66. fundur 26. ágúst 2025 kl. 16:30 - 18:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Sandra Sif Úlfarsdóttir varaformaður
  • Ástvaldur Helgi Gylfason aðalmaður
  • Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir aðalmaður
  • Lea Birna Lárusdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Ólafur Örn Oddsson embættismaður
  • Anton Kári Halldórsson
Fundargerð ritaði: Ólafur Örn Oddsson Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá

1.Íþróttamaður Rangárþings eystra - allt

2311019

Tilnefningar fyrir íþróttamann tímabilsins 2024-2025
HÍÆ nefnd fór yfir tilnefningar og valdi úr tilnefningum. Allir sem tilnefndir eru mæta í hátiðartjaldið taka við viðurkenningum. Einn af þeim verður svo íþróttamanneskja Rangárþings eystra.

2.Frístundastyrkur

2411060

HÍÆ nefnd fjallar um Frístundastyrki
HIÆ nefnd óskar eftir því við sveitarstjórn að veita nefndinni heimild til þess að hefja vinnu við innleiðingu á frístundastyrk.
Tillaga nefndar er að hafa aldursbilið frá 0-18 ára. Styrkinn megi nota í öllum sveitarfélögum og barnið verði að hafa lögheimili í sveitarfélaginu.

3.Íþróttastarf, samfella

2408052

Íþróttastarf vetrarins kynnt fyrir HÍÆ nefnd.
HíÆ lýsir ánægju með töfluna og fagnar því að fimleikar eru komnir inn.

Fundi slitið - kl. 18:00.