30. fundur
27. maí 2025 kl. 10:00 - 11:00 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
Ólafur Örn Oddsson
Valborg Jónsdóttir
Sandra Sif Úlfarsdóttir
Tinna Erlingsdóttir
Magnús Þór Einarsson
Guðjón Ingi Guðlaugsson
Sigurmundur Páll Jónsson
Fundargerð ritaði:Ólafur Örn OddssonÍþrótta- og æskulýðsfulltrúi og umsjónarmaður íþróttamannvirkja
Dagskrá
1.Gervigras og körfuboltavöllur
2411059
Þóru Björk skipulaggs- og byggingafulltrúi og Ólafur Rúnarsson forstöðumaður eigna- og framkvæmda segja frá fyrirhuguðum körfuboltavelli á skólalóðinni og gervigrasvelli sem fyrirhugaður er á svæði sem nú er grasvöllur og kallast æfingasvæði.
Nefndarmenn þakka þeim Þóru og Óla fyrir þessa yfirferð. Einnig sköpuðust umræður um skólalóðina, aðgegni bíla með vörur að skólanum, sparkvöllinn, undirlag á skólalóðinni ofl.
Rætt var um að taka þátt í íþróttaviku Evrópðu sem verður í haust. Hugmyndin okkar er að fá aðila inn í skóla, eins og gert hefur verið, en einnig bjóða svo öðrum að koma seinna um daginn. Nefndarmenn leggja nú höfuðuð í bleyti, heyra í þeim aðlilum sem þau eru fulltrúar fyrir og koma með hugmyndir að áhugasömum fyrirlesurum.
3.Virkniþing 60
2505074
Hugmynd um að halda þing fyrir íbúa, virkni, hreyfingu ofl.
Stefnt er að því að halda kynningardag fyrir allan almenning um það sem er í boði í hreyfingu ofl. Best væri að gera það í haust, jafnvel samhliða íþróttaviku Evrópu. Slíkur dagur var síðast haldinn í september 2023.
4.Önnur mál.
2211058
Önnur mál.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi var beðinn um að senda tölvupóst á foreldra til að minna á leikjanámskeið fyrir börn.
Bent var á að laga þarf sparkvöllinn, mikið sé um holur í vellinum.
Lagt var til að settur yrði upp pallur við aparóluna til að auðvelda börnum að komast upp í hana og spyrna sér af stað.
Einnig var aðstaða fyrir hjólabrettaiðkendur rædd.