28. fundur 02. júní 2025 kl. 16:30 - 18:00 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Christiane L. Bahner formaður
  • Guri Hilstad Ólason aðalmaður
  • Konráð Helgi Haraldsson aðalmaður
  • Magnús Benonýsson varamaður
    Aðalmaður: Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir
  • Kristín Jóhannsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurmundur Páll Jónsson ritari
Fundargerð ritaði: Sigurmundur Páll Jónsson markaðs- og kynningarfulltrúi
Dagskrá

1.Upplýsingaskjár í Krónunni

2505096

Lagt er til að Sveitarfélagið standi að uppsetningu upplýsingaskjáa í Krónunni til að vekja betur athygli á viðburðum í sveitarfélaginu. Upplýsingaskjárinn myndi birta viðburði af sudurlif.is sem er vefsvæði á vegum sveitarfélaga á Suðurlandi til að kynna íþrótta- og félagsstarf ásamt viðburðum sem íbúar senda sjálfir inn.
Nefndin tekur vel í erindið og felur markaðs- og kynningarfulltrúa að taka málið áfram.
Samþykkt samhljóða
Vala Hauksdóttir frá Markaðsstofu Suðurlands kemur á fund

2.Kynning á Handbók um uppbyggingu ferðamannastaða

2505095

Vala Hauksdóttir frá Markaðsstofu suðurlands mætir á fund og kynnir fyrir okkur handbók um uppbyggingu ferðamannastaða.
Markaðs- og menningarnefnd þakkar Völu fyrir greinargóða kynningu á handbókinni.

Fundi slitið - kl. 18:00.