyrsla við lóðina verði fjarlægð, bílastæðum fækkað en einnig er bent á tilfrærða aðkomu innan lóðar. Deiliskipulagsbreytingin er liður í umferðaröryggisáætlun Rangárþings eystra sem var unnin af sérfræðingum 2022 varðandi umferðaröryggi í þéttbýli Hvolsvallar og er stefna sveitarfélagsins að bæta aðstæður við Austurveg/Suðurlandsveg sem og á öðrum stöðum í þorpinu. Aðkomu lóðarinnar var breytt í gildandi deiliskipulagi, samþykktu 2020 en að mati nefndarinnar getur sú aðkoma haft jákvæð áhrif á lóðina með uppbyggingu miðbæjarsvæðisins. Nefndin gerir ekki athugsemd við framlögð drög að viðbrögðum við athugsemdum. Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna áfram að afmörkun lóðarinnar. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: BO og AKH.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

20.Umsögn - deiliskipulagstillaga að Tindaseli, Rangárþingi ytra

2409054

Rangárþing ytra óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna deiliskipulagstillögu að Tindaseli, áður Stokkalæk. Tillagan gerir ráð fyrir hótel byggingu fyrir allt að 200 gesti, veitingasölu og aðstöðu fyrir starfsfólk.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlögð drög að umsögn og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram og senda til Rangárþings ytra.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að senda meðfylgjandi umsögn. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

21.Byggðarráð - 263

2409007F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 263. fundar byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild.

22.Byggðarráð - 264

2409010F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 264. fundar byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild.

23.Njálurefill; Viðskiptaáætlun

2410046

Lögð fram til kynningar viðskiptaáætlun Njálurefils.
Til máls tók: TBM.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:18.