68. fundur 21. maí 2025 kl. 08:00 - 10:00 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Anna Runólfsdóttir aðalmaður
  • Baldur Ólafsson aðalmaður
  • Elvar Eyvindsson aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson aðalmaður
  • Konráð Helgi Haraldsson varamaður
    Aðalmaður: Guri Hilstad Ólason
  • Sigurður Þór Þórhallsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulagsfulltrúi
  • Magnús Þór Einarsson embættismaður
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Ósk um skilti - Eyjafjallajökull og Grýtutindsleið

2505019

Ferðafélag Íslands óskar eftir heimild fyrir upplýsingaskilti við Grýtutindsleið. Á skiltinu eru upplýsingar er varða öryggi fólks, búnað, leiðaval og flóttaleiðir af jökli.
Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að leiðin að jöklinum liggi á sameignarlandi Merkurbæjanna. Nefndin leggur til að uppsetning skiltis verði gerð í samráði við landeigendur, Kötlu jarðvang og Safe Travel.

2.Merkjalýsing - Syðsta-Mörk

2505052

Landeigandi óskar eftir stofnun lóða samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Tillaga að staðfangi er Norðurmörk, Vesturmörk og Austurmörk.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðföngin verði samþykkt.

3.Deiliskipulag - Fornhagi

2311064

Tillagan tekur til 12 lóða úr landi Fornhaga. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 400 m² íbúðarhús, 60 m² gestahús og allt að 1.000 m² útihús. Hámarkshæð húsa fer frá 5,5 m upp í 7 m.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.

4.Umferðarmál - Öldubakki lokun fyrir gegnumstreymi umferðar

2410079

5.Yfirlit aðalskipulagsbreytinga - Frístundasvæði

2403123

6.Yfirlit aðalskipulagsbreytinga - Verslun og þjónusta

2403124

7.Yfirlit aðalskipulagsbreytinga - Íbúðabyggð

2403122

Fundi slitið - kl. 10:00.