Formaður fjölskyldunefndar setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð ef einhverjar eru. Engar athugasemdir gerðar.
Ágúst Leó Sigurðsson og Sandra Sif Úlfarsdóttir boðuðu forföll og varamenn höfðu ekki tök á því að mæta í þeirra stað.
1.Samræmdar dagsetningar umsókna í grunnskóla
2512001
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu óskar eftir því að öll sveitarfélög á landinu samþykki sameiginlegt tímabil fyrir innritun og umsóknir í grunnskóla í samræmi við það sem fram kemur í innsendu erindi.
Fjölskyldunefnd samþykkir sameiginlegt tímabil fyrir innritun og umsóknir í grunnskóla í samræmi við það sem fram kemur í erindi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
Samþykkt samhljóða.
2.Umsókn um styrk vegna fræðslu 2025 frá ADHD samtökunum - 26.11.2025
2511084
Lögð fram beiðni ADHD-samtakanna um styrk til að tryggja viðeigandi fræðu um ADHD til íbúa í Rangárþingi eystra.
Byggðarráð Rangárþings eystra fjallaði um erindið á fundi sínum þann 4. desember og bókaði eftirfarandi:
Byggðarráð vísar erindinu til umfjöllunar í Fjölskyldunefnd og felur nefndinni að afla gagna um hvers konar fræðsla stendur sveitarfélaginu til boða.
Fjölskyldunefnd felur formanni nefndar að eiga samráð við ADHD samtökin og stofnanir á vegum sveitarfélagsins og kanna með hvort grundvöllur sé fyrir því að vinna fræðsluáætlun fyrir Rangárþing eystra.
Samþykkt samhljóða.
Ársskýrsla Leikskólans Öldunnar fyrir skólaárið 2024-2025 lögð fram til kynningar og umræðu í Fjölskyldunefnd.
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir greinargóða ársskýrslu og góða kynningu leikskólastjóra á henni. Fjölskyldunefnd lýsir yfir ánægju með hversu vel starfið gengur á leikskólanum Öldunni.
Ágúst Leó Sigurðsson og Sandra Sif Úlfarsdóttir boðuðu forföll og varamenn höfðu ekki tök á því að mæta í þeirra stað.