73. fundur
29. október 2025 kl. 16:30 - 18:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
Sandra Sif Úlfarsdóttirvaraformaður
Ástvaldur Helgi Gylfasonaðalmaður
Bjarni Daníelssonformaður
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
Ólafur Örn Oddssonembættismaður
Anton Kári Halldórsson
Fundargerð ritaði:Ólafur Örn OddssonÍþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.Frístundastyrkur
2411060
Gera tillögu að frísstundastyrk fyrir Rangárþing eystra.
Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki að taka upp frístundastyrk. Sveitarfélagið er eitt af fimm sveitarfélögum á landinu sem býður ekki upp á frístundastyrk. Markmiðið með styrknum er að öllum börnum og ungmennum í Rangárþingi Eystra verði gert kleift að sinna uppbyggilegu íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag fjölskyldna, börnum og ungmennum til heilla. Því fyrr sem börn byrja að kynnast skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi þeim mun meiri líkur eru á að þau tileinki sér slíka iðju. Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundarstarfi hefur veigamikil forvarnaráhrif.
Samkvæmt svörum frá 19 sveitarfélögum um allt land er nýting styrksins að meðaltali um 66,2%.
2.Íþrótta- og afrekssjóður Rangþings eystra
2210063
Skoða reglur íþrótta- og afrekssjóðs Rangárþings eystra
Málinu er frestað til næsta fundar.
3.Umsókn um styrk vegna íþróttastarfs
2510056
Fara yfir umsókn frá Skákdeild Dímonar
Bjarni Daníelsson gjaldkeri Skákdeildar Dímonar víkur af fundi.
HÍÆ nefnd leggur til að styrkur verði veittur til skákdeildar Dímonar fyrir skákbúnaði.
Samkvæmt svörum frá 19 sveitarfélögum um allt land er nýting styrksins að meðaltali um 66,2%.