Lemos Lehmann óska eftir leyfi fyrir listainnsetningu í Tunguskógi, verkið er hugsað sem skúlptúr sem býður gestum að setjast niður, íhuga og hlusta.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í erindið og felur garðyrkju- og umhverfisstjóra að vera tengiliður verkefnisins.
6.Merkjalýsing - Eyvindarmúli
2511022
Merkjalýsingin tekur til jarðarinnar Eyvindarmúli vestri, L224447 en verið er að stofna þrjár nýjar landeignir.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
7.Deiliskipulag - Rauðsbakki
2511090
Deiliskipulagstillagan tekur til 0,5 ha svæðis í landi Rauðsbakka, L163709. Gert er ráð fyrir 16, 20-30 m² húsum fyrir starfsfólk. Hámarksbyggingarmagn innan svæðisins eru 530 m² og hámarkshæð húsa er 4 m frá gólfkóta. Lögð er áhersla á litla sjónmengun og náttúrulegu efni.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst og send til lögbundinna umsagnaraðila skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagstillagan tekur til 9 frístundalóða úr landi Ytra-Seljalands, L163773 eða á 10 ha svæðis. Heimilt verður að byggja sumarhús með geymslu eða allt að 230 m².
Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 22. ágúst til og með 3. október 2025. Veðurstofa Íslands telur ekki þörf á að fara í staðbundið hættumat og Brunavarnir Rangárvallasýslu fjalla um burðargetu vegarins og aðkomu slökkvibíla. Heilbrigðiseftirlitið bendir á að huga skuli að sameiginlegri fráveitu fyrir svæðið. Vegagerðin bendir á að ekki er hægt að halda vegtengingu óbreyttri þar sem hönnunin stenst ekki veghönnunarreglur og að tengingar á svæðinu eru of margar. Minjastofnun Íslands telur að búið sé að klæðskera lóðir frá minjum skv. heimildum en svæðið hefur verið fornminjaskráð. Stofnunin biðlar til landeiganda að vera meðvitað um mögulegar minjar innan svæðisins og minnir á friðhelgunarsvæði fornminja. Umsögn Náttúruverndarstofnunar barst eftir að auglýsingartíma lauk en stofnunin bendir á að svæðið er í næsta nágrenni við náttúruminjasvæðið Seljalandsfoss og Gljúfrabúa sem nýtur sérstakrar verndar. Stofnunin leggur áherslu á að óvissa ríkir um hversu sýnileg áhrif frístundabyggðin kunni að hafa áhrif á verndarsvæðið og að nauðsynlegt sé að framkvæma frekari sjónræna greiningu. Náttúruverndarstofnun bendir einnig á að forðast skuli röskun þeirra náttúrufyrirbæra sem falla undir náttúruvernd nema brýna nayðsyn beri til og ljóst er að aðrir kostir séu ekki fyrir hendi.
Fimm athugasemdir bárust frá einstaklingum sem skora á sveitarfélagið að hafna tillögunni. Í athugasemdunum kemur m.a. fram að áformin muni hafa áhrif á Seljalandsfoss vegna sjón- og ljósmengunar og að Seljalandsfoss er ein af náttúruperlum Suðurlands og að það skuli vernda nærumhverfi fossins. Einnig er fjallað um möguleika á aukinni slysahættu. Gerð er krafa um grenndarkynningu vegna tillögunnar en skipulags- og umhverfisnefnd vísar í skipulagslög nr. 123/2010 en veruleg áform sem þessu eru auglýst en ekki grenndarkynnt.
Í ljósi athugasemda og umsagna leggur skipulags- og umhverfisnefnd til við sveitarstjórn að hafna framlagðri tillögu. Nefndir tekur undir með Náttúruverndarstofnun að Seljalandsfoss sé ein af helstu náttúruperlum Suðurlands og að það sé eitt af hlutverkum sveitarfélagsins að tryggja verndun fossins og umhverfi hans.
Með breytingunni er gert ráð fyrir sértæku íbúðarhúsnæði við Öldubakka og Dalsbakka. Gert er ráð fyrir sex íbúðum og starfsmannaaðstöðu, eða allt að 600 m² á einni hæð. Hámarksmænishæð er 6,5 m. Viðbyggingarmöguleikar við Heilsugæsluna minnkar um 100 m² og hjúkrunarheimilis minnkar um 750 m² á byggingarreit B1. Byggingarreitur B2 og B3 haldast óbreyttir.
Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 13. október til og með 24. nóvember 2025. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Vegagerðin og Eldvarnareftirlit Rangárvallasýslu gera ekki athugasemdir. Míla, Veitur og Rarik hafa kynnt sér tillöguna og óska eftir samráði á framkvæmdar tíma. Hjúkrunarheimilið Kirkjuhvoll hefur kynnt sér tillöguna og gera ekki athugasemd en Heilbrigðisstofnun Suðurlands gerði athugasemd fyrst um sinn en eftir samráðsfund með forstöðumönnum hefur athugasemdin verið dregin til baka.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunnar til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin tekur til breytinga við Eystra-Seljaland F2, L224154. Byggingarmagn helst óbreytt en færist til innan byggingarreita. Deiliskipulagið helst að öðru leiti óbreytt.
Skipulags- og umhverfisnefnd metur breytinguna óverulega og að hún verði grenndarkynnt fyrir landeigendum að Ytra-Seljalandi,L163795, Seljalandi, L163795, Eystra-Seljalandi L190290 og Eystra-Seljalandi F7, L231719 og Seljatúni, L238123.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 147Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 147Framkvæmdin er í umfangsflokki 3 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingarleyfi verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 147Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.
12.Deiliskipulag - Ytri-Skógar, breytingar á byggingarlóð við Skógasafn
2511053
Deiliskipulagsbreytingin tekur til svæðis innan lóðar Byggðasafnsins á Skógum. Bætt er við byggingarreit fyrir nýtt hús í minningu Þórðar Tómassonar og núverandi byggingarreitur við samgöngusafnið er fært til norðurs frá húsinu.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur deiliskipulagsbreytinguna óverulega og leggur til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu. Nefndin leggur til að tillgan verði send til Skipulagsstofnunnar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.