67. fundur 07. maí 2025 kl. 08:00 - 08:26 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Anna Runólfsdóttir aðalmaður
  • Baldur Ólafsson aðalmaður
  • Elvar Eyvindsson aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason aðalmaður
  • Sigurður Þór Þórhallsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulagsfulltrúi
  • Magnús Þór Einarsson
Fundargerð ritaði: Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Ósk um skilti - Dílaflöt

2505008

Landeigandi óskar eftir heimild til að koma upp skiltum við Dílaflöt, L234644.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við uppsetningu bæjar- og staðvísaskilta. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að óska eftir umsögn Vegagerðarinn varðandi auglýsingarskilti.

2.Beiðni um umsögn - Deiliskipulagsbreyting vegna sorpstöðvarinnar að Strönd

2504063

Rangárþing ytra óskar eftir umsögn vegna breytingar á deiliskipulagi fyrir sorpstöðina Strönd. Markmið breytingarinnar er að rýmka fyrir núverandi starfsemi og þjónustu sem fer fram á sorpstöðinni að Strönd á Rangárvöllum, ásamt viðbótum vegna móttöku á mengandi úrgangi. Breyting er gerð á byggingarreitum og plönum undir starfsemi sorpstöðvarinnar, plön eru stækkuð og byggingarmagn aukið. Bætt er við byggingarreitum fyrir skemmur, starfsmannahús, eyðingastöðvar í formi brennslu og plönum fyrir meðhöndlun mengandi úrgangs auk lekavarna á urðunarreinum og plönum. Þá verður skoðað með endurnýtingu á eldri urðunarsvæðum, með það að markmiði að bæta landnýtingu svæðisins. Með breytingunni er einnig verið að stuðla að betri mengunarvörnum með auknu eftirliti og vöktun. Áætlað er að nýta hita úr brennslu til upphitunar vatns sem m.a. nýtist til húshitunnar.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu en leggur til að gerð verði mön eða skjólbelti umhverfis svæðið til að bæta umhverfi og ásýnd.

3.Deiliskipulag - Kirkjulækjarkot Bakki 1

2405066

Deiliskipulagstillagan tekur til 2 ha lóðar í landi Kirkjulækjarkots, Bakki 1. Heimilt verður að byggja fimm byggingar á lóðinni, s.s. íbúðarhús, gestahús, skemmu, gróðurhús eða gripahús, hámarksbyggingarmagn er allt að 1000 m² og hámarkshæð húsa er 6,5 m miðað við gólfkóta.
Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins, nefndin hefur lagt til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst.

4.Aðalskipulag - Ytra-Seljaland, Bolavellir

2503093

Breytingin tekur til 5 ha svæðis úr Ytra-Seljalandi sem verður breytt úr landbúnaðarlandi (L1) í verslunar- og þjónustusvæði (VÞ).
Aðalskipulagslýsingin var send til lögbundinna umsagnaraðila og kynnt frá 14. mars til og með 4. apríl 2025. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem benti á misræmi í gögnum, bent var á að taka skyldi mið af umfangi og fyrirhugaðri starfsemi vegna fráveitu ásamt því að gera athugasemd við framlagðan núllkost í umhverfismatsskýrslu. Að mati Náttúruverndarstofnunar getur tillagan haft neikvæð áhrif á landslag og leggur til að sett verði skýr skilyrði til að draga úr neikvæðum áhrifum. Vegagerðin bendir á að allar tengingar við þjóðvegi séu háðar þeirra leyfi, óskar eftir að samgöngumat verði unnið fyrir svæðið ásamt því að benda á að taka tillit til hættu vegna flóða í farvegi Markarfljóts. Skipulagsstofnun bendir m.a. á að gera þurfi grein fyrir forsendum þess að skilgreina ný svæði fyrir ferðaþjónustu t.d. með því að taka saman fjölda gistirýma á svæðinu. Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum í aðalskipulagsbreytingunni, t.d. með því að gera grein fyrir áhrifum á landslag, forsendum uppbyggingar og fjallað ítarlegar um 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagslýsingin verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar fyrir auglýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur einnig til að aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagstillaga verði auglýst samhliða ásamt að fara fram á að samgöngumat fyrir svæðið, frá Markarfljóti til og með Sandhólmavegi verði unnið samhliða deiliskipulagstillögunni.

5.Aðalskipulag - Seljalandssel

2501025

Með aðalskipulagslýsingunni er gert ráð fyrir að frístundasvæðið F36 og verði að verslunar- og þjónustusvæði á jörðinni Seljalandssel.
Aðalskipulagslýsingin var send til lögbundinna umsagnaraðila og kynnt frá 14. mars til og með 4. apríl 2025. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem benti á misræmi í gögnum, bent var á að taka skyldi mið af umfangi og fyrirhugaðri starfsemi vegna fráveitu ásamt því að gera athugasemd við framlagðan núllkost í umhverfismatsskýrslu. Að mati Náttúruverndarstofnunar getur tillagan haft neikvæð áhrif á landslag og leggur til að sett verði skýr skilyrði til að draga úr neikvæðum áhrifum. Vegagerðin bendir á að allar tengingar við þjóðvegi séu háðar þeirra leyfi, óskar eftir að samgöngumat verði unnið fyrir svæðið ásamt því að benda á að taka tillit til hættu vegna flóða í farvegi Markarfljóts. Skipulagsstofnun bendir m.a. á að gera þurfi grein fyrir forsendum þess að skilgreina ný svæði fyrir ferðaþjónustu t.d. með því að taka saman fjölda gistirýma á svæðinu.
Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum í aðalskipulagsbreytingunni, t.d. með því að gera grein fyrir áhrifum á landslag, forsendum uppbyggingar og fjallað ítarlegar um 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Landeigandi að Syðri-Rotum gerir athugasemdir við framlagða lýsingu, uppbyggingin muni rýra þeirra hagsmuni ásamt stóru umfangi tillögunnar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagslýsingin verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar fyrir auglýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur einnig til að aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagstillaga verði auglýst samhliða ásamt að fara fram á að samgöngumat fyrir svæðið, frá Markarfljóti til og með Sandhólmavegi verði unnið samhliða deiliskipulagstillögunni.

6.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132

2504002F

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132 Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132 Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis með fyrirvar að aðaluppdráttur verði leiðréttur skv. athugasemd byggingarfulltrúa dags. 9.apríl 2024.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132 Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis með fyrirvar að aðaluppdráttur verði leiðréttur skv. athugasemd byggingarfulltrúa dags. 9.apríl 2024.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132 Skipulags- og byggingarfulltrúi hafnar veitingu stöðuleyfis en árið 2023 var sótt um leyfi fyrir vinnubúðum sem enn eru á staðnum.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132 Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá dagsetningu 9. apríl 2025 með fyrirvara um að framkvæmdarleyfi verði veitt.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132 Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132 Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
    Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
    athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
    - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
    - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
    - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 08:26.