247. fundur 14. febrúar 2019 kl. 12:00 - 14:10 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Elín Fríða Sigurðardóttir aðalmaður
  • Guðmundur Jón Viðarsson aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir oddviti
  • Benedikt Benediktsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Christiane L. Bahner aðalmaður
Starfsmenn
  • Árný Lára Karvelsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Árný Lára Karvelsdóttir Markaðs- og kynningarfulltrúi
Dagskrá
Oddviti biður um að sett sé á dagskrá liður 23 Mál til kynningar; 1902072 Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

Samþykkt samhljóða

Fundarmenn og aðrir viðstaddir voru í byrjun fundar áminntir um að skilja símtæki sín eftir fyrir utan fundarherbergi

1.Framvinda mála eftir dóm Hæstarétts v. Þórólfsfellsgarðs

1606041

Með dómi hæstaréttar var framkvæmdaleyfi fyrir breytingum á Þórólfsfellsgarði fellt úr gildi. Framkvæmdaaðilar hafa unnið að undirbúningi umsóknar nýs framkvæmdarleyfis á undanförnum árum. Sveitarstjórn hvetur framkvæmdaaðila til að flýta þeirri vinnu eins og kostur er og sækja um nýtt framkvæmdarleyfi til sveitarfélagsins. Einnig hvetur sveitarstjórn framkvæmdaaðila til góðs samráðs við landeigendur.

2.Njálurefillinn: Ferð til Bayeux í Frakklandi 25. - 29.4.2019

1808052

Tillaga er um að Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri og Óli Jón Ólason formaður fagráðs Sögusetursins verði fulltrúar sveitarfélagsins í ferðinni.

3.Nýr valkostur í förgun sorps; Tillaga til sveitarstjórnar Rangárþings eystra

1902011

Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið. Ljóst er að mikil vinna er framundan við framtíðar fyrirkomulag sorpmála í Rangárvallasýslu og landinu öllu. Stjórnir sorpstöðvar Suðurlands og Rangárvallasýslu vinna hörðum höndum að málinu. Einn af þeim möguleikum sem teknir eru til skoðunar er brennsla sorps.

4.Strandsvæði Rangárþings; Hugmynd að svæðisgarði frá Markarfljóti að Þjórsá

1601067

Halldór Hróarr Sigurðsson kemur og kynnir verkefnið
Sveitarstjórn þakkar Halldóri fyrir greinargóða kynningu. Sveitarstjórn hvetur ríkisstofnanir til að ná samkomulagi við landeigendur um eignarhald svæðisins svo að verkefnið geti haldið áfram. Meðan ekkert er aðhafst í málinu varðandi eignarhald getur verkefnið ekki þróast áfram.

5.Áfangastaðaáætlun DMP fyrir Suðurland

1802031

Sveitarstjórn lýsir ánægju sinni með áætlunina. Verður hún m.a. höfð til hliðsjónar við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Sveitarstjórn vísar áætluninni til kynningar í skipulagsnefnd, atvinnumálanefd og landbúnaðarnefnd sem og Ungmennaráði. Sveitarstjórn óskar eftir að höfundar áætlunarinnar komi og kynni verkefnið á næsta fundi sveitarstjórnar. Fulltrúar þeirra nefnda sem áætlunin er vísað til verða einning boðaðar á fundinn.

6.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5-1998, með síðari breytingum (kosningaaldur)

1902024

Sveitarstjórn vísar erindinu til umfjöllunar á fundi ungmennaráðs sem haldinn verður 15. febrúar 2019. Sveitarstjóri fylgir málinu úr hlaði á fundinum.

7.Umsókn um tækifærisleyfi; Heimaland þorrablót

1902027

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.

8.Umsögn; Kanastaðir gistileyfi

1902030

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn

9.Byggðarráð - 177

1901005F

10.Skipulagsnefnd - 66

1902001F

Fundargerð samþykkt í heild sinni.
  • Skipulagsnefnd - 66 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á nýju lóðunum. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir landskiptin og heitin á nýju lóðunum.
  • Skipulagsnefnd - 66 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á nýju spildunni. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir landskiptin og heitið á nýju spildunni.
  • Skipulagsnefnd - 66 Aðalskipulagsbreytingin hefur verið auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umsagnarfrestur liðinn. Umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum og íbúum í nágrenni skipulagssvæðis. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins og felur skipulagsfulltrúa að afla frekari gagna. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 66 Aðalskipulagsbreytingin hefur verið auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umsagnarfrestur liðinn. Umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum og íbúum í nágrenni skipulagssvæðis.
    Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afla frekari gagna varðandi málið. Skipulagsnefnd frestar erindinu.
    Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar.
  • Skipulagsnefnd - 66 Skipulagsnenfd mælir með að því Stellu Sólveigu Pálmarsdóttur verði úthlutað lóðinni Hvolstún 25. Skipulagsnefnd mælir með því að dregið verði úr umsóknum þeim sem bárust vegna lóðanna Nýbýlavegur 12 og 14. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir að Stellu Sólveigu Pálmarsdóttur verði úthlutað lóðinni Hvolstún 25. Um lóðirnar Nýbýlavegur 12 og 14, bárust fleiri en ein umsókn um hverja lóð. Því er fulltrúi sýslumanns Magnea Magnúsdóttir mætt og dregur um úthlutun lóðanna.
    Nýbýlavegur 12, umsækjendur eru Naglverk ehf. og Hvítmaga ehf. Sá sem lóðina hlýtur er Hvítmaga ehf. og til vara Naglverk ehf.
    Nýbýlavegur 14, umsækjendur eru Hafsteinn Sigurbjörnsson, Naglverk ehf. og Hvítmaga ehf. Sá sem lóðina hlýtur er Hafsteinn Sigurbjörnsson og til vara Naglverk ehf.
  • Skipulagsnefnd - 66 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við heitið á spildunni. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir heitið á spildunni.
  • Skipulagsnefnd - 66 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og nöfnin á hinum nýju spildum. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir landskiptin og heitin á nýju spildunum.

11.Sorpstöð Rangárvallasýslu; Stjórnarfundur nr. 200

1902009

Sveitarstjórn fagnar samráði Sorpstöðvarinnar og Umhverfisnefnda í sýslunni.

12.Sorpstöð Rangárvallasýslu; Stjórnarfundur nr. 201

1902010

3. liður
Sveitarstjórn fagnar þeirri tillögu að ráðast eigi í flokkun á lífrænu sorpi og samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti. Mikilvægt er að Sorpstöðin standi fyrir góðri kynningu á nýju fyrirkomulagi við flokkun á lífrænu sorpi.

13.Stjórnarfundur Hulu bs. 7.2.2019

1902025

14.2. fundur stjórnar Skógasafns; 12. nóvember 2018

1902029

Liður 5
Rangárþing eystra samþykkir viðauka við ráðningasamning forstöðumanns fyrir sitt leiti.

15.45. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs

1901079

16.Samband íslenskra sveitarfélaga; Stjórnarfundur nr. 867

1902008

17.Ósk um upplýsingar varðandi breytingar á fjárhagsáætlun árið 2016.

1804041

18.Veitur; Tilkynning um breytingu á verðskrá

1902013

19.Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga

1902014

Húsnæðisáætlun fyrir Rangárþing eystra er nú þegar í vinnslu. Skipulags- og byggingarfulltrúa ásamt sveitarstjóra falið að vinna að endanlegri útfærslu. Áætlunin verði kynnt og borin undir skipulagsnefnd.

20.Sveitarfélögin og heimsmarkmiðin

1902012

21.Drög að reglum um sérkröfur til skólabifreiða

1902021

22.Vinnuskóli fyrir ungmenni; Niðurstöður könnunar meðal sveitarfélaga

1902028

Skýrslunni vísað til Ungmennaráðs, Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefndar og til kynningar í Fræðslunefnd.

23.Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

1902072

Fundi slitið - kl. 14:10.