Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir janúar til september 2025.
Margrét Jóna Ísólfsdóttir fjármálastjóri fer yfir rekstraryfirlit Brunavarna Rangárvallasýslu bs. frá janúar til loka september 2025. Reksturinn er í góðu jafnvægi.
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2026 fyrir Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.
Margrét Jóna Ísólfsdóttir fjármálastjóri Rangárþings eystra fer yfir drög að fjárhagsáætlun Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir árið 2025. Stjórn samþykkir fjárhagsáætlun fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar aðildar sveitarfélaga.