76. fundur 19. nóvember 2025 kl. 08:00 - 10:00 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Baldur Ólafsson aðalmaður
  • Elvar Eyvindsson aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason aðalmaður
  • Sigurður Þór Þórhallsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Merkjalýsing - Eyvindarmúli

2511022

Merkjalýsingin tekur til jarðarinnar Eyvindarmúli vestri, L224447 en verið er að stofna þrjár nýjar landeignir.
Afgreiðslu málsins frestað.

2.Umsagnarbeiðni vegna aðalskipulagsbreytingar við Tunguvirkjun í Rangárþingi ytra.

2511026

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.11.2025 að gerðar yrðu breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 vegna fyrirhugaðrar virkjunar í landi Keldna þar sem landnotkun undir virkjunarsvæðið verði gert að iðnaðarsvæði. Aðkoma að svæðinu er frá Rangárvallavegi (264).
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög að umsögn er varðar fyrirhugaða breytingu á landnotkun og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.

3.Deiliskipulag - Bergþórugerði, fjölgun parhúsa

2508036

Með deiliskipulagsbreytingunni er verið að fjölga par- og raðhúsum í Bergþórugerði, ÍB9.
Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 13. september til og með 27. október 2025. Umsagnaraðilar gera engar athugasemdir við framlagða tillögu.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Deiliskipulag - Bólstaður

2309030

Deiliskipulagstillagan tekur til 3,5 ha svæðis við Bólstað sem tilheyrir þjóðlendunni að Fljótshlíðarafrétt, L233962. Heimilt verður að viðhalda núverandi skála eða endurbyggja, hámarksstærð verður allt að 120 m² með geymslu auk þess að heimilt verður að byggja umhverfis rafstöð. Mænishæð og þakform er frjálst.
Við yfirferð Skipulagsstofnunnar voru gerðar athugasemdir vegna ósamræmis um fjölda gistiplássa. Brugðist hefur verið við athugasemdum t.d. með því að umorða setningar til að koma í veg fyrir misskilning og nánari umfjöllun í greinargerð. Að mati skipulags- og umhverfisnefndar skal ekki afmarka bílstæði en bílum skal lagt innan byggingarreits til að halda viðkæmu umhverfi sem mestu óbreyttu.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd og auglýst í B-deild stjórnartíðinda skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Deiliskipulag - Eystra Seljaland

2511043

Deiliskipulagsbreytingin tekur til breytinga við Eystra-Seljaland F2, L224154. Byggingarmagn helst óbreytt en færist til innan byggingarreita. Deiliskipulagið helst að öðru leiti óbreytt.
Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins.

6.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 146

2511003F

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 146 Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
    Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Aðaluppdrættir uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
    - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 146 Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
    Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Aðaluppdrættir uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
    - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
    -Brunavegg...
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 146 Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 146 Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá dagsetningu 15.11.2025.

7.Umsókn í Húsfriðunarsjóð 2026, Hamragarðaheiði

2511047

Skipulags og umhverfisnefnd beinir því til sveitarstjórnar að láta meta og gera áætlun um uppbyggingu á bæjarhúsunum í Hamragörðum. Sótt verði um styrk frá Húsfriðunarsjóði til verkefnisins.



Húsin í Hamragörðum eru friðuð samkvæmt lögum. Íbúðarhúsið var byggt árið 1908 og þar er einnig fornt hlóðaeldhús, eitt elsta sinnar tegundar á landinu ef ekki það elsta. Einnig er þar rafstöð byggð 1927, sú elsta undir Fjöllum.

Húsin eru í hugum margra órjúfanlegur hluti af svæðinu og eru nokkurs konar vörumerki þess. Það er mjög nauðsynlegt að endurbyggja þau sem fyrst ef þau eiga ekki að grotna niður og verður vafalaust hægt að finna þeim hlutverk við hæfi á þessum vinsæla ferðamannastað.
Skipulags- og umhverfisnefnd þakkar formanni fyrir erindið og felur formanni að vinna málið áfram.
Formaður óskar eftir að dagskrálið 7, málsnúmeri 2511047 um umsókn um styrk í Húsafriðunarsjóð.

Fundi slitið - kl. 10:00.