Stefán Friðrik byggðaþróunarfulltrúi kom á fundinn undir þessum lið.
1.Ferðamálastefna Rangárþings eystra
1903081
Ferðamálastefna Rangárþings eystra sem samþykkt var árið 2020 tekin til umræðu.
Markaðs- og menningarnefnd felur Markaðs- og kynningarfulltrúa og Byggðaþróunarfulltrúa að fara yfir núverandi ferðamálastefnu og gera samantekt á því sem hefur verið gert fyrir næsta fund nefndarinnar.
2.Víkingurinn 2025
2503034
Beiðni kom frá félagi kraftamanna um að hluti keppninnar Víkingar 2025 fari fram í Rangárþingi eystra 11. - 13. júní 2025. Beðið er um styrk að upphæð 250 þúsund að auki beiðni um aðstöðu fyrir viðburðinn.
Markaðs- og menningarnefnd þakkar erindið en leggur til að ekki verði tekið þátt í þessu verkefni í ár.
3.Njáluhátið 21. - 24. ágúst 2025
2503096
Sveitarstjórn óskar eftir áliti markaðs- og menningarnefndar á fyrirhugaðri Njáluhátíð 21. - 24. ágúst 2025.
Markaðs- og menningarnefnd fagnar framtakinu og óskar skipuleggjendum góðs gengis.
Christiane Bahner víkur af fundi.
4.17. júní hátíðarhöld 2025
2504043
Auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að halda 17. júní hátíðarhöld á Hvolsvelli.
Markaðs- og menningarnefnd þakkar þeim aðilum sem sóttu um fyrir áhugann. Starfsmanni skrifstofu er falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræðu fundarins.
Christiane Bahner mætir aftur á fund.
5.The Rift fjallahjólakeppnin 2025
2503060
Byggðarráð leggur til við markaðs- og menningarnefnd að koma með tillögur að viðburðum í sveitarfélaginu í kringum Rift fjallahjólakeppnina 2025.
Ýmsar hugmyndir ræddar, starfsmanni skrifstofu falið að afla frekari upplýsinga og áframhaldandi umræða á næsta fundi.