27. fundur 12. maí 2025 kl. 16:30 - 18:00 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Christiane L. Bahner formaður
  • Guri Hilstad Ólason aðalmaður
  • Konráð Helgi Haraldsson aðalmaður
  • Magnús Benonýsson
    Aðalmaður: Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir
  • Kristín Jóhannsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurmundur Páll Jónsson ritari
Fundargerð ritaði: Sigurmundur Páll Jónsson markaðs- og kynningarfulltrúi
Dagskrá

1.The Rift fjallahjólakeppnin 2025

2503060

Áframhaldandi umræður um viðburði tengt hjólakeppninni Rift 2025.
Umræður um viðburði tengt hjólakeppninni. Starfsmanni nefndar falið að vinna áfram að málinu.

Samþykkt samhljóða.

2.Iðnaðarsvæði á Hvolsvelli

2304026

Mál sett á dagskrá af beiðni formanns sem óskar eftir stöðu á nýju iðnaðarsvæði á Hvolsvelli.
Markaðs- og menningarnefnd ítrekar bókun frá 11.04.2023:

"Markaðs- og menningarnefnd hvetur sveitarstjórn til að setja kraft í að finna hentugt landsvæði fyrir iðnað í Rangárþingi eystra sem allra fyrst. Það er brýn nauðsyn að slíkt svæði sé til staðar fyrir atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu."

Samþykkt samhljóða
Stefán Friðrik kemur inn á fundin.

3.Ferðamálastefna Rangárþings eystra

1903081

Markaðs- og kynningarfulltrúi fer yfir núverandi ferðamálastefnu og það sem búið er að uppfylla í henni.
Stefán Friðrik og Sigurmundur fara yfir það sem búið er að framkvæma síðustu ár í málum sem tengjast ferðamálastefnu Rangárþings eystra.
Nefndin leggur til að Markaðsstofa suðurlands komi á næsta fund og kynni handbók um uppbyggingu ferðamannastaða.

Samþykkt samhljóða

4.Söguhringur í Rangárvallasýslu

2501058

Stefán Friðrik kynnir fyrir okkur verkefnið Söguhringur Rangárvallasýslu.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.