249. fundur 11. apríl 2019 kl. 12:00 - 16:46 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Guðmundur Jón Viðarsson aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir oddviti
  • Benedikt Benediktsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Christiane L. Bahner aðalmaður
  • Harpa Mjöll Kjartansdóttir varamaður
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Kolefnisjöfnun Rangárþings eystra

1904148

Rangárþing eystra láti reikna út kolefnisspor sitt, í rekstri sveitarfélagsins. Setji sér í kjölfarið áætlun um kolefnisjöfnun rekstrarins.
Sveitarstjórn samþykkir að Rangárþing eystra láti reikna út kolefnisspor sitt, í rekstri sveitarfélagsins, og setji sér síðan áætlun um kolefnisjöfnum.
Með kolefnisjöfnun er átt við að losun sveitarfélagsins á CO2 vegna reksturs verði mætt og jöfnuð út með bindingu á kolefni í gróðri og jarðvegi með landgræðslu og öðrum endurheimtaraðgerðum.
Með endurheimt vistkerfa er m.a. átt við uppgræðslu rofins lands, endurheimt birki- og víðikjarrs og endurheimt votlendis. Uppgræðsla lands felur í sér, allt eftir aðstæðum, áburðargjöf með eða án sáninga og gróðursetningu trjáplantna. Endurheimt votlendis felur í sér að hækka grunnvatnsstöðu raskaðra votlenda og stöðva þar með losun gróðurhúsalofttegunda. Endurheimt vistkerfa hefur jákvæð áhrif á gróður og jarðveg, dýralíf, almennt heilbrigði vistkerfa (vatnsbúskap, næringarástand) sem og upplifun fólks sem um þau fara. Allar þessar aðgerðir stuðla að jákvæðri þróun loftslags m.t.t. gróðurhúsalofttegunda.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að vinna að málinu.

2.Nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu; umsögn í samráðsgátt

1904067

Afgreiðslu frestað til næsta fundar byggðarráðs.

3.Áform Fjármálaráðuneytisins um skerðingar á tekjum Jöfnunarsjóðs

1904063

Sveitarstjórn Rangárþings eystra mótmælir harðlega þeim áformum fjármálaráðherra og ríkisstjórnar að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um a.m.k. 2,8 milljarða á árunum 2020 og 2021. Skerðingin kemur harðast niður á útgjaldajöfnunarframlögum, en þau renna einkum til sveitarfélaga á landsbyggðinni sem hafa mörg hver veikan fjárhag. Skerðingin kemur einnig niður á framlögum til þjónustu við fatlað fólk og getur falið í sér að dregið verði úr þeirri þjónustu.
Áætlað tekjutap sveitarfélaga á Suðurlandi af framlögum til útgjaldajöfnunar og vegna fasteignaskatts er um 505 millj.kr. og vegna málefna fatlaðra 29 millj.kr. Framlög til málefna fatlaðra hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaði og bætir þetta ekki stöðu þess málaflokks.
Samkvæmt útreikningum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lækka framlög til Rangárþings eystra um 6,1% á tímabilinu og er það töluvert meiri lækkun en meðaltals lækkun á landsvísu, sem talin er verða 3,6%.
Árið 2015 voru samþykktar leiðréttingar á framlögum til málefna fatlaðra sem námu um 1,5 milljarði króna. Sú niðurstaða var samkomulag sem byggði á löngu og ítarlegu samráðsferli milli ríkis og sveitarfélaga. Að þurrka nánast út með einu pennastriki þann árangur sem þá náðist er í hróplegu ósamræmi við það samstarf við ríkið sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt mikla vinnu í að styrkja á liðnum áratug.
Einhliða ákvörðun ríkisvaldsins af þessu tagi er í andstöðu við það formlega samráðsferli ríkis og sveitarfélaga sem hefur þróast á undanförnum árum og fela áform þessi í sér algeran trúnaðarbrest gagnvart sveitarfélögunum í landinu. Ekki getur með nokkrum hætti talist eðlilegt að áhersla á að bæta afkomu ríkissjóðs skili sér í skerðingum á tekjum sveitarfélaganna, sem standa undir mjög stórum hluta almannaþjónustu í landinu.
Sveitarstjórn krefst þess að áform um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs verði afturkölluð þegar í stað.
Samþykkt samhljóða.

4.Erindi um tilnefningu fulltrúa á samráðsvettvang Sóknaráætlunar Suðurlands

1902323

Sveitarstjórn tilnefnir Guðmund Jón Viðarsson og Lilju Einarsdóttur sem kjörna fulltrúa sveitarfélagsins. Sveitarstjórn tilnefnir Elínu Fríðu Sigurðardóttur og Benedikt Benediktson til vara.
Samþykkt samhljóða.

5.Jafnréttisstofa; Beiðni um afhendingu á jafnréttisáætlun

1904058

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að afhenta Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.

6.Jafnréttisáætlun Rangárþings eystra; 2019-2022

1904069

Sveitarstjórn þakkar Jafnréttisnefnd fyrir vel unnin störf við gerð áætlunarinnar. Áætlunin er samþykkt samhljóða og felur sveitarstjórn sveitarstjóra í samvinnu við fjármálastjóra að útbúa kostnaðaráætlun við framkvæmd jafnlaunavottunar skv. meðfylgjandi framkvæmdaáætlun.
Samþykkt samhljóða.

7.Byggðarráð - 179

1903004F

Fundargerð samþykkt samhljóða.
Guðmundur Úlfar Skipulags- og byggingarfulltrúi kemur á fund.

8.Skipulagsnefnd - 68

1904001F

Fundargerð samþykkt í heild.
Guðmundur Úlfar Skipulags- og byggingarfulltrúi fer af fundi.
  • 8.1 1511092 Miðbær; deiliskipulag; endurskoðun
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagsnefnd fór yfir innkomnar athugasemdir og umsagnir við tillöguna. Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að svara athugasemdum og umsögnum í samræmi við umræður á fundinum. Í kjölfar athugasemda verða gerðar óverulegar breytingar á tillögunni og endanleg tillaga mun liggja fyrir á næsta fundi skipulagsnefndar. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.
  • 8.2 1804020 Núpur 2; Deiliskipulag
    Skipulagsnefnd - 68 Eftir yfirferð Skipulagsstofnunar komu athugasemdir sem nú hefur verið brugðist við með óverulegum breytingum á tillögunni. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send aftur til Skipulagsstofnunar til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send aftur til Skipulagsstofnunar til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • 8.3 1703021 Eyvindarholt-Langhólmi; Deiliskipulag
    Skipulagsnefnd - 68 Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar nema frá lögboðnum umsagnaraðilum. Brugðist hefur verið við athugasemdum frá umsagnaraðilum og gerðar óverulegar breytingar á tillögunni. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send aftur til Skipulagsstofnunar til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • 8.4 1901037 Brúnir 1; Aðalskipulagsbreyting
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagstillagan var auglýst frá 20. febrúar til 3. apríl 2019. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma nema frá lögboðnum umsagnaraðilum, og er búið að bregðast við þeim öllum og gera óverulegar breytingar á tillögunni. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt og send til staðfestingar Skipulagsstofnunar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send til staðfestingar Skipulagsstofnunar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • 8.5 1805024 Brúnir 1; Deiliskipulag
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagstillagan var auglýst frá 20. febrúar til 3. apríl 2019. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma nema frá lögboðnum umsagnaraðilum, og er búið að bregðast við þeim öllum með óverulegum breytingum á tillögunni. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send aftur til Skipulagsstofnunar til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • 8.6 1901010 Útskák; Aðalskipulagsbreyting
    Skipulagsnefnd - 68 Lýsing aðalskipulagsbreytingar hefur nú þegar verið auglýst og umsagnarfrestur liðinn. Umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum. Tillagan hefur verið kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með opnu húsi hjá skipulagsfulltrúa 16. janúar 2019. Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki tillöguna til auglýsingar og eftir yfirferð Skipulagsstofnunar verði hún auglýst skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir tillöguna til auglýsingar og eftir yfirferð Skipulagsstofnunar verði hún auglýst skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • 8.7 1902167 Landeyjahöfn; Framkvæmdaleyfi fyrir hleðslustöð og spenni
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis með fyrirvara um breytingar á gildandi deiliskipulagi. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis með fyrirvara um breytingar á gildandi deiliskipulagi.
  • 8.8 1903146 Landskipti; Hesteyrar 3
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagsnefnd bendir á að gera þarf kröfu um aðgengi að lóðinni Heysteyrum 3 á uppdrætti. Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við landskiptin og heitið á spildunni.

    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir landskiptin og heitið á spildunni.
  • 8.9 1903177 Landskipti; Hólmur
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagsnefnd bendir á að gera þarf kröfu um aðgengi að lóðinni Hólmur 2 á uppdrætti. Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við landskiptin og heitið á spildunni. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir landskiptin og heitið á spildunni.
  • 8.10 1903201 Umsókn um lóð
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir úthlutun lóðarinnar.
  • 8.11 1903377 Deiliskipulag; Ystabælistorfa, óveruleg breyting
    Skipulagsnefnd - 68 Að mati skipulagsnefndar er um óverulega frávik frá gildandi deiliskipulagi að ræða. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði afgreidd skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • 8.12 1903387 Umsókn um flutning á húsi; Gimbratún 33
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagsnefnd samþykkir flutning á húsi á lóðina Gimbratún 33. Skipulagsnefnd hafnar ósk um staðsetningu á húsi utan byggingareits. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.
  • 8.13 1904002 Umsókn um stöðuleyfi
    Skipulagsnefnd - 68 Skipulagsnefnd samþykkir veitingu stöðuleyfs fyrir tvo 40 feta geymslugáma undir áhöld tengd rekstri hótelsins. Skipulagsnefnd hafnar veitingu stöðuleyfis undir fjögur stöðuhýsi fyrir starfólk þar sem um er að ræða byggingarleyfisskylda framkvæmd. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.

9.Menningarnefnd - 26

1902007F

Fundargerð staðfest.
  • Menningarnefnd - 26 Þórður Freyr Sigurðarson, verkefnastjóri hjá SASS kom inn á fundinn og veitti ráðgjöf um gerð reglna fyrir Menningarsjóð Rangárþings eystra. Reglunum vísað til samþykktar í sveitarstjórn. Bókun fundar Sveitastjórn samþykkir úthlutunarreglur menningarnefndar með áorðnum breytingum á 7. lið. Sveitarstjórn leggur til að febrúar úthlutun sjóðsins árið 2019 verði auglýst og fari fram nú á vordögum.
    Samþykkt samhljóða.
  • Menningarnefnd - 26 Menningarnefnd þakkar fyrir umsóknina. Verið er að leggja lokahönd á úthlutunarreglur fyrir Menningarsjóð Rangárþings eystra. Umsóknin verður tekin fyrir eftir að auglýst hefur verið eftir styrkjum úr þeim sjóði.
  • Menningarnefnd - 26 Menningarnefnd þakkar fyrir umsóknina. Verið er að leggja lokahönd á úthlutunarreglur fyrir Menningarsjóð Rangárþings eystra. Umsóknin verður tekin fyrir eftir að auglýst hefur verið eftir styrkjum úr þeim sjóði.
  • Menningarnefnd - 26 Menningarnefnd þakkar fyrir umsóknina. Verið er að leggja lokahönd á úthlutunarreglur fyrir Menningarsjóð Rangárþings eystra. Umsóknin verður tekin fyrir eftir að auglýst hefur verið eftir styrkjum úr þeim sjóði.
  • Menningarnefnd - 26 Menningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með þetta frábæra verkefni og er til taks ef þurfa þykir.
  • Menningarnefnd - 26 Kjötsúpuhátíð 2019

    Menningarnefnd ákveður að halda opinn íbúafund um Kjötsúpuhátíðina 2019 í byrjun apríl þar sem að íbúum mun gefast kostur á að ræða um framkvæmd og undirbúning hátíðarinnar.

10.13. fundur; Velferðarnefnd; 26. mars 2019a

1904071

Fundargerð staðfest.

11.41. fundur; Fræðslunefnd; 3. apríl 2019

1904136

Sveitarstjórn samþykkir að veittur verði auka starfsdagur starfsmanna við leikskólan Örk á skólaárinu 2019-2020 skv. 6. lið í fundargerð nefndarinnar.
Fundargerð 41. fundar fræðslunefndar staðfest að öðru leiti.

12.38. fundur stjórnar Félag- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu; 26. mars 2019

1904074

Sveitarstjórn samþykkir ákvörðun stjórnar skv. 1. lið fundargerðar og lýsir yfir ánægju með niðurstöðu málsins.
Skv. 3. lið fundargerðar samþykkir sveitarstjórn fyrir sitt leiti að ráðin verði kennsluráðgjafi í 70-100% stöðu skv. ábendingu stjórnar.
Í Hvolsskóla eru starfandi sérkennarar og tekur því sveitarstjórn undir bókun stjórnarinnar um að tafarlaust verði ráðnir sérkennarar til starfa við alla aðra grunnskóla á svæðinu.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

13.Samráðsnefnd sorpsamlaganna á suðvesturlandi; fundargerð; 18. mars 2019

1904076

Fundargerð lögð fram.

14.Lögreglustjórinn á Suðurlandi; kynning á löggæslu og almannavörnum í sveitarfélaginu

1904147

Heimsókn kl 13.00
Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri og Björn Ingi Jónsson verkefnastjóri almannavarna á Suðurlandi koma og kynna sín störf.
Sveitarstjórn þakkar þeim Kjartani Þorkelssyni og Birni Inga Jónssyni fyrir fróðlega og upplýsandi kynningu á starfsemi embætti Lögreglustjórans á Suðurlandi. Sveitarstjórn lýsir yfir ánægju sinni hversu mikið embættið hefur elfst og uppbygging gengið vel svæðinu til heilla.

15.Ferðamenn í Rangárþingi eystra 2008 - 2018

1904006

Skýrslan lögð fram til kynningar.
Í ljósi stór aukinnar fjölgunar gesta sem ferðast með bílaleigubílum skorar sveitarstjórn á stjórnvöld að styðja betur við almenningssamgöngur og efla verulega viðhald og uppbyggingu á vegum í sveitarfélaginu. Í Rangárþingi eystra eru gríðarlega fjölsóttir áfangastaðir og slysahætta á vegum hefur aukist mjög mikið.

16.Bréf um almennt eftirlit með fjármálum og fjármálastjórn sveitarfélaga

1904057

Lagt fram til kynningar.

17.Fundur vegna þjóðlendumála

1807019

Forsætisráðuneytið hyggst halda fund mánudaginn 3. júní nk. í Hvoli Hvolsvelli.
Lagt fram til kynningar.

18.Styrktarsjóður EBÍ; óskað eftir umsóknum vegna úthlutunar 2019

1904133

Sveitarstjóra falið að sækja um styrk fyrir hönd sveitarfélagsins.

19.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2019

1902326

Bókun sveitarstjórnar vegna fyrirhugaðs frumvarps um innflutning á hráu kjöti.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra lýsir yfir vonbrigðum sínum með framkomið frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Landbúnaður er ein af grunnstoðum atvinnulífs í Rangárþingi eystra sem nauðsynlegt er að standa vörð um. Með breytingum á ofangreindum lögum er verið að tefla í tvísýnu lýðheilsu þjóðarinnar, ógna hreinleika íslenska búfjárstofnsins auk þess sem grafið er undan fæðuöryggi Íslendinga.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra hvetur íslensk stjórnvöld til að kanna til hlítar hvort ekki megi endurskoða viðkomandi ákvæði innan EES samningsins með það að markmiði að sækja um undanþágu fyrir Ísland vegna sérstöðu landsins m.a. með tilliti til lítillar notkunar á sýklalyfjum í landbúnaði og alþjóðlegra skuldbindinga hvað varðar verndun íslenskra búfjárkynja.

Sveitarstjórn gagnrýnir einnig hversu skammt á veg undirbúningur fyrirhugaðra mótvægisaðgerða virðist vera kominn og styður framkomnar kröfur um að innflutt kjöt og egg verði ekii leyst úr tolli fyrr en Matvælastofnun hefur staðfest með sýnatöku að ekki séu sýklalyfjaónæmar bakteríur til staðar í viðkomandi vörum.
Gestir beðnir að yfirgefa fundarherbergi.

20.Trúnaðarmál

1904149

Fært í trúnaðarmálabók.

21.Trúnaðarmál

1903080

Fært í trúnaðarmálabók.

22.Trúnaðarmál

1904127

Fært í trúnaðarmálabók.
Lilja Einarsdóttir yfirgefur fundinn og Guri Hilstad Olason kemur inn í hennar stað við afgreiðslu mála númer 23 og 24.

23.Trúnaðarmál

1809023

Fært í trúnaðarmálabók.

24.Stuðningshópur Tryggva Ingólfssonar; spurningar er varðar málefni Tryggva

1903266

Viðbrögð við bréfi stuðningshóps Tryggva Ingólfssonar.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra er þakklát fyrir þann stuðning og umhyggju sem íbúar sveitarfélagsins sýna sveitunga sínum. Mál Tryggva Ingólfssonar hefur engan látið ósnortinn og hörmum við þá stöðu sem upp er komin. Þar sem spurningar og fullyrðingar í bréfinu eru mjög gildishlaðnar og varða trúnaðarmál, verður þeim ekki svarað efnislega.

Staðreyndin er sú að allir fagaðilar sem leitað hefur verið til hafa verið þeirrar skoðunar að Dvalar- og hjúkrunarheimilið Kirkjuhvoll sé að svo stöddu ekki í stakk búið til að annast tiltekinn einstakling. Rökin sem standa þar að baki eru einnig trúnaðarmál og verða því ekki rakin hér.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra og stjórnendur Kirkjuhvols hafa unnið skv. aðgerðaráætlun í málinu. Þar hafa allir aðilar lagt sig heilshugar fram um að finna lausn, sem fyrst og fremst snýr að því að tryggja faglega og örugga umönnun viðkomandi á Kirkjuhvoli og hefur samráð verið haft við fagaðila og yfirvöld heilbrigðismála í öllu ferlinu. Auglýsingar eftir fagmenntuðu starfsfólki hafa því miður ekki borið tilætlaðan árangur. Að ekki skuli fást fagmenntað fólk til starfa á Kirkjuhvoli er áhyggjuefni og endurspeglar vanda á landinu öllu.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra ber fullt traust til starfsfólks og stjórnenda Kirkjuhvols og faglegs mats þess í starfi og harmar þá óbilgjörnu umfjöllun sem starfsfólk Kirkjuhvols hefur fengið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum þrátt fyrir yfirlýsingar sveitarstjórnar á ferli málsins.
Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 16:46.