83. fundur 15. júlí 2024 kl. 08:30 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson formaður
  • Eggert Valur Guðmundsson
  • Þráinn Ingólfsson
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Jón Guðmundur Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Anton Kári Halldórsson Formaður
Dagskrá

1.Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.; Útboð á slökkvibíl

2405074

Yfirferð tilboða í nýja slökkvibifreið fyrir Brunavarnir Rangárvallasýslu hefur verið lokið.
Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðenda, Fastus ehf, kt. 640406-1270 að upphæð 124.598.950 kr. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 126.000.000 kr. Stjórn felur slökkviliðsstjóra að undirrita tilboð f.h. Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 09:00.