24. fundur 13. janúar 2025 kl. 16:30 - 17:30 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Christiane L. Bahner formaður
  • Guri Hilstad Ólason aðalmaður
  • Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Kristín Jóhannsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurmundur Páll Jónsson ritari
Fundargerð ritaði: Sigurmundur Páll Jónsson markaðs- og kynningarfulltrúi
Dagskrá

1.Tillaga um breytingu á úthlutun úr Menningarsjóði

2501023

Markaðs- og kynningarfulltrúi leggur til að breyta dagsetningum á úthlutun úr menningarsjóði Rangárþings eystra.

Í núverandi reglum sjóðsins eru styrkjum úr sjóðnum úthlutað tvisvar á ári, í febrúar og September.

Lagt er til að úthlutun verði í mars og október.



Breytingin veldur því að að mars úthlutun er nær vori og sumri þegar fleiri viðburðir fara fram.

Varðandi seinni úthlutun er hún nær jólum þegar annað menningar- og viðburða tímabil fer fram.

Þar að auki þyrftu umsækjendur að senda inn umsóknir að óbreyttu í ágúst þegar margir eru í sumarfríi og ekki komnir í haustverkin.



Vonast er til að þessi breyting fjölgi umsóknum og gefi nefndinni meiri rýmd til að velja umsóknir.
Lagt er til að reglum um úthlutun styrkja úr Menningarsjóði verði breytt úr:

"3. Auglýsa skal eftir styrkumsóknum í febrúar og ágúst ár hvert. Auglýsa skal í þeim auglýsingamiðlum sem gefnir eru út í Rangárþingi eystra hverju sinni sem og á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins."

í:

"3. Úthluta skal úr sjóðnum í mars og október ár hvert. Auglýsa skal í síðasta lagi 6 vikum fyrir úthlutunardag. Auglýsa skal í þeim auglýsingamiðlum sem gefnir eru út í Rangárþingi eystra hverju sinni sem og á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins."

Samþykkt samhljóða.
Þóra Björg Ragnarsdóttir skipulags- og byggingarfulltrúi kom inn á fund.

2.Markaðsstofa Suðurlands; Handbók; Uppbygging ferðamannastaða

2501027

Þökkum Þóru fyrir greinargóða kynningu á handbókinni
Þóra Björg Ragnarsdóttir skipulags- og byggingarfulltrúi yfirgaf fundinn.

Fundi slitið - kl. 17:30.